Innlent
130 131 132 133 134 135 136 137 138 … 334 ›
Læknafélagið vill endubætur á vegum Stjórn Læknafélags Íslands telur brýnt að gerðar verði viðunandi endurbætur á fjölförnum vegum við þéttbýli eins og þeim sem mesta umferð bera við höfuðborgina. Stjórnin telur sannað að úreltir vegir séu ástæða slysa sem orðið hafa á vegum landsins. Hún telur þó rétt að minna á að flest slys megi forðast með varlegum akstri og réttri notkun öryggisbúnaðar. Innlent 8.12.2006 11:41
Glitnir spáir hækkun stýrivaxta Hagstofa Íslands birtir verðbólgutölur í næstu viku. Greiningardeild Glitnir spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,1 prósent á milli mánaða og muni verðbólga mælast 7 prósent. Deildin spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti sína um 25 punkta 21. desember næstkomandi en segir það verða endirinn á hækkanaferli bankans. Viðskipti innlent 8.12.2006 11:17
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs 44,6 milljarðar Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 4,7 milljörðum króna í nóvember. Þar af voru um 600 milljónir króna til leiguíbúðalána. Almenn útlán sjóðsins námu því um 4,1 milljörðum króna sem er um 3% aukning á milli mánaða. Heildarútlán sjóðsins á árinu nema ríflega 44,6 milljörðum króna. Viðskipti innlent 8.12.2006 10:27
Átján ára Selfyssingur handtekinn á Gaza-svæðinu Átján ára Selfyssingur var handtekinn á Gaza-svæðinu um síðustu helgi og var honum haldið í gæsluvarðhaldi í fimm klukkustundir. Pilturinn hefur verið á ferðalagi um svæðið síðan í september á þessu ári. Innlent 8.12.2006 10:23
Baugur orðaður við Allsaints Breska dagblaðið Times segir Baug Group hafa náð samkomulagi um að kaupa 40 prósenta hlut í bresku tískuvöruverslanakeðjunni Allsaints af breska fjárfestingum Kevin Stanford. Stanford, sem er einn af stofnendum tískuvörukeðjunnar Karen Millen, var einn af meðfjárfestum Baugs í kaupunum á House of Fraser, sem gengu í gegn í október. Innlent 8.12.2006 09:57
Sextugir fíkniefnasalar í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi fann fíkniefni á tveimur mönnum á sextugsaldri, sem voru saman í bíl í gærkvöldi. Í framhaldi af því var gerð húsleit hjá öðrum þeirra og fannst þá meira. Innlent 8.12.2006 07:59
Prófkjörskostnaður var 2.615 krónur Paul Nikolov, frambjóðandi Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs, birti í gær uppgjör sitt vegna framboðs í forvali Vinstri - Grænna í Reykjavík og í Kraganum um liðna helgi. Heildarreikningur Nikolov er tvö þúsund sex hundruð og fimmtán krónur,og þá er með talið frímerkið á prófkjörstilkynninguna og hlýtur prófkjörskostnaðurinn að vera lægsti sem um getur. Innlent 8.12.2006 07:55
Ölvaður ökumaður í þingholtum Ölvaður ökumaður, sem lögreglan ætlaði að stöðva í Lækjargötu í nótt, gaf allt í botn og reyndi að stinga lögregluna af með þvi að aka upp í þingholtin. Þar stöðvaði hann bílinn og tók til fótanna, en lögreglumenn hlupu hann uppi. Innlent 8.12.2006 07:40
Nýtt parhús reist í Grímsey Hreppsnefndin í Grímsey fær afhent nýtt parhús um helgina sem ákveðið var að byggja í vor. Að sögn oddvita Grímseyjarhrepps, Brynjólfs Árnasonar, er þetta fyrsta sinn í 6 ár sem smiðshöggið er rekið á nýbyggingu í eynni. Innlent 8.12.2006 07:36
