Viðskipti
61 62 63 64 65 66 67 68 69 … 223 ›
Hráolíuverð hækkar í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði á fjármálamarkaði í dag eftir að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá því að hráolíu- og eldsneytisbirgðir landsins hefðu dregist meira saman en spáð hafði verið. Veðurspáin næstu vikur réð sömuleiðis nokkru um hækkunina en því er spáð að olíuvinnslustöðvum við Mexíkóflóa geti stafað hætta af hitabeltisstormum á næstunni. Viðskipti erlent 15.8.2007 15:04
Hækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð við opnun viðskipta á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag eftir skell í gær. Helstu vísitölurnar þrjár hafa hækkað um tæp 0,7 prósent. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,58 prósent í Kauphöll Íslands í dag og stendur í 7.844 stigum. Gengi bréfa í Icelandair Group hefur lækkað mest, eða um 4,49 prósent. Viðskipti erlent 15.8.2007 14:37
Minni hagnaður hjá skaðatryggingafélögunum Hagnaður innlendu skaðatryggingafélaganna nam rúmum 19,5 milljörðum króna á síðasta árið samanborið við 20,2 milljarða árið á undan. Langstærstur hluti hagnaðar félaganna kemur úr fjármálarekstri en hagnaður af honum lækkar um níu milljarða á milli ára. Hagnaður af lögboðnum tryggingum skiluðu einum milljarði í vasa félaganna en 720 milljóna tap var á frjálsum ökutækjatryggingum. Viðskipti innlent 15.8.2007 12:56
Lítið lát á kaupgleði með kortum Heildarvelta vegna kreditkortanotkunar nam 23,6 milljörðum króna í júlí. Þetta er örlítið minni notkun en í mánuðinum á undan. Raunaukning kreditkortaveltu nemur hins vegar 10 prósentum frá sama mánuði í fyrra. Erlend kortavelta jókst á sama tíma um 24 prósent á milli ára. Greiningardeild Glitnis segir kortaveltu á öðrum ársfjórðungi merki um að einkaneysla hafi vaxið á ný á vordögum eftir samdrátt á fyrsta ársfjórðungi. Viðskipti innlent 15.8.2007 11:15
Lækkun í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,42 prósent á fyrsta stundarfjórðungi frá opnun viðskipta í Kauphöll Íslands og stendur vísitalan í 7.934 stigum. Lækkunin er í takti við niðursveiflu á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. Viðskipti innlent 15.8.2007 10:14
LME með rúman þriðjung bréfa í Stork Marel hefur aukið enn við hlut sinn í hollensku iðnsamsteypunni Stork NV í gegnum LME eignarhaldsfélag og fer nú með 32,16 prósenta hlut í henni, samkvæmt flöggun fyrirtækisins í gær. Breska blaðið Financial Times segir andstöðuna gegn 1,5 milljarða evra yfirtökutilboði breska fjárfestingafélagsins Candover í Stork hafa harðnað til muna. Viðskipti innlent 15.8.2007 09:24
Vísitölur lækka í Asíu og Evrópu Nokkur lækkun var á hlutabréfamörkuðum í Asíu og Evrópu í dag. Þetta er í takti við lækkun á bandaríska markaðnum í gær. Gengi Nikkei-vísitölunnar í Japan lækkaði um 2,2 prósent við lokun markaða þar í landi í morgun en vísitalan í Taívan fór niður um 3,6 prósent. Hin breska FTSE-100 vísitalan hefur lækkað um eitt prósent það sem af er dags. Viðskipti erlent 15.8.2007 09:08
Mikill samdráttur hjá Virgin Atlantic Hagnaður breska flugfélagsins Virgin Atlantic nam 6,6 milljónum punda, jafnvirði tæplega 880 milljóna íslenskra króna, á síðasta ári samanborið við 77,5 milljónir punda árið á undan. Þetta er rúmlega 90 prósenta samdráttur á milli ára. Auðkýfingurinn Richard Branson, stærsti hluthafi flugfélagsins, segir óhagstæð skilyrði hafa bitnað á hagnaði flugfélagsins. Viðskipti erlent 14.8.2007 15:44
Rauður dagur á bandarískum markaði Dagurinn hefur verið rauður á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en helstu vísitölurnar þrjár hafa allar lækkað um rúmt prósent það sem af er dags. Á sama tíma hefur Úrvalsvísitalan lækkað um 1,24 prósent en hún fór nú um þrjúleytið undir 8.000 stig. Viðskipti erlent 14.8.2007 15:04
