Yfirtakan: Diamondmynxx setur upp gleraugun og spilar Beat Saber Diamondmynxx tekur yfir Twitch-rás GameTíví í kvöld, setur upp sýndarveruleikagleraugun og ætlar að spila Beat Saber. 12.5.2021 19:30
Vængir James Webb opnaðir á jörðinni í síðasta sinn Vísindamenn vinna nú að því að opna gyllta spegilvængi James Webb sjónaukans (JSWT) í síðast sinn á jörðu niðri. Næst þegar vængirnir opna verður það vonandi á sporbraut sólina. James Webb er stærsti og öflugasti geimsjónauki sem hefur verið smíðaður. 12.5.2021 16:02
Cheney vikið úr embætti: Ætlar áfram að beita sér gegn Trump Liz Cheney var í dag vikið úr embætti sínu sem þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Haldin var atkvæðagreiðsla hjá þingflokknum en úrslitin voru svo gott sem ljós löngu fyrir það, þar sem aðrir leiðtogar flokksins höfðu snúist gegn henni. 12.5.2021 14:44
Talibanar ná tökum á mikilvægu svæði nærri Kabúl Vígamenn Talibana hafa ná stjórn á Nerkh-héraði sem gæti nýst þeim sem gætt inn í Kabúl, höfuðborg landsins. Sveitir Talibana eru nú einungis um fjörutíu kílómetra frá höfuðborginni en héraðið hefur áður verið notað til að gera mannskæðar árásir á Kabúl. 12.5.2021 14:01
Bein útsending: Ísland ljóstengt Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Fjarskiptastjóður standa fyrir kynningarfundi í dag um árangur af landsátakinu Ísland ljóstengt á síðustu árum. Átakið er sagt hafa bylt forsendum búsetu og atvinnurekstrar í sveitum landsins. 12.5.2021 12:32
Óttast að nýtt stríð brjótist út á Gasa Embættismenn Sameinuðu þjóðanna óttast að nýtt stríð muni brjótast út á Gasa-ströndinni. Rúmlega þúsund eldflaugum hefur verið skotið frá Gasa að Ísrael og her Ísraels hefur gert hundruð loftárása á Gasa, sem er eitt þéttbýlasta svæði heimsins, og hafa minnst tvo fjölbýlishús verið jöfnuð við jörðu. 12.5.2021 12:10
Vilja nota gömul brot Arbery í vörn meintra morðingja hans Lögmenn feðganna Travis (35) og Gregory McMichael (65) hafa farið fram á að mega nota sakaskrá Ahmaud Arbery, 25 ára manns sem þeir eru sakaðir um að hafa myrt, í réttarhöldunum gegn þeim. Feðgarnir, auk William Bryan, eru hvítir og sátu fyrir Arbery, sem var svartur, þegar hann var úti að skokka og skutu hann til bana. 12.5.2021 11:00
Gjaldþrotakröfu NRA hafnað: Tilgangurinn sagður að komast undan málaferlum Beiðni samtaka skotvopnaeigenda í Bandaríkjunum, National Rifle Association, um gjaldþrot var hafnað af alríkisdómara í gær. Sá sagði beiðnina ekki hafa verið lagða fram í góðri trú, heldur væri markmiðið að komast undan lögsókn ríkissaksóknara New York. 12.5.2021 10:12
Áttatíu herþotur yfir Gasa Her Ísraels tilkynnti skömmu fyrir fjögur í dag að áttatíu herþotur yrðu notaðar til að gera árásir á um 150 skotmörk á Gasa-ströndinni, einu þéttbýlasta svæði heims. Markmiðið væri að gera útaf við getu Hamas-Samtakanna til að skjóta eldflaugum á Ísrael. 11.5.2021 16:20
Cheney líklega bolað úr embætti á morgun Þingkonan Liz Cheney, þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, stendur frammi fyrir atkvæðagreiðslu um að víkja henni úr þeirri stöðu hennar. Leiðtogar flokksins eru ósáttir við að hún neiti að dreifa „stóru lyginni“ svokölluðu um að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað Donald Trump, fyrrverandi forseta, sigur í kosningunum í fyrra. 11.5.2021 15:49