Erlendar
243 244 245 246 247 248 249 250 251 … 264 ›
Jafnt hjá Boro og Spurs Middlesbrough og Tottenham skildu jöfn í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var mjög fjörugur og endaði 3-3, þar sem gestirnir náðu að jafna leikinn sjö mínútum fyrir leikslok. Mido, Robbie Keane og Jermain Jenas skoruðu fyrir Tottenham, en Yakubu, James Morrison og Franck Quedrue skoruðu fyrir heimamenn. Sport 18.12.2005 15:33
Jafnt hjá Lazio og Juventus Lazio og Juventus skildu jöfn 1-1 í ítölsku A-deildinni í gærkvöldi, en Juve hefur engu að síður 11 stiga forskot á helstu keppinauta sína sem eiga leik í dag. Tommaso Rocchi kom heimamönnum yfir í leiknum, en franski framherjinn David Trezeguet jafnaði skömmu síðar fyrir Juve og það varð lokaniðurstaðan. Treviso skaust af botninum með góðum sigri á Lecce, 2-1. Sport 18.12.2005 14:42
Boro leiðir í hálfleik Middlesbrough er yfir 2-1 í hálfleik gegn Tottenham á Riverside í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Gestirnir komust yfir snemma leiks með marki frá Robbie Keane eftir klaufaleg varnarmistök, en heimamenn sneru leiknum sér í hag með mörkum frá Yakubu og James Morrison. Sport 18.12.2005 14:25
Við gerðum allt sem við gátum Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði í samtali við BBC í dag að hans menn hefðu gert allt sem þeir gátu í úrslitaleiknum við Sao Paulo á HM félagsliða í Japan í dag, en allt hefði komið fyrir ekki. Sport 18.12.2005 14:18
Vill Lampard og Henry til Katalóníu Framherjinn Ronaldinho hjá Barcelona segist óska þess heitt að fá Thierry Henry og Frank Lampard til liðs við sig hjá Barcelona, en báðir leikmenn hafa verið orðaðir nokkuð við spænska stórliðið. Sport 18.12.2005 14:04
Real ætlar ekki að eltast við Wenger Emilio Butragueno, varaforseti Real Madrid á Spáni, segir að félagið muni ekki reyna að fá knattspyrnustjórann Arsene Wenger til liðs við sig sem arftaka Wanderley Luxemburgo sem var rekinn á dögunum. Liðin mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og Butragueno segir samskipti félagana mjög góð. Sport 18.12.2005 13:54
Fyrsta tap Riley með Miami Miami Heat tapaði í nótt fyrsta leiknum sínum undir stjórn Pat Riley þegar liðið lá 115-107 á útivelli, þar sem LeBron James fór á kostum og skoraði 41 stig og gaf 10 stoðsendingar. Dwayne Wade var atkvæðamestur í liði Miami með 33 stig. Sport 18.12.2005 12:31
Sao Paulo lagði Liverpool Brasilíska liðið Sao Paulo sigraði enska liðið Liverpool í úrslitum í heimsmeistarakeppni félagsliða í Japan nú rétt í þessu 1-0. Liverpool hafði mikla yfirburði í leiknum, en náði ekki að skora og fer því flestum að óvörum tómhent heim frá mótinu. Sport 18.12.2005 12:19
Magdeburg stöðvaði Gummersbach Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg stöðvuðu í gærkvöld sigurgöngu Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni, þegar liðið vann sigur 38-28. Sigfús Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg, en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson var með tvö. Þetta var fysta tap Guðjóns og félaga á leiktíðinni. Sport 18.12.2005 11:52
Kohler tekur við Duisburg Fyrrum þýski landsliðsmaðurinn Jurgen Kohler var í dag ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs Duisburg, sem er í bullandi fallbaráttu í deildinni. Kohler kemur í stað Norbert Meier sem var rekinn fyrir að skalla leikmann á dögunum. Kohler hefur aldrei þjálfað áður, en er ýmsum hnútum kunnugur í boltanum og varð m.a. heims- og Evrópumeistari með Þjóðverjum í tíunda áratugnum. Sport 17.12.2005 19:54
