Tryggðu þér áskrift fyrir Kryddsíldina Hin árlega Kryddsíld verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og Bylgjunni að venju. Þátturinn hefst klukkan 14 en Edda Andrésdóttir, Erla Björg Gunnarsdóttir og Snorri Másson leiða Kryddsíldina eftir þetta viðburðaríka ár. 31.12.2021 11:45
Stefnir í tæplega þrjátíu daga sóttkví: „Ég vona allavega að ég losni á nýju ári“ Bjarni Már Magnússon, prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík, hefur verið í sóttkví í rúma tuttugu daga samfleytt. Sóttkvíin hófst þann 10. desember, þegar dóttir hans smitaðist af kórónuveirunni, en börnin hans hafa svo smitast koll af kolli. Sóttkvíin lengist því með hverju smiti en Bjarni hefur sjálfur ekki smitast af veirunni. 31.12.2021 11:13
Nýtt met: 1.557 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Í gær greindist 1.601 smitaður af Covid-19 og þar af greindust 44 á landamærunum. Þetta er enn eitt metið og nánast tvöföldun frá því í fyrradag þegar 839 greindust smitaðir. 31.12.2021 09:40
Varað við hættu á gróðureldum: Vonskuveður á nýársdag Vonskuveður verður nánast á landinu öllu á morgun, nýársdag, en gular viðvaranir taka gildi í öllum landshlutum fyrir hádegi á morgun. Þá hefur slökkviliðið varað við gróðureldum en Brunavarnir Árnessýslu sendu meðal annars frá sér tilkynningu þess efnis fyrr í dag. 31.12.2021 09:15
Þúsundir flýja heimili sín vegna gróðurelda Rúmlega þrjátíu þúsund manns hafa flúið heimili sín í Colorado í Bandaríkjunum vegna gróðurelda. Þurrt hefur verið í ríkinu í haust og í vetur og mikill vindur er á svæðinu. Eldurinn breiðist því hratt út en talið er að eldsupptök megi rekja til rafmagnsmastra, sem féllu um koll í ofsaveðrinu. 31.12.2021 08:24
Slökkviliðið biður fólk um að hætta að kveikja í ruslagámum Höfuðborgarbúar virðast hafa vakið lengi fram eftir í gærnótt ef marka má dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meðal verkefna lögreglunnar voru gróðureldar á Seltjarnarnesi, sem tilkynnt var um rétt eftir miðnætti í nótt. Eldurinn var minniháttar og tókst lögreglu fljótlega að ná tökum á eldinum. Slökkviliðið telur að flugeldar hafi komið við sögu. 31.12.2021 07:31
Gamlársdagur: Hvar er opið og hversu lengi? Hátíðarnar eru annasamur tími fyrir flesta landsmenn og gamlársdagur er þar engin undantekning. Flugeldakaupin eru mörgum mikilvæg og aðrir telja ómissandi að drekka bjór með Skaupinu. Eins og gengur og gerist geta hlutir gleymst þrátt fyrir góðan undirbúning og þá er gott að vita hvar opið er á gamlársdag. 31.12.2021 07:27
Kári vill fimm daga einangrun Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur skynsamlegast að stytta einangrun Covid-smitaðra niður í fimm daga. Kórónuveiran hafi dreifst hratt um samfélagið og óráðlegt sé að halda fólki í einangrun í lengri tíma. Reglunum var breytt í dag en nú þurfa Covid-smitaðir aðeins að vera í sjö daga einangrun. 31.12.2021 00:01
Krummi og Hermann biðja Sölva líka um að birta ekki viðtölin Hermann Hreiðarsson knattspyrnukappi og Krummi í Mínus hafa óskað eftir því að viðtal sem Sölvi Tryggvason tók við þá fyrr á árinu verði ekki birt. Fréttastofa greindi frá því fyrr í kvöld að Bogi Ágústsson sjónvarpsmaður hefði óskað eftir því sama. 30.12.2021 23:05
Bað um að viðtal Sölva við sig yrði ekki birt Bogi Ágústsson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu, hefur óskað eftir því að viðtal sem Sölvi Tryggvason tók við hann fyrr á árinu verði ekki birt. Sölvi hyggst fara með hlaðvarp sitt af stað að nýju innan skamms, en hann dró sig úr sviðsljósinu fyrr á þessu ári þegar fram komu ásakanir á hendur Sölva um að hafa framið kynferðisbrot gegn tveimur konum. 30.12.2021 21:33