Kauphöllin
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 78 ›
Marel sýnt að það getur lækkað skuldahlutfallið „hratt“ Stjórnendur Marels segja að félagið hafi margítrekað sýnt að það getur lækkað skuldahlutfall sitt hratt eftir að hafa ráðist í stórar yfirtökur. Ekki kemur til greina að lækka útgefið markmið félagsins um skuldsetningu þrátt fyrir að vaxtakostnaður hafi aukist talsvert. Erlendir greinendur tóku vel í uppgjör Marels sem þeir sögðu gefa til kynna að sterkur rekstrarbati væri í vændum. Innherji 3.11.2022 16:58
„Fulldjúpt í árina tekið“ að tala um viðsnúning hjá Marel Uppgjör Marels á þriðja ársfjórðungi einkenndist af lágri framlegð ásamt miklum tekjuvexti og sameiningarkostnaði samfara kaupum á Wenger. Vísbendingar eru um rekstrarbata ef litið fram hjá sameiningarkostnaði en það er „fulldjúpt í árina tekið að tala um einhvern viðsnúning“ í rekstri. Innherji 3.11.2022 15:15
Marel fellur í verði eftir uppgjör og 25 milljarða lán til stærsta hluthafans Gengi bréfa Marels, verðmætasta fyrirtækisins í Kauphöllinni, lækkaði um tæplega fjögur prósent í fyrstu viðskiptum í morgun. Félagið birti í gærkvöldi uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung og þá upplýsti stærsti hluthafi Marels um 175 milljóna evra lánasamning við tvö erlend fjárfestingarfélög með breytirétti í allt að átta prósenta hlut í Marel. Innherji 3.11.2022 09:55
Icelandair hækkar en erlendir keppinautar lækka Hlutabréfaverð fjölda erlendra flugfélaga hefur lækkað skarpt á einu ári. Þrátt fyrir það hefur Icelandair hækkað lítillega á sama tíma. Viðskiptalíkan Icelandair byggir á tengiflugi milli Evrópu og Ameríku, en sjóðstjóri segir að af þeim sökum sé rekstur flugfélagsins ekki eins berskjaldaður fyrir verri efnahagshorfum í Evrópu og önnur flugfélög. Innherji 3.11.2022 07:00
Leggja Eyri til 25 milljarða og geta eignast átta prósenta hlut í Marel Fjárfestingafélagið Eyrir Invest, langsamlega stærsti hluthafi Marels, hefur gengið frá samkomulagi við erlendu fjárfestingarsjóðina JNE Partners og The Boupost Group um að leggja Eyri til 175 milljónir evra, jafnvirði um 25 milljarða íslenskra króna, í lán til fjögurra ára. Með samkomulaginu öðlast sjóðirnir um leið kauprétt að allt að rúmlega átta prósenta hlut í Marel frá Eyri Invest í lok lánstímans í nóvember 2026. Innherji 2.11.2022 23:44
Rekstrarhagnaður Marels jókst um 30 prósent og var yfir spám greinenda Marel færist markmiði sínu um að skila 14 til 16 prósenta EBIT-framlegð fyrir árslok 2023 eftir að félagið skilaði rekstrarhagnaði upp á 46,2 milljónir evra, jafnvirði 6,6 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi og jókst hann um nærri 30 prósent frá sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður Marels var talsvert yfir meðalspá greinenda, og sömuleiðis tekjur félagsins sem voru samtals tæplega 451 milljón evra á fjórðungnum. Innherji 2.11.2022 21:18
Sýn í „góðri stöðu“ til að skila frekara fjármagni til eigenda eftir sölu á stofnneti Sýn skilaði rekstrarhagnaði (EBIT) á þriðja ársfjórðungi upp á 486 milljónir og jókst hann um liðlega fimmtán prósent frá sama tímabili í fyrra. Tekjur fjarskipta- og fjölmiðlafélagsins námu um 5,5 milljörðum króna og stóðu nánast í stað á milli ára. Stjórn Sýnar hefur samþykkt endurkaup á eigin bréfum fyrir 300 milljónir. Innherji 2.11.2022 18:08
