Erlendar
261 262 263 264 ›
Neitar ákæru knattspyrnusambandsins David O´Leary hefur neitað að gangast við ákæru enska knattspyrnusambandsins sem lagðar voru á hendur honum eftir leik Aston Villa og Birmingham á dögunum, þar sem O´Leary var sakaður um ósæmilega hegðun. Sport 25.10.2005 16:14
Gleymum Chelsea Gary Neville hjá Manchester United hefur sagt samherjum sínum að gleyma því að reyna að ná Chelsea í toppslagnum í úrvalsdeildinni og einbeita sér frekar í að hinum liðunum þremur sem eru fyrir ofan United í dag. Sport 25.10.2005 15:33
Spjald Beckham dregið til baka David Beckham verður klár í slaginn með Real Madrid í spænska boltanum annað kvöld eftir að rauða spjaldið sem hann fékk gegn Valencia um helgina var dregið til baka nú rétt áðan. Sport 25.10.2005 16:02
Gerrard væntanlega með Liverpool Níu leikir verða á dagskrá í enska deildarbikarnum í kvöld og verður leikur Crystal Palace og Liverpool sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Gert er ráð fyrir að Steven Gerrard verði í leikmannahópi Liverpool í kvöld. Sport 25.10.2005 15:19
Enn meiðist Louis Saha Endurkomu framherjans Louis Saha hjá Manchester United hefur enn eina ferðina seinkað, eftir að í ljós kom að hann er meiddur á læri. Saha hefur verið meira og minna meiddur síðan hann kom til liðsins í janúar á síðasta ári. Sport 25.10.2005 14:50
Gæti þurft í aðgerð fljótlega Alan Shearer, fyrirliði Newcastle gæti þurft í aðgerð vegna kviðslits fljótlega, en meiðsli tengd því hafa verið að hrjá hann undanfarið. Sport 25.10.2005 14:18
Félagar Beckham hissa á rauða spjaldinu Pablo Garcia hjá Real Madrid sagðist mjög hissa á dómaranum að reka David Beckham af leikvelli fyrir litlar sakir í tapleiknum gegn Valencia á sunnudagskvöldið. Sport 25.10.2005 05:34
Flautukarfa Payton tryggði Miami sigur Fjórir æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar bar hæst að Gary Payton tryggði Miami Heat eins stigs sigur á Atlanta Hawks með körfu á síðustu sekúndu leiksins. Sport 25.10.2005 05:47
Fulham er ekki til sölu Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, segir að ekkert sé til í sögusögnum þess efnis að Mohamed al Fayed hafi rætt við annan auðjöfur um helgina með það fyrir augum að selja félagið. Sport 24.10.2005 19:04
Róttækar breytingar á tímatökum Alþjóða bílasambandið samþykkti í gær að gera róttækar breytingar á tímatökum fyrir keppnir á næsta ári, þar sem keppt verður með útsláttarfyrirkomulagi. Nokkur lið eru vera mikið á móti þessum breytingum, sem eru gerðar með það fyrir augum að auka spennu og sjónvarpsáhorf. Sport 24.10.2005 17:01
Þurfum að breyta hugarfarinu Knattspyrnustjóri Liverpool gaf leikmönnum sínum litla hvíld eftir tapið gegn Fulham um helgina og skipaði þeim á erfiða æfingu innan við sólarhring eftir leikinn. Hann segir að þeir þurfi að temja sér ný viðhorf ef þeir ætli sér að ná árangri og ætlar að tefla fram nánast sama liði gegn Crystal Palace annað kvöld til að reyna að slípa leik liðsins betur saman. Sport 24.10.2005 15:22
Steve Bruce hefur fullan stuðning David Gold, stjórnarformaður Birmingham, segir að þrátt fyrir slakt gengi liðsins í undanförnum leikjum, sé staða Steve Bruce örugg hjá félaginu og segist ennfremur ekki geta hugsað sér betri mann til að koma liðinu aftur á beinu brautina. Sport 24.10.2005 12:23
Dómarar fylgjandi nýrri tækni Dómarar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru sagðir á einu máli um að taka í gagnið nýja tækni til að úrskurða um hvort boltinn fer yfir marklínu, eftir að enn eitt vafaatvikið leit dagsins ljós í leikjum helgarinnar. Sport 24.10.2005 12:04