Bílvelta norðan við Jökuldal Lítil meiðsl urðu á ökumanni og farþega fólksbíls sem valt einn hring í mjúkum snjó á Háreksstaðaleið, norðan við Jökuldal í gærkvöldi. Lögregla dró bílinn upp á veginn og var hann keyrður á leiðarenda áfallalaust eftir það. Innlent 8.12.2006 07:32
Fasteignasalar sviptir réttindum Níu fasteignasalar hafa verið sviptir réttindum tímabundið, í tólf vikur hver. Morgunblaðið hefur það eftir Þorsteini Einarssyni formanni eftirlitsnefndar Félags fasteignasala, að þeir hafi ekki með fullnægjandi hætti skilað yfirlýsingum frá endurskoðendum í ágúst síðastliðnum, um fjárvörslu á síðustu tólf mánuðum. Innlent 8.12.2006 07:02
Ungir ökuníðingar missa bílprófin Þrír sautján ára piltar, með glæný ökuskírteini, voru teknir úr umferð í nótt eftir að hafa mælst á allt of miklum hraða. Tveir voru stöðvaðir á Reykjanesbraut, annar með sex daga gamalt bílpróf og hinn með tíu daga, og sá þriðji mældist á rúmlega 150 kílómetra hraða á Sæbraut, þar sem hámarkshraði er 60 kílómetrar á klukkustund. Innlent 8.12.2006 06:51
Olíusamráðsdómur ekki fordæmi Sýknudómur í gær, þar sem Essó er sýknað af skaðabótakröfu einstaklings vegna samráðs olíufélaganna, hefur ekki frodæmisgildi gagnvart bótakröfum Reykjavíkurborgar. Þetta segir Vilhjálmur Vilhjálmsson lögmaður sem rekur málið fyrir borgina. Innlent 7.12.2006 18:59
Ritstjóri Kompáss sektaður Lögreglustjórinn hefur sektað ritstjóra fréttaskýringaþáttarins Kompáss um fimmtíu og fjögur þúsund krónur fyrir vörslu fíkniefna. Þetta voru fíkniefni sem Kompás lét kaupa til að sýna auðvelt aðgengi barna að þeim en þau voru síðan afhent lögreglu með formlegum hætti. Innlent 7.12.2006 18:55
Bandarískar hleranir á íslandi Skjalfestar sannanir liggja fyrir um að bandarísk yfirvöld blönduðust með beinum hætti í hleranir íslenskra stjórnvalda á eigin þegnum á tímum kalda stríðsins. Utanríkisráðuneytið tregðast við að opinbera þessi skjöl og bíður eftir heimild eða leiðbeiningum frá Bandaríkjunum Innlent 7.12.2006 18:51
Grunaður um að hafa aftur nauðgað Maður á sextugsaldri situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa nauðgað konu á föstudag. Í október var sami maður dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir hrottfengið ofbeldi og nauðganir. Innlent 7.12.2006 17:58
Um hundrað merktir í tölvukerfi vegna bakteríunnar Svokölluð Mosa-baktería hefur ekki fundist í þeim sýnum sem hafa verið rannsökuð á Landsspítalanum eftir að hún greindist í sjúklingi á þriðjudag. Búið er að rannsaka um helming sýnanna. Þeir sem eitt sinn hafa greinst með bakteríuna fara ávallt í einangrun við komu á sjúkrahús en um hundrað manns eru þannig merktir í kerfi Landsspítalans. Innlent 7.12.2006 18:07
Kaupþing spáir einni breytingu á Úrvalsvísitölunni Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir óbreyttri skipan 15 stærstu fyrirtækja í Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands á fyrri helmingi næsta árs. Einu breytinguna segir deildin vera þá að Atlantic Petroleum muni víkja fyrir Icelandic Group. Viðskipti innlent 7.12.2006 16:48
Jöklabréf halda uppi gengi krónunnar Mikil styrking krónunnar á seinni hluta síðasta árs og auknar gengissveiflur á þessu ári hafa verið settar í samband við útgáfur jöklabréfa. Greiningardeild Landsbankans segir jöklabréfaútgáfuna hafa skilað verulega neikvæðri ávöxtun það sem af er árs. Viðskipti innlent 7.12.2006 16:29
