Þingflokksformaður vill geta horft í spegil Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar virðast ekki útiloka stuðning við vantrauststillögu á hendur matvælaráðherra, komi hún fram. Bæjarstjóri segir hvalveiðibannið risastórt mál í huga Sjálfstæðismanna og gerir fastlega ráð fyrir því að tillagan verði lögð fram ef athugun leiðir í ljós að stjórnsýslulög hafi verið brotin. 29.8.2023 12:21
Lögreglumenn vilja nafnleynd vegna hótana Lögreglumenn kalla eftir nafnleynd við skýrslutökur og hafa áhyggjur því að meiri alvara sé á bak við hótanir við handtökur og yfirheyrslur. Stungið er á dekk, bílar rispaðir og nýlega var kveikt í bíl lögreglukonu fyrir utan heimili hennar. 22.8.2023 14:06
Ríkisstjórnin eins og þrír bátar sem stefna í ólíka átt Þrjár ríkisstjórnir virðast starfandi í landinu að mati prófessors í stjórnmálafræði. Hann segir óskýrleika í kringum nýju útlendingalögin enn eina birtingarmynd þess að flokkarnir eigi erfitt með að koma sér saman um stór málefni. 18.8.2023 20:33
„Svona alvarleg lögbrot þurfa að hafa afleiðingar“ Alvarleg lögbrot við Íslandsbankaútboðið þurfa að hafa afleiðingar, segir formaður VR. Stjórn stéttarfélagsins hefur ákeðið að slíta milljarða viðskiptum við bankann og aðrir möguleikar en flutningur í annan banka eru til skoðunar. 18.8.2023 12:59
Skógareldar á Tenerife: „Þetta er búið að breiðast svo hratt út í dag“ Stjórnlausir skógareldar loga á Tenerife og Íslendingur á eyjunni segist fá illt í hjartað þegar hann hugsar til bænda og íbúa á svæðinu sem brennur. Fólk í „ferðamannabúbblunni“ á suðurhluta Tenerife verði þó ekki vart við ástandið. 17.8.2023 19:11
Píeta vill opna gjaldfrjálsa þjónustu í öllum landshlutum Píeta-samtökin stefna að því að opna úrræði með gjaldfrjálsri þjónustu í hverjum landshluta fyrir þá sem glíma við sjálfsvígshugsanir. Nýtt Píeta-skjól verður opnað á Húsavík í dag en um sjö hundruð leita til samtakanna á hverju ári. 17.8.2023 12:49
Hádegisfréttir Bylgjunnar Landris í miðri Torfajökulsöskju skýrist líklega af kvikusöfnun. Ekki eru merki um að kvikan sé að færast nær yfirborðinu en eldfjallafræðingur segir þetta merki um að eldstöðin sé að vakna. 16.8.2023 11:41
Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ætlar að óska eftir fundi með dómsmálaráðherra vegna flóttafólks sem búið er að þjónustusvipta og er heimilislaust. Hún segir sveitarfélögin skyldug til að þjónusta fólk en vill fá samtal. 14.8.2023 11:42
Launahækkanir þurfi hið minnsta að vera í samræmi við verðbólgutölur Sækja þarf launahækkanir sem eru hið minnsta í samræmi við verðbólgutölur í næstu kjarasamningum að sögn formanns VR. Hann segir mikla samstöðu að skapast fyrir því að sækja mjög kröftuglega fram í komandi viðræðum. Kaupmáttur dróst saman um tæp fimm prósent á fyrstu mánuðum ársins og vaxtagjöld heimilanna jukust um sextíu prósent milli ára. 14.6.2023 12:01
Upphaf hvalveiðivertíðar í uppnámi Umhverfisráðuneytið áformar að vísa frá beiðni Hvals hf. um undanþágu frá starfsleyfi. Fyrirtækið sótti um undanþáguna vegna óvissu um að veiðar gætu hafist á hefðbundnum tíma. Vertíðinni gæti því seinkað í ár. 13.6.2023 15:33