Bayern með örugga forystu í jólafríið Meistarar Bayern Munchen fara með þægilegt forskot inn í jólafríið í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, eftir góðan 2-1 útisigur á Dortmund í dag. Ali Karimi skoraði fyrsta mark Bayern í dag og Claudio Pizzarro það síðara. Florian Kringe minnkaði muninn fyrir Dortmund undir lokin. Liðin í öðru og þriðja sæti, Hamburg og Bremen eigast við á morgun, en Bayern hefur sjö stiga forystu á toppnum. Sport 17.12.2005 19:44
Manchester City valtaði yfir Birmingham Manchester City rúllaði yfir Birmingham 4-1 í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. David Sommeil, Joey Barton, Antoine Sibiersky og Bradley Wright-Phillips skoruðu mörk City, en Jiri Jarosek minnkaði muninn fyrir Birmingham, sem er komið í verulega vond mál í deildinni og mikið má vera ef Steve Bruce, stjóri liðsins, verður við stjórnvölinn mikið lengur. Sport 17.12.2005 19:30
Manchester City með örugga forystu Manchester City er að valta yfir lánlaust lið Birmingham á heimavelli sínum í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Staðan í hálfleik er 3-0 fyrir City. David Sommeil kom liðinu yfir eftir aðeins 24 sekúndur, Joey Barton skoraði annað markið úr víti á 14. mínútu og Antoine Sibierski bætti við þriðja markinu á 39. mínútu. Sport 17.12.2005 18:16
Enn vinnur Reading Ívar Ingimarsson og félagar í Reading unnu góðan útisigur á Milwall í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Ívar lék að venju allan leiktímann í vörn Reading, en Brynjar Björn Gunnarsson kom inná sem varamaður í lokin. Jóhannes Karl Guðjónsson var í liði Leicester sem gerði jafntefli við Crew á heimavelli og þá var Hannes Sigurðsson í liði Stoke sem sem vann Luton 3-2. Sport 17.12.2005 17:53
Þrenna frá Michael Owen Michael Owen skoraði þrennu fyrir Newcastle í dag þegar liðið lagði West Ham á útivelli 4-2 í ensku úrvalsdeildinni. Alan Shearer skoraði eitt mark fyrir Newcastle, Marlon Harewood skoraði eitt mark fyrir West Ham, en fyrra mark liðsins var sjálfsmark Nolberto Solano. Sport 17.12.2005 17:40
Heiðar lagði upp sigurmark Fulham Heiðar Helguson kom inná í liði Fulham eftir um hálftíma leik í dag og lagði upp síðara mark liðsins í 2-1 sigri á Blackburn. Bolton burstaði Everton á útivelli 4-0, Portsmouth sigraði West Brom 1-0 og Wigan náði loks í sigur þegar liðið skellti lánlausu liði Charlton 3-0 með þrennu frá Henry Camara. Sport 17.12.2005 16:57
Wigan leiðir gegn Everton í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í fjórum af leikjunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Wigan hefur 1-0 forystu gegn Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton, en það var Henry Camara sem skoraði mark Wigan. Sport 17.12.2005 15:53
Rooney og Van Nistelrooy voru frábærir Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með framgöngu leikmanna sinna í sigrinum á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag og segir þá hafa brugðist vel við því að falla úr keppni í Meistaradeildinni. Sérstaklega hrósaði hann samvinnu Rooney og Van Nistelrooy. Sport 17.12.2005 15:48
Auðveldur sigur United Manchester United var ekki í teljandi vandræðum með að leggja Aston Villa á útivelli í fyrsta leik dagsins í enska boltanum. United hafði sigur 2-0 á Villa Park með mörkum frá Ruud Van Nistelrooy og Wayne Rooney. Nú munar sex stigum á United og Chelsea, sem reyndar á leik til góða gegn Arsenal á morgun. Sport 17.12.2005 14:43
