
Lög og regla

Íslandsmet í fésektum
Örn Garðarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Brasserie Borgar játaði, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, rúmlega sextíu milljóna króna skattsvik. Á síðasta ári var hann dæmdur í þriggja mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir fimmtán milljón króna skattsvik og til greiðslu þrjátíu milljón króna sektar.

Lögregla leitar enn bílþjófa
Lögreglan á Akureyri leitar enn skemmdarvarga og þjófa sem brutust inn í sextán bíla í bænum í fyrrinótt í leit að peningum í þeim. Þeir brutu rúður í bílunum til að komast inn í þá og rótuðu í öllu lauslegu en stálu engum verðmætum, eins og hjómflutningstækjum.

Ungur maður lífshættulega slasaður
Ungur maður er lífshættulega slasaður eftir alvarlegt umferðarslys í Þrastarskógi síðdegis þegar tveir fólksbílar, sem komu úr gagnstæðum áttum, skullu saman. Í hinum bílnum voru kona og eins árs barn og eru þau minna slösuð að sögn lögreglunnar á Selfossi.
Enn einn handtekinn
Einn enn hefur verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við eitt stærsta fíkniefnamál síðustu ára. Maðurinn sem er um þrítugt var handtekinn í fyrradag og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald síðar sama dag.

Leysti frá skjóðunni
Einn höfuðpauranna í höfundarréttarstuldinum, sem lögregla hóf víðtæka rannsókn á í fyrrakvöld, ákvað í gærkvöldi að leysa frá skjóðunni til að komast hjá því að verða úrskurðaður í gæsluvarðhald. Var hann þá kominn ásamt lögreglumönnum í húsakynni Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem fjalla átti um kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald.

Úrskurðaður í gæsluvarðhald
Karlmaður um þrítugt var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við umfangsmikið smygl á kókaíni, amfetamíni og LSD. Þar með sitja sjö í gæsluvarðhaldi vegna málsins, fimm hér á landi og tveir í Hollandi.
Fartölvum stolið
Brotist var inn í þrjá bíla í Reykjavík í fyrrinótt og gærmorgun. Fartölvum var stolið úr tveimur bílanna, sem voru í Þingholtunum.

Ákvörðun ráðherra kom ekki á óvart
Eiríkur Tómasson, lagaprófessor og annar af hæfustu umsækjendum um stöðu dómara við Hæstarétt að mati dómara réttarins, segir að skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar komi honum ekki á óvart. Jón Steinar hefur samkvæmt tillögu Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra verið skipaður hæstaréttardómari frá og með 15. október næstkomandi.

Ráðuneytið staðfestir skipunina
Dómsmálaráðuneytið hefur staðfest að Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor og hæstaréttarlögmaður, hafi verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands frá og með 15. október næstkomandi.

Grunur um íkveikju á Blönduósi
Talið er víst að rekja megi eldsvoðann á Blönduósi í fyrrakvöld til íkveikju. Þá brann fjögur þúsund fermetra iðnaðarhús við Efstubraut til grunna. Í fréttatilkynningu lögreglunnar á Blönduósi segir að rannsókn tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík á vettvangi eldsvoðans hafi leitt í ljós rökstuddan grun um um íkveikju.

Einn handtekinn í viðbót
Einn maður til viðbótar var handtekinn í morgun vegna rannsóknar á umfangsmiklu smygli á fíkniefnum til landsins. Hann hefur lítið komið við sögu fíkniefnamála áður. Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins hér á landi og tveir til viðbótar eru í haldi lögreglu í Hollandi.

Hæstiréttur gekk fulllangt
Lagaprófessorarnir Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson stóðu að mati Hæstaréttar öðrum umsækjendum töluvert framar að hæfni, en ráðherra segir dóminn hafa gengið fulllangt í mati sínu.

ADSL notkun hrundi
Notkun á ADSL-neti Símans dróst saman um 50 til 60 prósent eftir að menn frá ríkislögreglustjóra lögðu hald á tölvur og tölvubúnað tólf einstaklinga í húsleitum í fimm lögregluumdæmum á þriðjudag.
Íkveikja á Blönduósi
Kveikt var í atvinnuhúsinu sem brann á Blönduósi aðfaranótt þriðjudags. Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík rannsakaði brunarústirnar og komst að þessari niðurstöðu. Enginn er grunaður um verkið að svo stöddu og er rannsókn málsins á frumstigi.
Þarf að greiða milljóna sekt
Fyrrum stjórnarformaður og framkvæmdarstjóri einkahlutafélags var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbunið fangelsi fyrir brot á virðisaukaskattslögum.

Leit vegna ólöglegrar dreifingar
Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega til annarra, kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Nokkrir voru handteknir.

