Um helmingi dýrara að leigja hjá hagnaðardrifnum leigufélögum Leiguverð hjá hagnaðardrifnum leigufélögum er ríflega sextíu prósent hærra en hjá þeim óhagnaðardrifnu samkvæmt nýrri leiguvísitölu. Vísitalan byggir á nýrri leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem gefur mun betri mynd af leigumarkaðnum en áður. 18.1.2024 14:03
Fyrsta stig verðmætabjörgunar í gangi og næstu til skoðunar Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lýsir aðgerðum til að tryggja hita á húsum í Grindavíkurbæ sem stórri verðmætabjörgun. Áfram verður unnið að því í dag auk þess sem sérfræðingahópur á vegum almannavarna er að kortleggja sprungur og hættur í bænum. 17.1.2024 11:14
Ekki búandi í Grindavík næstu mánuði og jafnvel ár Gosinu við Grindavík virðist lokið en prófessor í jarðeðlisfræði segir viðbúið að svipaðir atburðir endurtaki sig á næstu mánuðum og jafnvel árum. Grindavík sé ekki öruggur staður á meðan. 16.1.2024 12:09
Sprungur að stækka og líkur á nýjum gosopum Þrátt fyrir að dregið hafi úr gosvirkni eru líkur á að ný gosop opnist innan Grindavíkur og sprungur eru að myndast í bænum. Deildarstjóri eldvirkni og jarðskjálfta segir mikla hættu til staðar á svæðinu þar í kring og óvissu um framhaldið. 15.1.2024 12:00
VG hafi varið ráðherra Sjálfstæðisflokksins vantrausti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ekki tímabært að tjá sig um boðaða vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra en bendir á að Vinstri Grænir hafi varið ráðherra Sjálfstæðisflokksins vantrausti þegar á það reyndi. 9.1.2024 13:46
Gos í Grímsvötnum líklega í vændum Búast má við gosi í Grímsvötnum á næstu dögum eða vikum að mati eldfjallafræðings. Fluglitakóði yfir eldstöðinni var færður á gult í gær vegna óvenjulegrar skjálftahrinu en gosmökkurinn gæti haft áhrif á flugumferð. 5.1.2024 12:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bjartsýni ríkir hjá hjá samninganefndum SA og ASÍ um yfirstandandi kjaraviðræður þar sem kallað er eftir þjóðarsátt. Hið opinbera og atvinnulífið þurfi að halda aftur af hækkunum svo hún náist. Formaður verkalýðsfélags segir að á 20 ára ferli hafi hann ekki séð annan eins samtakamátt. 3.1.2024 18:01
Skjálftinn líklega ekki merki um kvika sé að brjótast upp Tveir nokkuð stórir skjálftar riðu yfir suðvesturhorn landsins rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir þá líklega ekki til marks um að kvika sé að brjóta sér leið til yfirborðsins heldur afleiðing spennubreytinga á Reykjanesi. 3.1.2024 12:24
Vísar ásökun um vanhæfi á bug Orkumálastjóri segir gríðarlega mikilvægt að þingið nái að afgreiða frumvarp um orkuöryggi sem allra fyrst. Hún bendir framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins sem hefur sakað hana um vanhæfi á að beina áhyggjum sínum að stjórnmálamönnum. 2.1.2024 12:03
Bak við tjöldin: Mistök og hlátursköst Viðmælendur í hláturskasti, alls konar mistök og óþolandi tæknivesen. Við skyggnumst á bak við tjöldin hjá fréttastofunni í þessum síðasta annál ársins. 29.12.2023 07:06