Ólafur Ragnar og Al Gore í San Francisco Forseti Íslands mun gera grein fyrir árangri Íslendinga í nýtingu jarðhita og hvernig sú kunnátta hefur stuðlað að samstarfsverkefnum víða um veröld, á samráðsfundi sem honum og Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna var sérstaklega boðið til, í San Francisco. Innlent 7.12.2006 11:16
KB banki spáir stýrivaxtahækkun KB banki spáir því að Seðlabankinn muni enn hækka stýrivexti á auka vaxtaákörðunarfundi, sem haldinn verður í bankanum tuttugasta og fyrsta desember. Innlent 7.12.2006 07:50
Eldur í uppþvottavél Eldur kviknaði í uppþvottavél í Torfufelli í Breiðholti klukkan hálfátta í gærkvöldi og talsverður reykur gaus upp í íbúðinni. Kona sem var í íbúðinni var skoðuð á staðnum og þótti ekki ástæða til að flytja hana á sjúkrahús, að sögn lögreglu. Greiðlega gekk að slökkva og reykræsta en skemmdir urðu af sóti. Innlent 7.12.2006 07:17
Bæjarráð Hornafjarðar vill að vinna við jarðgöng hafi forgang Bæjarráð Hornafjarðar hvetur til að 200 milljónir sem ætlaðar eru til lagfæringar á veginum um Hvalnes- og Þvottárskriður verði frekar notaðar til að hefja undirbúning jarðganga undir Lónsheiði. Fréttavefurinn horn.is greinir frá þessu. Innlent 7.12.2006 07:12
Landhelgisgæslan sótti mann á Patreksfjörð Sjúklingur á sjúkrahúsinu á Patreksfirði fár veiktist í nótt og kölluðu læknar á þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sækja hann og flytja á Landsspítalann í Reykjavík. Innlent 7.12.2006 07:05
Týndur fiskibátur finnst Þyrla af danska varðskipinu Triton fann undir kvöld í gærkvöldi fimmtán tonna fiskibát, norðvestur af Garðskaga, eftir að hann hvarf út úr sjálfvirku tilkynningaskyldunni og ekki náðist samband við skipverjana tvo, hvorki í gegnum talstöð né farsíma. Innlent 7.12.2006 07:02
Jólaleyfi þingmanna seinkað Ekkert verður af því að jólaleyfi þingmanna hefjist á morgun eins og áætlað var. Ekkert samkomulag náðist um farmhald þingstarfa á fundum þingflokkaformanna í gærkvöldi, og búist er við að langir vinnudagar séu framundan á þinginu. Innlent 7.12.2006 06:59
Landsbankinn spáir 7,1 prósents verðbólgu Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,2% í desember. Gangi þetta eftir verður 12 mánaða hækkun vísitölunnar 7,1% í jólamánuðinum, sem er lækkun úr 7,3% frá síðasta mánuði. Viðskipti innlent 6.12.2006 16:55
Lögregla kölluð í heimahús vegna deilna um tölvunotkun Lögreglan í Reykjavík var kölluð út nokkrum sinnum í gær vegna heimiliserja. Ágreiningurinn var af ýmsum toga en í einu tilfelli var rifist um tölvunotkun unglingsins á heimilinu. Þar hafði ástandið farið úr böndunum en lögregla segir ekki um einsdæmi að ræða. Innlent 6.12.2006 15:04
Fjölskylduhjálp fær tvær milljónir Fjölskylduhjálp Íslands fékk klukkan tvö í dag afhenta ávísun upp á tvær milljónir króna en það er sölugróði af geisladisk sem seldur var til styrktar henni. Innlent 6.12.2006 14:20
Egils Premium hlaut silfurverðlaun í Bæjaralandi Egils Premium sem Ölgerðin framleiðr hlaut silfurverðlaun í flokki hátíðarbjóra (Festival Beers) í European Beer Star keppninni, sem samtökum ölgerða í Bæjaralandi standa fyrir. Í sömu keppni fékk Egils Lite bronsverðlaun í flokki mildra bjóra. Viðskipti innlent 6.12.2006 14:04