Manchester United yfir gegn Villa Manchester United hefur yfir í hálfleik 1-0 gegn Aston Villa í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var hollenska markamaskínan Ruud Van Nistelrooy sem skoraði mark United snemma leiks, en gestirnir hafa mikla yfirburði í leiknum á Villa Park. Sport 17.12.2005 13:37
Íhugar að leggja skóna á hilluna David Moyes, stjóri Everton, segir að framherjinn Duncan Ferguson sé að íhuga að hætta að leika knattspyrnu því hann sé orðinn langþreyttur á fjölda meiðsla sem hafa þjakað hann lengi. Sport 17.12.2005 13:16
Detroit valtaði yfir Chicago Fjöldi leikja var á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Efsta lið deildarinnar Detroit Pistons valtaði yfir Chicago Bulls á heimavelli sínum og hefur nú unnið 17 af fyrstu 20 leikjum sínum á tímabilinu. Sport 17.12.2005 12:37
Vona að Chelsea og Barcelona hafi þroskast Forráðamenn UEFA segjast vona að ekki sjóði uppúr í aðdraganda viðureignar Barcelona og Chelsea í þetta sinn, en mikið fjaðrafok varð í kring um rimmu liðanna í vor sem endaði með leikbönnum og sektum. "Ég ætla að vona að menn hafi lært af mistökum sínum í fyrra og einbeiti sér að því að leysa málin á knattspyrnuvellinum í þetta sinn," sagði William Gaillard hjá UEFA. Sport 16.12.2005 18:16
Tapaði áfrýjun sinni gegn Chelsea Framherjinn Adrian Mutu tapaði í dag áfrýjun sinni á hendur fyrrum liði sínu Chelsea á Englandi, en hann var rekinn frá félaginu og samningi hans sagt upp í október á síðasta ári, eftir að Rúmeninn varð uppvís að neyslu kókaíns. Sport 16.12.2005 16:53
Ronaldinho spáir öðru klassísku einvígi Framherjinn Ronaldinho hjá Barcelona, sem flestir hallast að því að sé besti knattspyrnumaður í heimi, spáir því að viðureign Chelsea og Barcelona í 16-úrslitum meistaradeildarinnar í ár fari á spjöld sögunnar sem klassísk viðureign, rétt eins og rimma þeirra í fyrra sem var sannarlega ógleymanleg. Sport 16.12.2005 16:45
Við erum með betri hóp en Chelsea Jose Reyes hjá Arsenal er ekki smeykur fyrir grannaslaginn við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn og þó heil sautján stig skilji liðin að í töflunni, segir hann að Arsenal sé með jafn góðann eða betri hóp en meistararnir. Sport 16.12.2005 16:37
Vill hafa vetrarfrí í úrvalsdeildinni Mark Hughes, stjóri Blackburn segir að tími sé til kominn að innleiða vetrarfrí í ensku úrvalsdeildinni og segir að álagið á liðin í deildinni sé fáránlegt í kring um hátíðarnar, þar sem hans menn spila meðal annars fjóra leiki á átta dögum. Sport 16.12.2005 15:37
Artest sektaður Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers var í gær sektaður um 10.000 dollara fyrir ummæli sín í Indianapolis Star á dögunum, þar sem hann fór fram á að verða skipt frá liði Indiana og sagði liðið betur komið án sín. Sport 16.12.2005 16:16
Schumacher byrjar vel Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher er byrjaður að æfa á fullu eftir stutt frí og í gær náði hann frábærum tíma á æfingum á Jerez brautinni á Spáni. "Mér finnst ég mjög ferskur um þessar mundir og ég er ákaflega einbeittur," sagði Schumacher, sem vill eflaust gleyma síðasta ári sem fyrst og einbeita sér að því að komast á meðal þeirra bestu á ný. Sport 16.12.2005 14:41
Gæti hjálpað að falla úr Meistaradeildinni Alex Ferguson segir að sú staðreynd að Manchester United verður ekki með í Meistaradeildinni eftir áramótin, gæti átt eftir að hjálpa liðinu í deild og bikar heimafyrir. Það komi þó ekki í endanlega í ljós fyrr en úr því verður skorið hvað hin ensku liðin komast langt í keppninni. Sport 16.12.2005 15:28
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent