Talibanar skutu 22 hermenn sem gáfust upp Vígamenn Talibana tóku minnst 22 afganskra sérsveitarmenn af lífi eftir að þeir gáfust upp. Þetta var í bænum Dawlat Abad í síðasta mánuði en myndbönd af aftökunni hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. 13.7.2021 16:49
Demókratar flúðu Texas aftur Ríkisþingmenn Demókrataflokksins í Texas í Bandaríkjunum hafa flúið ríkið á nýjan leik til að reyna að koma í veg fyrir samþykkt umdeildra lagafrumvarpa í ríkinu. Athygli þeirra beinist sérstaklega að lagafrumvarpi sem mun gera fólki erfiðara að kjósa í Texas en einnig lögum um fósturrof og kennslu um rasisma í Bandaríkjunum. 13.7.2021 15:41
Skortir mat og lyf og verðbólga komin í 500 prósent Fjöldi mótmælenda á Kúbu eru sagðir hafa verið handteknir í kjölfar umfangsmikilla mótmæla gegn ríkisstjórn landsins á sunnudaginn. Myndbönd hafa sýnt öryggissveitir handtaka og berja mótmælendur sem kallað hafa eftir umbótum í eyríkinu. 13.7.2021 13:34
Læknar fordæma niðurfellingu aðgerða á Englandi Samtök breskra lækna segja þá ákvörðun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að fella niður allar sóttvarnaraðgerðir í Englandi vera óábyrga og hættulega. Johnson tilkynnti í síðustu viku að allar aðgerðir yrðu felldar niður þann 19. júlí og það þrátt fyrir að smituðum færi hratt fjölgandi á Englandi. 13.7.2021 11:38
Aldrei fleiri dáið í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi skráðu 780 dauðsföll vegna Covid-19 í gær. Það er mannskæðasti dagurinn frá upphafi faraldurs nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Alls greindust 24.702 smitaðir. 13.7.2021 10:50
FIFA 22 státar nýrri tækni sem virkar eingöngu í nýjustu kynslóðinni EA opinberaði á sunnudagskvöldið stiklu fyrir nýjasta leikinn í FIFA-seríunni vinsælu. FIFA 22 kemur út þann 1. október og mun Kylian Mbappé prýða hulstur leiksins. Leikurinn á að vera raunverulegri og betri en nokkru sinni áður. 13.7.2021 09:40
Klassíkin: Star Wars - Knights of the Old Republic Þeir eru fáir Star Wars leikirnir, sem hafa notið jafn mikilla vinsælda og Star Wars: Knights of the Old Republic (KotOR) og það er ekki að ástæðulausu. Ég er persónulega ekki frá því að KotOR sé besti Star Wars leikurinn og inniheldur eitt besta tölvuleikjatvist sögunnar. 13.7.2021 08:46
Þungvopnuð á hóteli skömmu fyrir stjörnuleikinn Lögregluþjónar í Denver í Bandaríkjunum handtóku á föstudaginn fjóra á hóteli í borginni og lögðu hald á fjölda skotvopna og hundruð byssukúlna. Stjörnuleikur hafnaboltadeildar Bandaríkjanna fer fram í Denver á þriðjudaginn og er talið mögulegt að fólkið hafi ætlað að fremja fjöldamorð. 11.7.2021 23:09
Cowell breytti reglunum fyrir níu ára óperusöngkonu Simon Cowell, dómari í hæfileikaþáttunum America‘s Got Talent, breytti reglum þáttanna í vikunni vegna níu ára óperusöngkonu. Victory Brinker kom síðast fram í síðasta þætti AGT og sló hún heldur betur í gegn. 11.7.2021 22:33
Hafður á réttargeðdeild vegna ráðaleysis Maður sem vistaður var á réttargeðdeild á Kleppi fyrir fjórum árum er þar enn, þó hann hafi upprunalega átt að vera þar í stuttan tíma. Þar er hann án nauðsynlegrar þjónustu en ástæðan er ráðaleysi innan heilbrigðiskerfisins. 11.7.2021 21:45