Skemmdarvargarnir ófundnir
Lögreglan á Höfn í Hornafirði hefur enn ekki haft upp á skemmdarvarginum eða -vörgunum sem fóru hamförum um Byggðasafn Austur-Skaftfellinga um síðustu helgi. Hún segist vera að vinna úr vísbendingum sem borist hafa og kortleggja ferðir einstakra manna.

Jón Steinar ráðinn
Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að gengið verði frá ráðningu Jóns Steinars Gunnlaugssonar í embætti Hæstaréttardómara síðar í dag. Það mun koma í hlut fjármálaráðherra, sem er settur dómsmálaráðherra í málinu, að skipa í embættið.

2 mánuðir og 17 milljónir
Rúmlega fimmtugur maður var dæmdur til tveggja mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og til greiðslu rúmlega 17 milljóna króna fyrir að hafa ekki staðið skil á greiðslu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda á árunum 2001 og 2002.

Höfuðpaurar 100 manna hóps
Tólf menn, sem grunaðir eru um stórfellda ólöglega dreifingu á kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum á Netinu, voru handteknir í gær eftir umfangsmikla húsleit Ríkislögreglustjóra og lögreglu víða um land. Krafist hefur verið gæsluvarðhalds yfir einum þeirra. Hald var lagt á búnað í fórum mannanna en talið er að þeir séu höfuðpaurar í hundrað manna lokuðum hópi.

Það versta sem ég hef lent í
"Maður bara brotnar niður þegar maður horfir á fyrirtækið sitt brenna," segir Vilhjálmur Stefánsson, sem er einn þriggja eigenda Bílaþjónustunnar sem var með starfsemi í Votmúla á Blönduósi.

Horfði á eigið fyrirtæki brenna
Varaslökkviliðsstjórinn á Blönduósi var í þeirri sérstöku aðstöðu í fyrrinótt að vera að reyna að slökkva eld í sínu eigin fyrirtæki.

Ákærður fyrir sex líkamsárásir
Hálfþrítugur þekktur ofbeldismaður í Hafnarfirði tók sér frest til að tjá sig um sex líkamsárásir og vopnalagabrot sem hann er ákærður fyrir þegar mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Ákæra á hendur manninum, fyrir að hafa slegið mann í höfuðið með öxi á veitingastaðnum A.Hansen í Hafnarfirði síðasta dag ágústmánaðar, er í undirbúningi.
Kýldi lögreglumann
Maður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni en hann er sakaður um að hafa kýlt lögreglumann með krepptum hnefa í andlitið í maí í fyrra. Maðurinn mætti ekki í Héraðsdóm Reykjaness þegar átti að þingfesta málið í gær.

Kúgaðir í fangelsum
Kynferðisglæpamenn hafa löngum verið fyrirlitnir af samföngum sínum, sem gjarnan ráðast á þá með fúkyrðum og jafnvel ofbeldi, að sögn Ara Björns Thorarensen, formanns Fangavarðafélags Íslands.

Karlmaður nefbraut stúlku í nótt
Stúlka nefbrotnaði er hún var slegin í andlitið fyrir utan veitingastað við Hafnargötu í Keflavík í nótt samkvæmt Víkurfréttum. Árásaraðilinn er karlmaður og var hann yfirheyrður af lögreglu.

Ók á hliðstólpa
Maður ók á hliðstólpa skammt frá Bíldudal um fimmleytið á sunnudagsmorguninn. Stólpinn gekk í gegnum framrúðuna á bílnum og í höfuð ökumannsins sem hlaut af því töluverða áverka. Ökumaðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-LÍF, á Borgarspítalann.

Þyrlan send vegna umferðarslyss
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð vestur á Bíldudal klukkan sex í morgun vegna umferðarslyss sem átti sér stað klukkustund áður. Þá ók fólksbifreið í gegnum handrið á rimlahliði í útjaðri bæjarins. Tveir menn á þrítugsaldri voru í bílnum og flaug farþeginn í gegnum framrúðuna og lenti á viðardrumbi í hliðinu.

Ölvun, hass og haglabyssa
Lögreglan á Akureyri stöðvaði ökumann á 137 kílómetra hraða á ellefta tímanum í gærkvöld við Ytri vík á Ólafsfjarðarvegi á milli Dalvíkur og Akureyrar. Ökumaðurinn sem er á fimmtugsaldri er grunaður um ölvun við akstur. Í bílnum fannst smáræði af hassi, sem og haglabyssa og skotfæri.

Gargandi þvæla segir Sveinn Andri
Alls hafa um 120 lögmenn skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við Jón Steinar Gunnlaugsson um að hann verði skipaður í stöðu hæstaréttardómara. Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segist ekki vita hversu margir hafi verið beðnir um að skrifa undir áskorunina.