
Íþróttir

Houston gat ekki án McGrady verið
Houston Rockets tapaði enn einum leiknum á heimavelli sínum í nótt, þegar liðið lá gegn Utah Jazz 82-74. Ekki bætti úr skák að besti leikmaður liðsins, Tracy McGrady, þurfti að yfirgefa leikvöllinn í hálfleik til að keyra á fæðingardeildina, þar sem kona hans eignaðist barn. Lið Houston var yfir þegar hann fór, en leikur liðsins hrundi eftir það og leikurinn tapaðist.

Áfrýja rauða spjaldi Bowyer
Forráðamenn Newcastle hafa ákveðið að áfrýja rauða spjaldinu sem Lee Bowyer fékk um jólin þegar liðið sótti Liverpool heim. Bowyer var sakaður um að hafa brotið mjög gróflega á Xabi Alonso hjá Liverpool, en á fimmtudag kemur í ljós hvort áfrýjunin verður tekin til greina. Bowyer verður í banni í leik Newcastle og Charlton í kvöld.

Biðst afsökunar á hrokanum
Jose Mourinho greindi frá því í samtali við karlablaðið FHM á dögunum að hann hefði ekki ætlað sér að hljóma hrokafullur þegar hann lýsti því yfir að hann væri "sá sérstaki" þegar hann tók við liði Chelsea á sínum tíma.

440 hafnfirskir íþróttamenn unnið til Íslandsmeistaratitla á árinu
Alls hafa 440 hafnfirskir íþróttamenn unnið til Íslandsmeistaratitla á árinu í 20 greinum, átta hópar hafa unnið Bikarmeistaratitla og fjórir einstaklingar hafa orðið Norðurlandameistarar. Íþróttamaður Hafnarfjarðar 2005 verður krýndur í dag á viðurkenningarhátíð sem haldin verður í íþróttahúsinu við Strandgötu.

Kiel lagði Gummersbach
Kiel lagði Gummersbach í stórleik kvöldsins í þýska handboltanum 34-32. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarson fjögur. Þá burstaði Flensburg lið Delitzsch 32-22, en leik Hamburg og Wetzlar er enn ekki lokið.
Gummersbach undir gegn Kiel
Nú er kominn hálfleikur í stórleik Gummersbach og Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, en leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Kiel hefur tveggja marka forystu í hálfleik 16-14. Guðjón Valur Sigurðsson hefur skorað tvö mörk fyrir Gummersbach, annað úr víti og Róbert Gunnarsson línumaður hefur sömuleiðis skorað tvö mörk.

Á í tungumálaerfiðleikum
Harry Redknapp greindi frá því í samtali við BBC í dag að hann ætti í stökustu vandræðum með að ná til ákveðinna leikmanna í liði sínu vegna tungumálaerfiðleika. Hann segir þessa leikmenn hafa mjög takmarkað vald á enskri tungu.

Gerir lítið úr áhuga Barcelona
Franski framherjinn Thierry Henry hjá Arsenal segist ekkert vera að hugsa um yfirlýstan áhuga spænsku meistaranna í Barcelona á því að fá sig til liðs við sig og segist aðeins vera að hugsa um leikina við Real Madrid í Meistaradeildinni.

Colemann vill myndavélar á vellina
Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, vill að farið verði að styðjast við myndavélar í dómgæslu í ensku úrvalsdeildinni, eftir að mörg vafaatvik litu dagsins ljós í umferðinni á annan í jólum.

Ron Artest sveik mig
Körfuboltagoðsögnin Larry Bird, sem gegnir embætti forseta Indiana Pacers, hefur nú fyrst tjáð sig opinberlega um uppátæki Ron Artest á dögunum, þegar hann fór fram á að verða skipt frá félaginu og lagði þar með grunninn að því að eyðileggja tímabilið fyrir liðinu líkt og í fyrra.

