
Sprengisandur

„Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir ekkert óeðlilegt við að ráðherrar tali fyrir og ryðji brautina fyrir nýsköpunarfyrirtæki. Fjölmörg dæmi séu um að mikill ávinningur hafi náðst fyrir samfélagið allt með tilkomu slíkra fyrirtækja.

Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi
Umhverfisráðherra ræðir stöðu ríkisstjórnarinnar og Sjálfstæðisflokksins og nýr biskup Íslands fjallar um erindi þjóðkirkjunnar í umræðuþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag.

Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs
Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir neyðarástand ríkja í grunnskólakerfinu enda hafi námsárangur barna hrunið hér á landi. Leynd um námsárangur í grunnskólum gangi ekki. Formaður skólastjórnarfélags Íslands segir málflutning ráðsins ekki á rökum reistan.

Vegagerðin og deilur um menntakerfið
Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag. Gagnrýni á Vegagerðina og deilur um menntakerfið bera hæst í þættinum.

„Alvarlega vanfjármögnuð“ í viðhaldinu
Forstjóri Vegagerðarinnar segir stofnunina alvarlega vanfjármagnaða þegar það kemur að viðhaldi vega. Ósamþykkt samgönguáætlun setur sömuleiðis strik í reikninginn.

Vegagerð, veðmálastarfsemi og kosningar vestanhafs
Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag. Vegagerð, húsnæðismarkaður, veðmálastarfsemi og forsetakosningar vestanhafs verða í brennidepli.

Veðmálastarfsemi, Carbfix og stefnuleysi stjórnvalda
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Samsæriskenningar, borgarstjóri um húsnæðismál og kosningar
Fyrsti gestur Kristjáns Kristjánssonar á Sprengisandi í dag er Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðiprófessor. Hann ræðir nýja bók sína um samsæriskenningar og fjallar um kosningar í Bretlandi og Frakklandi.

Segir öldrun þjóðarinnar eitt helsta áhyggjuefnið
„Það er nánast ekki tekið tillit til þessa. Þegar ég hef verið að lesa gögnin þá kemur verulega á óvart hvað þetta fær litla umfjöllun og lítið vægi og á nokkrum stöðum hef ég fundið umfjöllun um það að þetta breyti ekki miklu til skamms tíma en þetta er bara að gerast núna.“

Húsnæðismarkaður, Evrópusamvinna og þingveturinn gerður upp
Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka, ræðir um húsnæðismarkaðinn og afhjúpar vanáætlun á húsnæðisþörf til margra ára í framtíðinni.

Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni
Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vinstri grænna segir að flokkurinn þurfi að fara í innra uppgjör og leita í ræturnar, en flokkurinn mælist aðeins með um þriggja prósenta fylgi í skoðanakönnunum og myndi því detta út af þingi ef kosið yrði í dag. Hann er ekki svartsýnn á framhaldið þó það verði „drulluerfitt“ að rífa sig upp úr lægðinni. Guðmundur var í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

„Hvorum megin í sögunni ætlar þú að skipa þér, Sigmundur Davíð?“
Þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tókust á í Sprengisandi um eðli aðstoðar íslenska ríkisins við Úkraínu ásamt Orra Páli Jóhannssyni. Diljá Mist líkti Sigmundi Davíð við breska forsætisráðherrann Neville Chamberlain sem vildi hemja útþenslu Þýskalands nasismans með friðsamlegum leiðum.

Orkumál, Evrópuþingskosningar, utanríkisstefna Íslands og velsældarsamfélagið
Bjarni Bjarnason, fyrrverandi forstjóri Orkuveitunnar ræðir orkumál í Sprengisandi. Hann efast um stórtæk áform til orkuöflunar og telur að við eigum að fara okkur hægt í þessum málum.

Kosningarnar gerðar upp
Þau Auður Jónsdóttir, Birgir Hermannsson og Björn Ingi Hrafnsson skiptast á skoðunum um úrslitin í forsetakosningunum á Sprengisandi í dag. Þá gæti verið von á að nýkjörinn forseti láti sjá sig.

Ágreiningur um túlkun sem nái inn á borð ríkisstjórnarinnar
Hanna Katrín Friðriksson alþingismaður segir ágreining um túlkun laga sem gilda um netverslun áfengis á Íslandi. Sá ágreiningur nái allt upp í ríkisstjórnina þar sem þrír ráðherrar sem hafa tjáð sig um málið hafa ekki sömu skoðun.

Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn
Þórdís Ingadóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í alþjóðamálum segir róður Ísraelsmanna þyngjast. Ísraelsk stjórnvöld séu að einangrast á alþjóðavettvangi og nýútgefin beiðni um handtökuskipun af hálfu aðalsaksóknara alþjóðasakamáladómstólsins geri þeim ekki hægar um vik.

Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum
Álitsgjafar segja spennandi kosningabaráttu fram undan nú þegar ein vika er eftir. Frambjóðendur muni þurfa hafa fyrir því að vinna Katrínu. Höllurnar séu að skipta um hlutverk. Þórhallur Gunnarsson, Viktor Orri Valgarðsson og Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir fóru yfir forsetakosningarnar og spáðu í spilin á Sprengisandi í dag.

Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál
Að vanda er dagskráin fjölbreytt í Sprengisandi í dag. Rætt verður um Gasa, áfengissölu, neytendamál og auðvitað forsetakosningarnar.

Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

„Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“
Formaður Læknafélags Íslands telur að með lögleiðingu dánaraðstoðar hér á landi yrði hlutverki lækna breytt í grundvallaratriðum. Formaður Lífsvirðingar segir að með lögum um slíkt yrði þó ekki lögð skylda á lækna að framkvæma dánaraðstoð.

Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

„Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir ekkert tortryggilegt við samninga borgarinnar við olíufélögin um að greiða ekki innviðagjald eða byggingargjald á reitum þar sem borgaryfirvöld vilja að rísi íbúabyggð.

Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar
Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Nýorku, ríður á vaðið á Sprengisandi í dag og fjallar um orkuskiptin og gagnrýnir sumar aðgerðir stjórnvalda þegar að þeim kemur.

Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán
Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og sérfræðingur um efnahagsmál telur óhætt að lækka stýrivexti

Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Kjaftasögur koma á yfirborðið fyrir kosningar
Kjaftasögur – sannar eða lognar – geta haft áhrif á komandi kosningar og hafa reglulega komið á kreik í kringum forsetakosningar.

Forsetakosningar, húsnæðismarkaðurinn og lífeyrissjóðir
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Bankasýslan, búvörulög og ríkisstjórnarsamstarfið
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Efnahagsmálin, Katrín mætir og staðan á Gasa
Ákvörðun forsætisráðherra um að gefa kost á sér í komandi forsetakosningum verður rædd á Sprengisandi í dag. Sérfræðingar kryfja pólitískar afleiðingar og Katrín stendur fyrir máli sínu.