Kauphöllin
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 78 ›
Reginn gerir yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar fasteignafélags Stjórn Regins hf. hefur ákveðið að leggja fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar fasteignafélags hf. Tilboðið verður að fullu fjármagnað með útgáfu nýs hlutafjar í Regin að fenginni heimild hlutahafafundar. Viðskipti innlent 8.6.2023 06:42
Gámasiglingar Eimskips eru „langtum arðsamari“ og vaxið á kostnað miðlunar Stærri hluti af starfsemi Eimskips hverfist nú um gámasiglingar en fyrir Covid-19 heimsfaraldurinn. Gámasiglingarnar eru „langtum arðsamari“ heldur en flutningsmiðlunin, að sögn hlutabréfagreinanda. Innherji 7.6.2023 08:09
Hagnaður Hvals minnkaði verulega í fyrra og var um 900 milljónir Hagnaður Hvals, sem er stýrt af Kristjáni Loftssyni og á meðal annars stórar hlutabréfastöður í Arion banka og Alvotech, dróst saman um nærri 75 prósent á síðasta fjárhagsári hlutafélagsins samtímis erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum og nam rúmlega 890 milljónum króna. Félagið hóf hvalveiðar á ný um mitt árið í fyrra og átti frystar hvalaafurðir sem voru metnar á um 2,6 milljarða undir lok ársins. Innherji 6.6.2023 09:04
Verðmat VÍS hækkar í ljósi hærra vaxtastigs og stærra eignasafns Jakobsson Capital verðmetur tryggingafélagið VÍS níu prósentum hærra en sem nemur markaðsgengi um þessar mundir. Samsett hlutfall félagsins var hátt á fyrsta ársfjórðungi eða 110,4 prósent. Það þýðir að iðgjöld stóðu ekki undir tjónum og rekstrarkostnaði. Tvö stór tjón leiddu til þess að hlutfallið var fjórum prósentum stigum hærra en ella og kostnaður við forstjóraskipti og samrunaviðræður við Fossa jafngildir tveimur prósentustigum í samsettu hlutfalli, segir hlutabréfagreiningu. Innherji 5.6.2023 14:03
Hvalur keypti fimm prósent af heildarstærð útboðs Hampiðjunnar Fjárfestingafélagið Hvalur, langsamlega stærsti hluthafi Hampiðjunnar, keypti nærri því fimm prósent af heildarstærð hlutafjárútboðs félagsins sem lauk síðastliðinn föstudag í tengslum við skráningu á Aðalmarkað í Kauphöllinni. Þannig fékk Hvalur úthlutað rúmlega 4,2 milljónum hluta að nafnvirði í útboðinu og nemur kaupverð bréfanna samtals nærri 550 milljónum króna. Innherji 5.6.2023 10:52
Oculis klárar hlutafjárútboð upp á nærri sex milljarða Augnlyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem var stofnað af tveimur íslenskum prófessorum á Íslandi fyrir tuttugu árum, kláraði í gærkvöldi hlutafjárútboð upp á samanlagt 40,25 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 5,7 milljarða króna. Hið nýja hlutafé var selt á rúmlega fjögurra prósenta lægra gengi, eða 11,5 dalir á hlut, en nam síðasta dagslokagengi félagsins fyrir útboðið. Innherji 1.6.2023 08:28
Sjóvá seldi hlutabréf fyrir 2,3 milljarða en bætti við sig í Alvotech Sjóva seldi hlutabréf fyrir um 2,3 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi og bætti við sig stuttum ríkisskuldabréfum. Forstöðumaður fjárfestinga hjá tryggingafélaginu sagði að á undanförnum tveimur árum hafi Sjóvá verið að undirbúa eignasafnið fyrir hærra vaxtastig og meiri verðbólgu. Tryggingafélagið keypti í Alvotech fyrir rúmlega 600 milljónir króna á síðasta ársfjórðungi. Innherji 31.5.2023 17:59
Erfiðast að hafa ekki getað sagt bless við fólkið hjá Festi Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, forstöðukona markaðssviðs N1, segir erfiðast við nýtilkomin starfslok hjá Festi að hafa ekki getað sagt bless við fólkið sitt. Festi tilkynnti um sjö uppsagnir til Kauphallar í gær. Viðskipti innlent 31.5.2023 15:33
