Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir áminningu sem Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hlaut árið 2022 hafa snúið að nokkrum tilvikum um tjáningu hans, sem nái aftur til ársins 2017. Sigríður telur sér ekki heimilt að upplýsa nánar um þessi tilvik. Hún segir kæru á hendur Helga frá hjálparsamtökum hælisleitenda ekki tilefni þess að hún vísar máli Helga nú til ráðherra. 30.7.2024 13:45
Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Vararíkissaksóknari furðar sig á ósk yfirmanns síns um að dómsmálaráðherra taki mál hans til skoðunar, vegna ummæla sem hann lét falla í fjölmiðlum. Hann viðurkennir að hann hefði getað orðað hlutina öðruvísi, en telur ummælin ekki hafa verið yfir strikið. 30.7.2024 12:07
„Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Formaður VR hyggst boða til mótmælaaðgerða með haustinu, og krefjast þess að boðað verði til kosninga. Hann segir stjórnmálin, bankakerfið og fyrirtækin hafa brugðist fólkinu í landinu. Ekki sé hægt að sitja aðgerðarlaus fram að endurskoðun kjarasamninga 29.7.2024 21:01
Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Mælingar Veðurstofunnar benda til þess að Mýrdalsjökull sé tekinn að jafna sig eftir hlaup. Enn er mikið vatn í ám þar sem ferðafólk hefur lent í vandræðum, þrátt fyrir að dregið hafi úr úrkomu. 29.7.2024 12:19
Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Kvörtunum og athugasemdum vegna dyrabjöllumyndavéla mun fjölga á næstu árum, að mati fulltrúa Persónuverndar. Varað er við því að fólk birti myndefni úr slíkum myndavélum á samfélagsmiðlum til að lýsa eftir innbrotsþjófum. Slíkt efni eigi frekar heima á borði lögreglu. 28.7.2024 23:31
Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Dómsmálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp sem myndi gera yfirvöldum kleift að svipta fólk alþjóðlegri vernd, gerist það uppvíst að alvarlegum afbrotum. Hún leggur frumvarpið fram í haust, en það myndi aðeins gilda um afbrot framin eftir að lögin taka gildi. 28.7.2024 09:18
Allt á fullri ferð á Húsavík um helgina Búist er við allt að fjögur þúsund gestum á Húsavík um helgina, þegar bæjarhátíðin Mærudagar fer fram. Karnivalstemning og tónlistarveisla verður meðal þess sem hátíðargestir fá að njóta á Húsavíkurbryggju. 26.7.2024 13:00
Ekki á því að yfirgefa Grindavík endanlega Þrátt fyrir að nýtt hættumat bendi til að miklar líkur séu á að hraun komi upp innan Grindavíkur á næstu vikum verður ráðist í framkvæmdir innan bæjarmarka eftir Verslunarmannahelgi. Brottfluttir íbúar eru bjartsýnir á að komast aftur heim. 25.7.2024 18:53
Trump hafi „misst kúlið“ í kjölfar ákvörðunar Bidens Sagan mun fara mjúkum höndum um Joe Biden og ákvörðun hans um að hætta við að sækjast eftir endurkjöri, að mati sérfræðinga um bandarísk stjórnmál. Kamala Harris varaforseti er langlíklegust til að taka við keflinu af forsetanum, en hún mun eiga á brattann að sækja gegn Trump. 22.7.2024 21:46
Málflutningur Viðskiptaráðs óásættanlegur Menntamálaráðherra segir málflutning Viðskiptaráðs, um starfsfólk menntakerfisins óásættanlegan og hjákátlegan. Ráðið segir Kennarasamband Íslands hafa leitt málaflokkinn í öngstræti og hvetur stjórnvöld til að taka fyrir frekari afskipti sambandsins. 22.7.2024 12:00