Mark Gunnars Heiðars eitt af þeim bestu Á vefsíðu sænska blaðsins Aftonbladet geta lesendur nú tekið þátt í að kjósa mark ársins í sænska boltanum og þar er mark Gunnars Heiðars Þorvaldssonar gegn Djurgarden þann 3. október sl. eitt af þeim tíu mörkum sem tilnefnd eru. Mark Gunnars var sérlega glæsilegt og því er um að gera fyrir áhugasama að gefa honum sitt atkvæði á síðunni, þar sem einnig er hægt að sjá myndband af markinu. Sport 24.10.2005 11:24
Ekki hrifin af uppátækjum Beckham Íþróttasíður bresku blaðanna eru yfirfullar af myndum af David Beckham í dag, eftir að hann lét reka sig af leikvelli fyrir fíflagang í leik Real Madrid og Valencia í spænska boltanum í gærkvöldi og dálkahöfundar spyrja sig hvort Beckham sé í raun fyrirliðaefni enska landsliðsins eftir svona framkomu. Sport 24.10.2005 11:05
Hearts hefur áhuga á Robson Yfirmaður skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts, sem er í efsta sæti deildarinnar, hefur viðurkennt að félagið hafi áhuga á að ráða Sir Bobby Robson sem næsta knattspyrnustjóra félagsins, en sá gamli hafði áður látið í veðri vaka að hann hefði áhuga á starfinu. Sport 24.10.2005 10:17
Rétt að dæma Eið rangstæðan David Moyes, stjóri Everton, var ánægður með stigið gegn Chelsea í gær og vonar að það verði til þess að hleypa lífi í sína menn. Hann segir ákvörðun dómarans að dæma mark Didier Drogba af vegna rangstöðu hafa verið hárrétta. Sport 23.10.2005 22:58
Real tapaði heima Real Madrid tapaði 2-1 á heimavelli í æsilegum kvöldleik í spænska boltanum nú fyrir stundu. Zinedine Zidane misnotaði vítaspyrnu í leiknum og þeir David Beckham og Thomas Gravesen voru reknir af leikvelli. Sport 23.10.2005 20:53
Við skoruðum tvö mörk Knattspyrnustjóri Chelsea var mjög ósáttur við að ná aðeins jafntefli gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag og vildi meina að dómarinn hefði rænt löglegu marki af liði sínu, þegar Eiður Smári var dæmdur rangstæður í marki Didier Drogba. Sport 23.10.2005 20:13
Valerenga og Start efst Start er í efsta sæti í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir leiki dagsins, en aðeins ein umferð er eftir í deildinni. Valerenga er með jafn mörg stig og Start, en hefur lakara markahlutfall og því er ljóst að spennan verður gríðarleg í lokaumferðinni. Sport 23.10.2005 19:14
Gunnar Heiðar markakóngur Framherjinn knái hjá Halmstad, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, varð í dag markakóngur í sænsku úrvalsdeildinni þegar síðustu umferðinni lauk með heilli umferð. Halmstad tapaði lokaleiknum 2-0 fyrir Kalmar, en Gunnar varð engu að síður markahæstur í deildinni með 16 mörk. Sport 23.10.2005 19:18
Chelsea tapaði fyrstu stigum sínum Topplið Chelsea tapaði fyrstu stigum sínum í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð í dag, þegar liðið varð að sætta sig við jafntefli á útivelli gegn Everton. James Beattie skoraði mark Everton úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik, en Frank Lampard jafnaði metin í þeim síðari. Eiður Smári kom inná sem varamaður á 57. mínútu leiksins. Sport 23.10.2005 19:22
West Ham lagði Middlesbrough West Ham sigraði Middlesbrough 2-1 í ensku úrvalsdeildinni nú áðan og Bolton sigraði West Brom 2-0, en öll mörkin í leikjunum tveimur komu í síðari hálfleik. Chelsea var rétt í þessu að jafna leikinn gegn Everton, eftir að hafa lent undir 1-0. Sport 23.10.2005 19:30
Blackburn lagði Birmingham Blackburn Rovers bar sigurorð af Birmingham 2-0 í fyrsta leiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Paul Dickov skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu og Craig Bellamy innsiglaði sigur heimamanna, en bæði mörkin komu í síðari hálfleik. Birmingham er nú komið í bullandi fallbaráttu og hefur aðeins fengið 6 stig í fyrstu 10 leikjum sínum. Sport 23.10.2005 19:10