Jakobsson verðmetur Icelandair 42 prósentum yfir markaðsgengi Jakobsson Capital verðmetur Icelandair 42 prósent yfir markaðsgengi eða á 2,59 krónur á hlut. Á fjórða ársfjórðungi ársins verður afkastageta Icelandair 98 prósent af því sem hún var 2019 fyrir Covid-19 heimsfaraldurinn. „Flugvélin er á réttri flugbraut,“ segir greinandi. Innherji 2.11.2022 16:00
Hlutabréf á siglingu með Marel í stafni Hlutabréfaverð hefur verið á mikilli siglingu á undanförnum dögum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um ellefu prósent á einni viku. Þar munar miklu um að Marel, sem vegur þyngst í vísitölunni, hefur hækkað um 14 prósent. Fjárfestar gera sér vonir um að uppgjör fyrirtækisins, sem birtist á morgun, verði gott. Innherji 1.11.2022 16:30
Gullgrafarar komnir í Kauphöllina Auðlindafélagið Amaroq Minerals var í morgun skráð á íslenska Nasdaq First North vaxtarmarkaðinn. Viðskipti innlent 1.11.2022 13:05
Verðmat IFS á Icelandair 29 prósentum yfir markaðsgengi IFS hækkaði verðmat sitt á Icelandair eftir uppgjör þriðja ársfjórðungs og verðmetur nú félagið 29 prósentum yfir markaðsgengi við upphaf dags. Hærra verðmat má rekja til þess að gert er ráð fyrir að reksturinn fari batnandi samhliða meðal annars lækkandi olíuverði og betri sætanýtingu. Innherji 31.10.2022 13:05
Óvissa með útgreiðslur til hluthafa Íslandsbanka vegna óróa á mörkuðum Íslandsbanki mun nota síðasta fjórðung ársins til að kanna hvaða valkosti hann hefur vegna áður boðaðra áforma um að kaup á eigin bréfum fyrir allt að 15 milljarða króna, að sögn bankastjórans, en umrót á fjármálamörkuðum veldur því að óvissa er um hvenær getur orðið af slíkum útgreiðslum til hluthafa. Seðlabankastjóri hefur áður brýnt fyrir bönkunum að þeir þurfi að gæta vel að lausafjárstöðu sinni við þessar krefjandi markaðsaðstæður. Innherji 29.10.2022 16:11
Hvergi skjól á fjármálamörkuðum Afkoma Sjóvár á undanförnum tveimur ársfjórðungum varpar ljósi á hvernig sveiflur í afkomu af vátryggingarekstri og fjárfestingum vegur á móti hvor öðru. Hagnaður af vátryggingum var 478 milljónir en tap af fjárfestingastarfsemi nam 163 milljónum. Þetta samband var ekki til staðar á undanförnum tveimur árum vegna peningaprentunar í Covid-19 og fjármálamarkaðir hækkuðu samhliða. Innherji 28.10.2022 15:01
Innflæði í hlutabréfasjóði í fyrsta sinn í fimm mánuði Þrátt fyrir að hlutabréfaverð hafi tekið mikla dýfu í liðnum mánuði þá reyndist vera hreint innflæði í innlenda hlutabréfasjóði upp á tæplega hálfan milljarð króna í september. Er þetta í fyrsta sinn frá því í apríl á þessu ári þar sem sala á nýjum hlutdeildarskírteinum í slíka sjóði er meiri en sem innlausnum fjárfesta. Innherji 28.10.2022 13:01
Hagnaður upp á 7,5 milljarða hjá Íslandsbanka Hagnaður af rekstri Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi 2022 nam 7,5 milljörðum króna. Hreinar vaxtatekjur jukust um 28,7 prósent milli ára. Kostnaðarhlutfall bankans lækkaði úr 39,4 prósentum í 36,3 prósent. Viðskipti innlent 27.10.2022 20:58
„Taktfastur dans“ skilar Nova milljarði í rekstrarhagnað EBITDA-hagnaður Nova á þriðja ársfjórðungi 2022 var rúmur milljarður króna. EBITDA-hlutfallið var 31,9 prósent og vex um 1,3 prósentustig frá fyrra ári. Forstjórinn segir ársfjórðungin hafa verið samkvæmt væntingum. Viðskipti innlent 27.10.2022 17:39