Íhugar að taka skóna fram að nýju
Argentínski knattspyrnusnillingurinn Diego Maradona íhugar nú að taka fram skóna að nýju og leika fyrir fjórðudeildarliðið Excursionistas í heimalandi sínu. Maradona er 45 ára gamall og spilaði sinn síðasta leik sem atvinnumaður árið 1997. "Það væri gaman að prófa að spila í neðri deildunum, þar sem pressan er ekki of mikil," sagði Maradona.

Shaq í súmóglímu
Pat Riley, forseti og þjálfari Miami Heat, íhugar nú alvarlega að ráða til sín súmóglímumenn til að kljást við tröllið Shaquille O´Neal á æfingum, því honum þykir rétt að búa O´Neal betur undir þau slagsmál sem hann lendir í daglega í NBA deildinni.

Vongóður um að Pires verði áfram
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist vonast til að löngum samningaviðræðum við franska miðvallarleikmanninn Robert Pires fari nú að ljúka og segist vonast til að hann undirriti nýjan samning við félagið í næsta mánuði. Samningur Pires rennur út í sumar, en hann hefur verið tregur til að framlengja til þessa.

Steven Taylor frá í þrjá mánuði
Newcastle hefur orðið fyrir miklu áfalli eftir að í ljós kom að varnarmaðurinn Steven Taylor þarf að fara í uppskurð á öxl eftir að gömul meiðsli tóku sig upp að nýju í leik Newcastle og Liverpool í gær. Talið er að U-21 árs landsliðsmaðurinn enski verði því frá í allt að þrjá mánuði í kjölfarið.

Vanmetur ekki Everton
Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að hans menn muni alls ekki vanmeta granna sína í Everton þegar liðin mætast á Goodison Park á morgun, en liðin tvö í Bítlaborginni eru á gjörólíkum stað í deildinni. Benitez bendir þó á að staða liðanna í deildinni hafi ekkert að segja þegar í leikinn er komið.

Liðið er búið að jafna sig á Meistaradeildinni
Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að liðið sé búið að jafna sig eftir áfallið að detta út úr Meistaradeild Evrópu og er mjög ánægður með hvernig leikmenn hans hafa brugðist við því í deildinni að undanförnu.

Espanyol að landa Pandiani
Spænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Espanyol sé að leggja lokahönd á að ganga frá kaupum á framherjanum Walter Pandiani frá Birmingham. Talið er að Birmingham sé búið að samþykkja tilboð í Pandiani upp á eina milljón punda og að leikmaðurinn muni skrifa undir tveggja og hálfs árs samning við spænska félagið fljótlega.

Sjötti sigur Cleveland í röð
Cleveland Cavaliers vann sinn sjötta leik í röð í NBA deildinni í nótt þegar liðið hafði betur gegn Chicago Bulls á heimavelli sínum 102-91. LeBron James skoraði 32 stig fyrir Cleveland, en Tyson Chandler, Andres Nocioni og Chris Duhon skoruðu allir 15 stig fyrir Chicago, sem er í miklum vandræðum þessa dagana.

Fer frá Barcelona í sumar
Sænski markaskorarinn Henrik Larsson hefur gefið það út að hann muni fara frá Barcelona í sumar eftir að hafa snúist hugur í samningaviðræðum við félagið. Larsson segir að hugur hans stefni heim á leið.

Gagnrýnir stuðningsmenn
Steven Gerrard var ekki ánægður með móttökurnar sem Michael Owen fékk frá nokkrum stuðningsmönnum Liverpool í leik liðsins gegn Newcastle í gær, þar sem Owen lék sinn fyrsta leik á Anfield síðan hann fór frá félaginu á sínum tíma.