Framkvæmdastjóri Pickenpack segir upp Guðmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri Pickenpack Gelmer, dótturfélags Icelandic Group, hefur sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Guðmundur var ráðinn til starfa í fyrra en hann var áður framkvæmdastjóri frystisviðs Delpierre. Torsten Krüger tekur við starfi Guðmundar. Viðskipti innlent 14.8.2007 14:29
Hækkanir á bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hefur hækkað í sveiflukenndum viðskiptum á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í dag. Gengi hlutabréfa í Evrópu hefur sveiflast nokkuð það sem af er dags á meðan Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,85 prósent. Viðskipti erlent 14.8.2007 13:42
Lækkun við opnun viðskipta Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,59 prósent við opnun viðskipta í Kauphöllinni í dag og stendur vísitalan í 8.051 stigi. Þetta er í takt við gengi á helstu fjármálamörkuðum í Evrópu í dag og í Bandaríkjunum í gær. Viðskipti innlent 14.8.2007 10:05
Hlutabréf lækka í Evrópu en hækka í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði lítillega við opnun viðskipta á fjármálamörkuðum í Evrópu í dag. Þetta kemur í kjölfar lækkunar á markaði í Bandaríkjunum í gær. Gengi Nikkei-vísitölunnar hækkaði hins vegar lítillega við lokun viðskipta í kauphöllinni í Japan. Flestar vísitölur hækkuðu í gær eftir skell á föstudag að bandaríska hlutabréfamarkaðnum undanskildum. Viðskipti erlent 14.8.2007 09:12
Vísitölur lækkuðu í Bandaríkjunum Vísitölur lækkuðu lítillega á bandarískum hlutabréfamörkuðum í dag þrátt fyrir hækkun við upphaf viðskipta. Vísitölur í Evrópu hækkuðu sömuleiðis, þar á meðal Úrvalsvísitalan í Kauphöll Íslands, sem hækkaði um 1,32 prósent og endaði í 8.099 stigum. Viðskipti erlent 13.8.2007 20:44
Hagnaður Blackstone þrefaldast Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Blackstone Group skilaði hagnaði upp á 774 milljónir bandaríkjadala, rétt tæplega 51 milljarð íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins. Þetta er þrefalt meiri hagnaður en á sama tíma fyrir ári. Fasteignafjárfestingarnar skiluðu langmestum hagnaði. Viðskipti erlent 13.8.2007 14:17
Methagnaður hjá Sparisjóði Keflavíkura Sparisjóðurinn í Keflavík hagnaðist um rúma 4,6 milljarða krónar á fyrri helmingi ársins samanborið við rétt rúman milljarð króna á sama tíma í fyrra. Aukningin nemur 338,7 prósentum á milli ára en hagnaður sparisjóðsins hefur aldrei verið meiri á einum árshelmingi. Viðskipti innlent 13.8.2007 13:36
Úrvalsvísitalan yfir 8.000 stigum á ný Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,34 prósent og fór í 8.100 stig skömmu eftir opnun viðskipta í Kauphöll Íslands í dag. Vísitalan lækkaði um 3,47 prósent á föstudag og fór undir 8.000 stigin. Hún hafði ekki verið lægri síðan um miðjan maí í fyrra. Viðskipti innlent 13.8.2007 10:02
Kauphallarfulltrúar ræða málin Fulltrúar norrænu kauphallarsamstæðunnar OMX og kauphallarinnar í Dubai ætla að funda í dag og ræða um hugsanlegt tilboð hinna síðastnefndu í meirihluta bréfa í OMX. Fréttastofa Associated Press segir geta stefnt í yfirtökubaráttu á milli kauphallarinnar í Dubai og bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq um OMX. Viðskipti erlent 13.8.2007 09:45
Útlán Íbúðalánasjóðs 6,3 milljarðar í júlí Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 6,3 milljörðum króna í síðasta mánuði. Af þeim voru 600 milljónir króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán voru 5,7 milljarðar króna, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Meðallán var tæplega 9,4 milljónir króna. Viðskipti innlent 13.8.2007 09:29
Hagnaður Marels 7,4 milljónir evra Hagnaður matvælavinnsluvélafyrirtækisins Marel nam 7,4 milljónum evra, jafnvirði 670,8 milljónum íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins samanborið við 797 þúsund evrur, 71,9 milljónir króna, á sama tíma í fyrra. Þetta er nokkuð yfir væntingum. Viðskipti innlent 10.8.2007 16:53