Telja að verðbólga taki ekki á rás þrátt fyrir óvænta þróun í dag Verðbólga mældist yfir spám greinenda í október. Sérfræðingar á markaði telja að líklega hafi verðbólgan toppað í sumar og horfa til þess að hún fari hjaðnandi á næstu mánuðum. Sjóðstjóri segir að stóra spurningin fyrir Seðlabankann sé hversu hratt hún gangi til baka. Innherji 27.10.2022 15:59
Hækkar verðmat Haga í ljósi góðs reksturs Rekstur Haga virðist vera í góðum farveg en það er óhætt að segja að markaðsaðstæður séu nokkuð krefjandi. Jakobsson Capital hefur hækkað verðmat sitt á félaginu í ljósi þess hve vel gekk á síðasta ársfjórðungi í 83,6 krónur á hlut eða um 2,5 prósent. Verðmatsgengið er 17 prósent hærra en markaðsgengið fyrir opnun markaða í morgun. Innherji 27.10.2022 14:01
Áform ráðherra gætu haft „jákvæð áhrif á vaxtaumhverfið,“ segir bankastjóri Arion Bankastjóri Arion banka telur að áform fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulag við kröfuhafa, eigi ekki að valda þrýstingi á fjármálamarkaði heldur geti þau haft „jákvæð áhrif“ á vaxtaumhverfið. Arion hefur fært niður virði íbúðabréfa útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum í bókum sínum fyrir um 250 milljónir króna. Innherji 27.10.2022 12:07
Telst það innherjasvik að vera á undan öðrum þegar innherjaupplýsingar hafa verið birtar? Löggjöf um verðbréfamarkaði bannar aðilum sem búa yfir betri upplýsingum á markaði að notfæra sér þetta forskot á kostnað annarra á markaðinum. En löggjöfinni er ekki ætlað að draga úr samkeppni á markaði með því að banna fjárfestum að vera hugmyndaríkir í því að nálgast opinberar upplýsingar með lögmætum hætti. Umræðan 27.10.2022 10:06
Afkoma Arion undir væntingum vegna samdráttar í fjármunatekjum Arion banki hagnaðist um rúmlega 4.860 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi og dróst hann saman um liðlega 41 prósent á milli ára. Á meðan afkoman af kjarnarekstri bankans, meðal annars mikil aukning í vaxtatekjum, var í samræmi við væntingar þá var samdrátturinn í fjármunatekjum talsvert umfram spár greinenda samhliða erfiðum markaðsaðstæðum. Innherji 26.10.2022 17:32
Voru „ekki augljós tækifæri“ að nýta söluhagnað Mílu í fjárfestingar erlendis Forstjóri Símans segir að það hafi verið kannað gaumgæfilega hvort það væru fyrir hendi ákjósanlegir fjárfestingarkostir erlendis til að nýta að hluta þá miklu fjármuni sem félagið fékk við söluna á Mílu. Svo hafi ekki verið og því ákveðið að greiða þá alla út til hluthafa en félagið hafi ekki viljað vera „yfirfjármagnað“ nema að fyrir lægju skýr markmið um hvað ætti að gera við þá fjármuni. Innherji 26.10.2022 16:40
FME gerir lægri eiginfjárkröfu til Kviku en hinna bankanna Heildareiginfjárkrafa sem fjármálaeftirlit Seðlabankans gerir til Kviku verður nokkru lægri en krafan á stóru viðskiptabankana þrjá ef fram fer sem horfir. Munurinn liggur einkum í því að stóru viðskiptabankarnir þrír fá tveggja prósentustiga auka álag vegna þess að þeir eru taldir kerfislega mikilvægir. Kvika hækkaði verulega á hlutabréfamarkaði eftir tíðindin. Innherji 26.10.2022 14:48
Spakur Invest naut góðs af styrkingu Bandaríkjadals Ágjöf á fjármálamörkuðum vegna óvissu í alþjóðlegu efnahagslífi hefur leitt þess að hlutabréfasjóðir, innlendir sem erlendir, hafa skilað tapi að undanförnu. Fjárfestingasjóðurinn Spakur Invest, sem fjárfestir einkum í bandarískum hlutabréfum, státaði af skástu ávöxtun allra innlendra hlutabréfasjóða sem fjárfesta aðeins erlendis. Ávöxtun sjóðanna frá áramótum var neikvæð um 13 til 31 prósent. Á sama tíma lækkaði íslenska úrvalsvísitalan um 27 prósent. Innherji 26.10.2022 11:00
Skuldabréfasjóðir færa niður eignir um milljarða vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Stærstu skuldabréfasjóðir landsins, sem eru opnir öllum fjárfestum og margir hverjir með stórt hlutfall eignasafnsins bundið í íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum, hafa nú þegar fært niður virði eigna sinna um marga milljarða króna eftir að fjármálaráðherra boðaði aðgerðir til að slíta ÍL-sjóði, samkvæmt greiningu Innherja. Mestu munar um tæplega fimm prósenta gengislækkun 20 milljarða ríkisskuldabréfasjóðs í stýringu Íslandssjóða í einu vetfangi sem þýddi niðurfærslu á virði eigna hans um meira en 900 milljónir. Innherji 26.10.2022 08:15
Selur hlut sinn í Orkufélaginu fyrir tæplega þrjá milljarða SKEL hefur samþykkt kauptilboð frá færeysku félagi í allan 48,3 prósenta hlut íslenska fjárfestingafélagsins í S/P Orkufélaginu fyrir jafnvirði um 2,8 milljarða króna. Orkufélagið er eignarhaldsfélag utan um P/F Magn sem starfar í Færeyjum. Innherji 25.10.2022 16:52
Ráðherra „mótmælir harðlega“ að slit á ÍL-sjóði líkist greiðslufalli ríkissjóðs Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist „mótmæla harðlega“ þeirri skoðun sem stjórnarmaður í lífeyrissjóði hefur sett fram að ef ÍL-sjóður, áður gamli Íbúðalánasjóðurinn, verði settur í slitameðferð jafngildi það greiðslufalli ríkissjóðs sem er í ríkisábyrgð fyrir skuldbindingum sjóðsins. Innherji 25.10.2022 08:36
Spá því að hagnaður bankanna minnki talsvert þrátt fyrir auknar vaxtatekjur Útlit er fyrir að afkoma stóru bankanna tveggja sem skráðir eru á hlutabréfamarkað muni dragast umtalsvert saman á þriðja ársfjórðungi eða um 16 til 29 prósent. Samdrátturinn mun eiga sér stað þrátt fyrir að vaxtatekjur muni aukast verulega vegna hærra vaxtastigs og aukinna útlána. Innherji 25.10.2022 07:00
Verðið á íbúðabréfum fellur um 16 prósent vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Verðið á íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum lækkaði verulega á markaði í morgun í fyrstu viðskiptum sem hafa átt sér stað með bréfin, sem eru á sérstökum athugunarlista Kauphallarinnar, eftir að fjármálaráðherra boðaði tillögur um hvernig megi leysa upp ÍL-sjóð síðasta fimmtudag. Miðað við verð bréfanna í viðskiptunum, sem voru aðeins upp á samtals 300 þúsund krónur, má áætla að markaðsvirði útistandandi íbúðabréfa hafi lækkað um samtals meira en 100 milljarða króna. Innherji 24.10.2022 11:49
„Hæpið“ að eignaréttindi kröfuhafa séu skert verði ÍL-sjóður settur í þrot Sérstök lög sem hefðu það að markmiði að knýja fram skiptameðferð á ÍL-sjóði, þar sem í engu væri samt haggað ríkisábyrgð á eftirstöðvum skulda sjóðsins, er mun „vægari“ aðgerð en það svigrúm sem löggjafanum hefur verið heimilað af dómstólum til að setja notkun og ráðstöfun eiga skorður vegna almannahagsmuna. Innherji 24.10.2022 06:00