Curbishley ósáttur við dómara
Alan Curbishley, stjóri Charlton, hafði um lítið annað en dómara leiksins að tala eftir tapið gegn Arsenal í dag. "Steve Bennet er héðan úr hverfinu og það er kannski eitthvað sem við þurfum að skoða. Kannski er hann fyrir vikið of grimmur við okkur til að dæma leiki með okkur, hann var svo sannarlega ekki á okkar bandi í dag, svo mikið er víst," sagði Curbishley fúll.

Aston Villa burstaði Everton
Aston Villa tók lánlaust lið Everton í bakaríið á heimavelli sínum Villa Park í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag 4-0. Milan Baros kom Villa yfir í fyrri hálfleik, en í þeim síðari opnaði fyrir allar flóðgáttir hjá Everton og Villa bætti við þremur mörkum frá Mark Delaney, Juan Pablo Angel og Baros skoraði loks sitt annað mark.

Jóhannes Karl skoraði fyrir Leicester
Heil umferð var leikin í ensku 1. deildinni í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði jöfnunarmark Leicester sem gerði jafntefli við Milwall í dag og þeir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru báðir í liði Reading sem vann góðan útisigur á Wolves og hélt sínu striki í toppbaráttunni. Stoke City þurfti að sætta sig við 1-0 tap fyrir Burnley á útivelli.
Einar Hólmgeirsson í stuði
Nokkrir leikir fóru fram í þýska handboltanum í dag. Einar Hólmgeirsson skoraði 9 mörk fyrir Grosswallstadt og Alexander Petersson 7 þegar liðið lagði Lemgo 33-29. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 2 mörk fyrir Lemgo. Magdeburg sigraði Minden 31-27, þar sem Sigfús Sigurðsson skoraði 3 mörk og Arnór Atlason 1, en Snorri Steinn Guðjónsson gat ekki leikið með Minden vegna meiðsla.

Nadal meiddur
Spænski tenniskappinn Rafael Nadal verður ekki með í fyrstu keppnum ársins eftir að fótameiðsli hans tóku sig upp að nýju og hafa læknar sem meðhöndla hinn 19 ára gamla tennisleikara nú ráðlagt honum að spila ekki fyrr en í fyrsta lagi á opna ástralska mótinu þann 15. janúar næstkomandi.

Aston Villa yfir gegn Everton
Aston Villa leiðir 1-0 í hálfleik gegn Everton á Villa Park í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var Milan Baros sem skoraði mark Aston Villa á 35. mínútu, en bæði þessi lið þurfa mjög nauðsynlega á stigum að halda í dag.

Ætlar að skora 100 mörk fyrir Chelsea
Eiður Smári Guðjohnsen segir að hann hafi sett stefnu á að skora 100 mörk fyrir Chelse á ferlinum, en tekur þó fram að hann sé í raun meira fyrir það að skapa færi fyrir aðra en að skora þau sjálfur og segist kunna ágætlega við að spila á miðjunni.

Cole var frábær í dag
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hældi Joe Cole á hvert reipi í dag eftir að landsliðsmaðurinn enski lagði upp sigurmark Chelsea gegn Fulham í 3-2 sigri liðsins.

Fýluferð Owen á Anfield
Michael Owen sótti ekki gull í greipar fyrrum félaga sinna í Liverpool á Anfield í dag, þegar Liverpool skellti Newcastle 2-0. Steven Gerrard skoraði fyrra mark Liverpool, en síðara markið var skráð sem sjálfsmark Shay Given markvarðar Newcastle. Manchester United vann auðveldan sigur á West Brom 3-0 og Wigan sigraði Manchester City í miklum markaleik.

Gummersbach - Kiel í beinni
Það verður enginn smá leikur í beinni útsendingu á Sýn á morgun þegar Guðjón Valur Sigurðsson, Róbert Gunnarsson og félagar í Gummersbach taka á móti stórliði Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Gummersbach gekk um helgina frá samningi við tvo nýja leikmenn til að styrkja sig í toppbaráttunni en þetta eru skyttan Denis Zacharov og markvörðurinn Nandor Fazekas.