Bæði lið áfram eftir magnaðan sigur Kóreumanna Suður-Kórea afrekaði það að vinna Portúgal, 2-1, í lokaumferð H-riðils á HM karla í fótbolta og það dugði liðinu til að komast í 16-liða úrslit á fleiri skoruðum mörkum en Úrúgvæ. 2.12.2022 16:51
Finnur útskýrir fjarveru sína Körfuboltaþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson hefur nú greint frá ástæðu þess að hann er kominn í leyfi frá störfum sínum hjá Íslandsmeisturum Vals. 2.12.2022 16:30
Gerðu stólpagrín að Þjóðverjum í sjónvarpinu Katarskir sjónvarpsmenn stóðust ekki mátið og gerðu stólpagrín að Þjóðverjum eftir að Þýskaland féll úr keppni á HM karla í fótbolta í Katar í gær. 2.12.2022 15:30
Finnur ekki með Val af fjölskylduástæðum Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í körfubolta, verður ekki á hliðarlínunni í kvöld þegar liðið tekur á móti Keflavík í stórleik í Subway-deild karla. 2.12.2022 14:15
Fattaði að hann væri ekki nógu góður leikmaður og kom Stjörnunni á flug Hrannar Guðmundsson segist ekki geta ímyndað sér betri þjálfarakennslu en hann fékk við störf sín hjá ÍR og Aftureldingu, áður en hann tók í fyrsta sinn við sem aðalþjálfari kvennaliðs. Hann hefur stýrt Stjörnunni upp á himininn á sínu fyrsta ári. 2.12.2022 13:31
Dómarar fúlir út í Fótbolta.net og mótið blásið af Félag deildardómara (FDD) í fótbolta hefur ákveðið að slíta samstarfi sínu við Fótbolta.net varðandi umsjón dómgæslu á hinu árlega Fótbolta.net-móti, vegna óánægju með umfjöllun um dómara á vegum miðilsins. 2.12.2022 08:01
Þjóðverjar á leið heim þrátt fyrir sigur gegn Kosta Ríka Þýskaland er úr leik á heimsmeistaramótinu í Katar þrátt fyrir sigur á Kosta Ríka í frábærum leik í kvöld. Þjóðverjar gerðu sitt en þar sem Spánn tapaði á sama tíma fyrir Japan þá falla Þjóðverjar úr keppni með slakari markatölu en Spánverjar. 1.12.2022 21:00
Belgar úr leik eftir klúður Lukaku Króatía, silfurlið síðasta HM, komst í dag áfram í 16-liða úrslit HM í fótbolta í Katar en sendi um leið Belga heim. Belgar fengu dauðafæri til að komast yfir í seinni hálfleiknum. 1.12.2022 16:52
Loksins endanleg niðurstaða í máli Tindastóls og Hauka Áfrýjunardómstóll KKÍ hefur staðfest úrskurð aga- og úrskurðarnefndar KKÍ í málinu sem varðar bikarleik Tindastóls og Hauka í körfubolta karla. 1.12.2022 15:39
Frakkar skiptu yfir í auglýsingar og héldu að þeir hefðu gert jafntefli Sjónvarpsáhorfendur í Frakklandi héldu eflaust að sínir menn í franska landsliðinu hefðu farið taplausir í gegnum riðlakeppnina á HM í fótbolta, vegna afglapa í útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar TF1. 1.12.2022 14:01