Bassaleikari ZZ Top er dáinn Dusty Hill, bassaleikari hljómsveitarinnar víðfrægu ZZ Top er dáinn. Hann var 72 ára gamall og lést í svefni á heimili sínu í Houston í Bandaríkjunum. 28.7.2021 21:23
Joey Jordison trommari Slipknot er dáinn Joey Jordison, trommari og einn stofnenda hljómsveitarinnar Slipknot, er dáinn. Hann var 46 ára gamall og er sagður hafa dáið friðsamlega í svefni. Dánarorsök liggur ekki fyrir. 27.7.2021 23:10
Lögregluþjónar þingsins segja sögu sína: „Þú munt deyja á hnjánum“ Yfirheyrslur hófust í dag fyrir rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings vegna árásarinnar á þinghúsið í Washington DC í byrjun árs. Lögregluþjónar sem voru á vakt þann dag voru þeir fyrstu sem mættu fyrir þingnefnd sem ætlað er að rannsaka árásina á þinghúsið þann dag. 27.7.2021 23:00
Seldu einstaka plötu „hataðasta manns internetsins“ Búið er að selja einstaka plötu Wu-Tang Clan sem var áður í eigu manns sem var á árum áður kallaður „hataðasti maður internetsins. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í dag að platan hefði verið seld en ekki fylgdi tilkynningunni hver hefði keypt plötuna né hver verðmiðinn hefði verið. 27.7.2021 22:49
Apple hagnaðist um 2,7 billjónir króna Nýtt ársjórðungsuppgjör tæknirisans Apple, verðmætasta fyrirtækis heims, fór töluvert fram úr væntingum fjárfesta. Tekjur voru mun hærri en talið var og jukust um meira en þriðjung á milli ára. Þá jókst sala iPhone-síma um nærri því helming. 27.7.2021 22:06
Draugabanarnir snúa aftur Draugabanarnir svara kallinu á nýjan leik. Sony birti í dag nýja stiklu fyrir kvikmyndina Ghostbusters: Afterlife, sem er framhald kvikmyndarinnar Ghostbusters II frá árinu 1989. 27.7.2021 20:53
Sex á sjúkrahúsi Þrír voru lagðir inn á sjúkrahús í dag, til viðbótar við þrjá sem voru þar fyrir. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar á Landspítala, segir engan vera á gjörgæslu. 27.7.2021 19:58
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við ítarlega yfir stöðuna í kórónuveirufaraldrinum en aldrei hafa fleiri greinst smitaðir af veirunni á einum degi og í dag, eða hundrað tuttugu og þrír innanlands og tveir á landamærunum. 27.7.2021 18:00
Búið að bera kennsl á þann síðasta sem dó Búið er að bera kennsl á þann síðasta af 98 sem dóu þegar hluti fjölbýlishúss hrundi í bænum Surfside á Flórída þann 24. júní síðastliðinn. Estelle Hedaya var sú síðasta sem var á lista yfir þá sem hefur verið saknað frá því húsið hrundi. 26.7.2021 23:24
Fjóla Hrund leiðir lista Miðflokksins í Reykjavík suður Framboðslisti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður var samþykktur á félagsfundi kjördæmisins í kvöld, 26. júlí. Listinn var samþykktur með 74 prósentum greiddra atkvæða en Fjóla Hrund Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Miðflokksins, leiðir listann. 26.7.2021 22:34