Fjárfestar selt í hlutabréfasjóðum fyrir nærri fjóra milljarða frá áramótum Almennir innlendir verðbréfasjóðir hafa horft upp á nettó útflæði í hverjum mánuði frá áramótum samhliða áframhaldandi erfiðum aðstæðum á mörkuðum. Fjárfestar hafa þannig minnkað stöðu sína í hlutabréfasjóðum um 3,6 milljarða á fyrstu fjórum mánuðum ársins sem kemur til viðbótar við útflæði úr slíkum sjóðum upp á samtals átta milljarða á öllu árinu 2022. Innherji 31.5.2023 08:55
Oculis að sækja um átta milljarða króna í nýtt hlutafé Augnlyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem var stofnað fyrir tuttugu árum af tveimur íslenskum prófessorum við Háskóla Íslands og Landspítalann, hefur ákveðið að efna til hlutafjárútboðs sem er beint að innlendum og erlendum fjárfestum en ætlunin er að sækja samtals um átta milljarða króna miðað við núverandi markaðsgengi. Hlutabréfaverð Oculis hefur hækkað um 20 prósent frá því að það var skráð í kauphöll Nasdaq í New York fyrr á árinu en niðurstöður nýlegra verðmata gefa til kynna að félagið sé verulega undirverðlagt á markaði. Innherji 30.5.2023 13:37
Bein útsending: Kynningarfundur vegna hlutafjárútboðs Hampiðjunnar Opinn kynningarfundur vegna hlutafjárútboðs Hampiðjunnar fer fram í dag þar sem stjórnendur munu kynna félagið og sögu þess ásamt því að farið verður yfir fyrirkomulag hlutafjárútboðsins. Viðskipti innlent 30.5.2023 09:31
„Alveg klárt“ að Aztiq hefur fjárhagsstyrk og vilja til að styðja við Alvotech Of snemmt er slá því föstu hvort Alvotech þurfi yfir höfuð að sækja sér viðbótar fjármagn á þessu ári til að styðja við reksturinn, að sögn forstjóra og aðaleigenda félagsins. Í ítarlegu viðtali við Innherja segir hann að ef ráðist verður í „mjög lítið“ hlutafjárútboð vegna mögulegrar seinkunar á því að komast inn á Bandaríkjamarkað þurfi enginn að „velkjast í vafa“ um getu Aztiq, fjárfestingafélags Róberts Wessman, til að leggja til þá fjármuni sem þar þyrfti. FDA hefur fallist á að eiga fund með Alvotech eftir ríflega tvær vikur til að fara yfir svör félagsins við þeim athugasemdum eftirlitið gerði við framleiðsluaðstöðu þess. Innherji 30.5.2023 08:34
Mikil áskorun að ná 3,5 prósenta raunávöxtun með verðbólgu í hæstu hæðum Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) var með lökustu raunávöxtunina meðal stærstu sjóða landsins á árinu 2022 sem einkenndist af afar krefjandi aðstæðum á flestum eignamörkuðum. Sé litið til síðustu tíu ára hefur árleg raunávöxtun sömu lífeyrissjóða að jafnaði verið á bilinu 4,5 til 5,3 prósent en stjórnarformaður LSR varar við því að krafa um að sjóðirnir nái að skila ávöxtun yfir 3,5 prósenta viðmiðinu verði veruleg áskorun þegar verðbólgan er í hæstu hæðum. Innherji 29.5.2023 16:31
Lækkar verðmat á Alvotech vegna óvissu um innkomu á Bandaríkjamarkað Ólíklegt er að Alvotech takist að standa við áður yfirlýst áform um að hefja sölu á sínu stærsta lyfi í Bandaríkjunum um mitt þetta ár heldur má ætla að FDA muni ekki samþykkja umsókn félagsins um markaðsleyfi fyrr en í desember. Þær tafir valda því að greinendur bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley hafa lækkað verðmat sitt á íslenska líftæknifyrirtækinu um 40 prósent. Innherji 28.5.2023 14:20
Erlendir fjárfestar ekki átt stærri hlut í Íslandsbanka frá skráningu Á sama tíma og Capital Group lauk við sölu á eftirstandandi hlutum sínum í Marel fyrr í þessum mánuði hefur bandaríski sjóðastýringarrisinn haldið áfram að stækka við stöðu sína í Íslandsbanka en samanlagður eignarhlutur erlendra sjóða í bankanum er nú farinn að nálgast tíu prósent. Samkvæmt nýju verðmati er bankinn metinn á liðlega 19 prósent yfir núverandi markaðsgengi. Innherji 26.5.2023 15:37
Samlegð af samruna VÍS og Fossa nemi allt að 750 milljónum á ári Áætlað er að samlegð af samruna VÍS og Fossum fjárfestingabanka nemi 650-750 milljónum króna á ári og komi inn að fulla eftir árið 2025. Gert er ráð fyrir að langtíma arðsemismarkmið hækki úr 1,5 krónum á hlut í yfir 2,5 krónur á hlut vegna samlegðar og möguleika til að hraða uppbyggingu fjárfestingarbanka og eignastýringar, samkvæmt áætlunum stjórnenda félaganna. Innherji 25.5.2023 12:58
Peningastefnunefnd ætti að funda oftar í ljósi krefjandi aðstæðna Markaðurinn brást við meiri stýrivaxtahækkun en væntingar stóðu til með því að ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa hækkaði og hlutabréf lækkuðu í verði. Verðbólguálag til skemmri tíma hækkaði um 20-30 punkta. Sérfræðingur á markaði bendir á að mögulega hafi stýrivaxtahækkunin verið hærri í ljósi þess hve langt er í næsta fund peningastefnunefndar og gagnrýnir að peningastefnunefnd skuli ekki funda mánaðarlega í ljósi krefjandi aðstæðna í hagkerfinu. Innherji 24.5.2023 18:39
Alvotech og Marel halda markaðnum niðri en hækkanir víða erlendis Erfiðleikar hjá tveimur stærstu félögunum í Kauphöllinni, Alvotech og Marel, hafa vegið þungt í þeim verðlækkunum sem hafa orðið á íslenska hlutabréfamarkaðnum frá áramótum á sama tíma og flestar erlendar hlutabréfavísitölur hafa hækkað myndarlega. Á meðan Seðlabanka Íslands hefur ekki tekist að ná böndum á háum verðbólguvæntingum eru merki um hagfelldari verðbólguþróun beggja vegna Atlantshafsins. Það hefur ýtt undir væntingar um meiri slaka í peningastefnu stærstu seðlabanka heims og stuðlað að hækkun á heimsvísitölu hlutabréfa, að sögn sjóðstjóra. Innherji 23.5.2023 11:54
Marel réttir úr kútnum við brotthvarf sjóðastýringarrisans Capital Group Bandaríski sjóðastýringarrisinn Capital Group, sem var lengi stærsti erlendi fjárfestirinn í Marel, hefur á liðlega 20 mánuðum losað um alla hluti sína en sjóðir félagsins voru um tíma með samanlagt um 40 milljarða króna hlutabréfastöðu í íslenska fyrirtækinu. Hlutabréfaverð Marels hækkaði skarpt undir lok vikunnar vegna væntinga um að brotthvarf Capital Group úr hluthafahópnum myndi létta á stöðugu framboði bréfa til sölu í félaginu. Innherji 21.5.2023 14:37
Vogunarsjóðurinn Algildi kominn með nærri sex prósenta hlut í Sýn Vogunarsjóðurinn Algildi er kominn í hóp stærri hluthafa fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækisins Sýnar eftir að hafa byggt upp að undanförnu tæplega sex prósenta stöðu í félaginu. Hlutabréfaverð Sýnar, sem fór mest niður um liðlega 17 prósent á skömmum tíma fyrr í þessum mánuði, hefur rétt lítillega úr kútnum á síðustu dögum. Innherji 20.5.2023 11:45
„Ýmsar sviðsmyndir“ til skoðunar með frekari fjármögnun Alvotech Hlutabréfaverð Alvotech lækkaði mest um 15 prósent í viðskiptum í Kauphöllinni í dag eftir að tilgreint var að félagið væri að undirbúa að sækja sér aukið fjármagn vegna óvissu um samþykki markaðsleyfis í Bandaríkjunum fyrir sitt stærsta lyf en sú verðlækkun hafði gengið til baka að stórum hluta við lokun markaða. Félagið segist ekki geta á þessari stundu sagt til hvort ætlunin sé að leita mögulega til íslenskra fjárfesta eftir auknu fjármagni, en fjórir mánuðir eru síðan Alvotech lauk 20 milljarða hlutafjárútboði hér á landi þar sem þátttakendur voru einkum lífeyrissjóðir og hlutabréfasjóðir. Innherji 19.5.2023 17:29
Alvotech skoðar að sækja sér aukið fjármagn Líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, sem bíður enn svara frá Lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA) vegna umsóknar um markaðsleyfi fyrir sitt stærsta lyf í Bandaríkjunum, er um þessar mundir að skoða möguleika á því að sækja sér aukið fjármagn í reksturinn. Félagið átti um 116 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 16 milljarða íslenskra króna, í handbært fé í lok fyrsta fjórðungs en hlutabréfaverð þess hefur lækkað um 35 prósent eftir að ljóst varð um miðjan síðasta mánuð að FDA gerði enn athugasemdir við framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins. Innherji 19.5.2023 09:07
Rekstur Ölgerðarinnar mun þyngjast á næsta ári og aðstæður minna á 2019 Eftir „frábæra“ afkomu Ölgerðarinnar í fyrra, sem má einkum rekja til aukinnar sölu ásamt fjárfestingu í sjálfvirknivæðingu og meiri skilvirkni í rekstri, má búast við að reksturinn verði þyngri á næsta ári, að sögn hlutabréfagreinenda. Rekstrarumhverfi Ölgerðarinnar mun minna margt á aðstæður árið 2019 þegar vöxtur einkaneyslu var hægur eftir ferðamönnum hafði fjölgað mikið á árunum á undan. Á þeim tíma stóð rekstrarhagnaður félagsins í stað og tekjuvöxtur var óverulegur að raunvirði. Innherji 16.5.2023 13:52
Of seint í (frumútboðs)rassinn gripið Heimamarkaðurinn hefur sannað sig sem öflugur bakhjarl íslenskra vaxtarfyrirtækja og stökkpallur fyrir þau á alþjóðlega markaði. Hefur þar munað miklu um stuðning íslensku lífeyrissjóðanna og getu þeirra til að fjárfesta í hlutabréfum til langs tíma. Við þurfum að halda í þetta og gera enn betur. Umræðan 15.5.2023 13:52
Icelandair „álitlegt arðgreiðslufélag“ og metið langt yfir markaðsgengi Verðmatsgengi Icelandair samkvæmt greiningu Jakobsson Capital stendur í 3,07 krónum á hlut og er ríflega 60 prósentum hærra en markaðsgengi hlutabréfa flugfélagsins í dag. Flugfélag hefur breyst í „mjög álitlegt arðgreiðslufélag“ miðað við núverandi markaðsgengi. Innherji 12.5.2023 14:49
Ölgerðin vildi stækka með yfirtöku á fyrirtækjarisanum Veritas Ölgerðin, stærsti drykkjarvöruframleiðandi landsins, var í hópi þeirra fjárfesta sem sýndu áhuga á að kaupa fyrirtækjasamstæðuna Veritas fyrr árinu. Óvissa í efnahagslífinu, einkum vegna hækkandi vaxta, þýddi hins vegar að talsverðu munaði í væntingum mögulegra kaupenda og seljenda um verðmiða á félaginu og var söluferlið því sett ótímabundið á ís. Innherji 11.5.2023 16:01
Uppgjör smásala sýna að þeir eru ekki að maka krókinn á tímum verðbólgu Verðmatsgengi Haga er 14 prósentum yfir markaðsgengi þrátt fyrir nokkra lækkun á matinu sem gert var eftir að verslunarsamsteypan birti síðasta uppgjör. Hlutabréfagreinandi segir að miðað við fréttaflutning mætta halda smásölufyrirtæki væru að svíngræða á tímum verðbólgu en uppgjör sýni að svo sé ekki. Innherji 10.5.2023 15:45
Þegar „órólega deildin“ gerði byltingu í stærsta fjárfestingafélagi landsins Eftir að feðgarnir Árni Oddur og Þórður Magnússon hafa farið með tögl og hagldir í Eyri Invest, kjölfestufjárfesti í Marel sem hefur löngum verið verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni, allt frá stofnun um síðustu aldamót er fjárfestingafélagið nú á tímamótum með uppstokkun í stjórn og brotthvarfi Þórðar sem stjórnarformanns til meira en tuttugu ára. Umdeild fjármögnun Eyris undir lok síðasta árs þegar styrkja þurfti fjárhagsstöðuna reyndist afdrifarík og jók mjög stuðning hluthafa við sjónarmið minni fjárfesta í eigendahópnum, stundum nefndir „órólega deildin“, um að tímabært væri að gera gagngerar breytingar á starfsemi stærsta fjárfestingafélags landsins. Innherji 10.5.2023 06:00
Forstjórarnir héldu báðir titlum sínum við samrunann Guðný Helga Herbertsdóttir og Haraldur Þórðarson verða bæði áfram forstjórar eftir sameiningu Vátryggingafélags Íslands (VÍS) og Fossa. Viðskipti innlent 5.5.2023 21:46
Ekki erfið ákvörðun að hefja viðræður um sameiningu við Kviku Hluti af stefnumótun Íslandsbanka sem samþykkt var í mars var að horfa til vaxtar. Skoða átti tækifæri á sviði trygginga og í eignastýringu. Bankastjóri Íslandsbanka sagði að Kvika ræki tryggingafélag og væri öflugt á sviði eignastýringar. „Það var því ekki erfið ákvörðun að hefja viðræður um sameiningu,“ en Íslandsbanki á ekki tryggingafélag. Innherji 5.5.2023 16:30