Mikil lækkun Úrvalsvísitölunnar Úrvalsvísitalan lækkaði um 3,47 prósent í Kauphöllinni í dag og endaði hún í 7.993 stigum við lokun viðskipta. Viðlíka lækkun á vísitölunni hefur ekki sést síðan í byrjun apríl í fyrra en þá voru miklar hræringar á íslenskum hlutabréfamarkaði. Gengi bréfa í Evrópu hafa sömuleiðis lækkað mikið í dag. Lækkunin heldur áfram á bandarískum hlutabréfamarkaði. Viðskipti innlent 10.8.2007 16:03
Mosaic Fashions úr Úrvalsvísitölunni Breska tískuvörukeðjan Mosaic Fashions verður fjarlægt úr Úrvalsvísitölu Kauphallarinnar á mánudag í kjölfar þess að félagið Tessera Holding ehf og tengdir aðilar hafa eignast 99,8 prósent í félaginu. Fyrirtækið var skráð á markað fyrir tveimur árum. Viðskipti innlent 10.8.2007 14:23
Áfram lækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði Lækkun hélt áfram þegar opnað var fyrir viðskipti á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Dow Jones-vísitalan hefur lækkað um rúm 0,7 prósent, Standard & Poor um 0,8 prósent og Nasdaq-vísitalan um rúmt prósent. Lækkun hefur verið víða á hlutabréfamarkaði víða um heim. Seðlabankar í Bandaríkjunum og Evrópu hafa brugðist við með því að opna sjóði sína og veita fjármálafyrirtækjum vilyrði fyrir lánum á góðum kjörum til að koma í veg fyrir lausafjárskort. Viðskipti erlent 10.8.2007 14:01
Úrvalsvísitalan undir 8.000 stigum Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,47 prósent í Kauphöllinni í dag og stendur nú í 7.994 stigum. Vísitalan hefur ekki verið lægri síðan um miðjan maí. Gengi allra félaga í Kauphöllinni hafa ýmist staðið í stað eða lækkað. Gengi bréfa í Exista hafa lækkað mest, eða um 5,49 prósent. Viðskipti innlent 10.8.2007 13:35
Enn þrengir að bandarískum lánafyrirtækjum Gengi bréfa í bandaríska fjármálafyrirtækinu Countrywide Financial Corporation féll um 17,5 prósent í Bandaríkjunum í dag. Markaðir vestanhafs opna senn og bíða fjárfestar eftir því hvort lækkun á hlutabréfamarkaði þar í landi haldi áfram. Gengi bréfa í fyrirtækinu hefur lækkað um rúm 30 prósent síðan á vordögum. Viðskipti erlent 10.8.2007 12:50
Fjárfestar halda að sér höndum Úrvalsvísitalan hefur verið á hraðri niðurleið það sem af er degi og hefur ekki verið lægri síðan um miðjan maí. Vísitalan hafði lækkað um 3,33 prósent í dag og stendur vísitalan í 8.004 stigum. Krónan hefur veikst um tæp tvö prósent í dag og stóð í 121,9 stigum um hádegi. Sérfræðingur hjá Glitni segir fjárfesta halda að sér höndum á hlutabréfamarkaði. Viðskipti innlent 10.8.2007 12:22
Exista með fimmtung í Sampo Exista flaggaði í finnsku kauphöllinni í dag 20 prósenta hlut í A-hluta finnska fjármála- og tryggingafyrirtækinu Sampo. Fyrirtækið átti áður 19,93 prósent í Sampo. Kaupin eru háð samþykki fjármálaeftirlitsstofnana. Viðskipti innlent 10.8.2007 10:17
Mikil lækkun í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan lækkaði um þrjú prósent við opnun viðskipta í Kauphöllinni nú klukkan tíu og stendur nú í 8.032 stigum. Þetta er í takt við niðursveiflu á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum en lækkanir í Asíu og Evrópu hafa verið á svipuðu róli. Viðskipti innlent 10.8.2007 10:02
Hagnaður Milestone 27,2 milljarðar króna Fjármálafyrirtækið Milestone hagnaðist um 27,2 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 1,9 milljarða á sama tíma fyrir ári. Milestone seldi 13 prósenta hlut í Glitni í byrjun apríl fyrir 54 milljarða króna. Félagið og tengdir aðilar eiga enn um sjö prósent í bankanum. Viðskipti innlent 10.8.2007 09:38
Olíuverð á niðurleið Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað um rúman bandaríkjadal í dag samhliða hræringum á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum og horfum á minnkandi eftirspurn eftir eldsneyti í Bandaríkjunum í sumarlok. Viðskipti erlent 9.8.2007 16:00
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti