Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Ég hef alltaf haft hjarta fyrir Foreldrahúsi,“ segir Sædís Ósk Harðardóttir. Til stendur að loka starfseminni þann 1. maí og stendur Sædís nú fyrir undirskriftarlista til að hvetja ráðamenn í að fjármagna starfsemina. Framkvæmdastjóri Foreldrahúss segir mennta- og barnamálaráðherra of upptekna til að funda með þeim. 19.4.2026 11:28
„Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, fráfarandi oddviti Viðreisnar í Reykjavík, hefur samþykkt að vera sveitarstjóraefni L-lista framfara í Þingeyjarsveit. 19.4.2026 10:10
Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Að minnsta kosti sex létust eftir að maður hóf skothríð í höfuðborg Úkraínu í gær. Hann skaut að fólki úti á götu og tók síðan gísla í matvöruverslun. 19.4.2026 10:04
Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Framboðslistar Miðflokksins í fjórum sveitarfélögum hafa gefið út að þeir styðji fjölbreytileikann. Yfirlýsingarnar koma í kjölfar orða varaformanns flokksins sem líkti flöggun regnbogafánans við „hugmyndafræðilega kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni“. 18.4.2026 15:16
„Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Uppsögn Ragnars Freys Ingvarssonar, formanns Læknafélags Reykjavíkur, vakti ugg meðal starfsmanna sem sinna trúnaðarstörfum innan heilbrigðisþjónustunnar. Tólf formenn taka höndum saman til að mótmæla uppsögnum þeirra sem sinna trúnaðarstörfum í þágu heilbrigðisstarfsmanna. 18.4.2026 13:46
Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Fulltrúar Hvíta hússins funduðu með forstjóra gervigreindarfyrirtækisins Anthropic sem hefur lögsótt ákvörðun varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Anthropic hefur birt nýja gervigreind sem er umtalsvert öflugri en núverandi tækni. 18.4.2026 11:01
Gjaldskylda sett á við Egilshöll Gjaldskylda verður sett á bílastæði við Egilshöllina til að stýra umferðinni betur á svæðinu. Fyrstu þrjár klukkustundirnar verða gjaldfrjálsar. 18.4.2026 09:11
Hormússundi lokað á ný Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar. 18.4.2026 08:46
Hitinn nær upp í tíu stig Veðurstofa Íslands spáir hita þrjú til tíu stig í dag, heitast á suðausturlandi. Úrkomubakki liggur yfir Austurlandi, norðvestan kaldi eða strekkingur. 18.4.2026 07:36
Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í Hafnarfirði og var einn handtekinn. Sá hafði ráðist á leigubílstjóra og var hann vistaður í fangaklefa. 18.4.2026 07:15