Hilary lék Kaliforníu grátt Óveðrið Hilary sem skall á Kaliforníu og Mexíkó í morgun lék svæðið grátt. Gífurleg rigning fylgdi óveðrinu sem leiddi til flóða og aurskriða. Hilary stefnir nú til norðurs en þrátt fyrir að óveðið hafi misst mikinn kraft er enn óttast að því geti fylgt hættuleg og mannskæð flóð. 21.8.2023 23:50
Segja klasasprengjurnar nýtast vel gegn Rússum Úkraínskir hermenn segja klasasprengjur hafa nýst vel gegn Rússum á undanförnum vikum. Þær nýtist sérstaklega vel til að stöðva árásir Rússa í austurhluta landsins, á meðan Úkraínumenn reyna að sækja fram í suðri. 21.8.2023 22:07
Gert að greiða tuttugu og sex milljónir króna í tryggingu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mun þurfa að greiða tvö hundruð þúsund dali í tryggingu til að komast hjá því að sitja í fangelsi vegna ákæra gegn honum í Fulton-sýslu í Georgíu. Hann var ákærður í Georgíu í síðustu viku vegna tilrauna hans til að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu en það var í fjórða sinn á þessu ári sem Trump var ákærður. 21.8.2023 20:38
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður Eflingar segir það svartan blett á samfélaginu að láglaunafólk þurfi að búa í iðnaðarhúsnæði, eins og því sem varð eldi að bráð við Hvaleyrarbraut í gær. Lítið hafi breyst síðan þrjú létu lífið við Bræðraborgarstíg fyrir þremur árum. 21.8.2023 18:01
Ætlar áfram að einblína á kosningarnar 2020 Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, ætlar að nýta nýjustu ákæruna gegn sér til að halda því áfram fram að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. Hann er ákærður fyrir að reyna að snúa úrslitum kosninganna en ráðgjafar hans hafa hvatt hann til að leggja síðustu kosningar á hilluna. 4.8.2023 16:01
Sjóliðar seldu leynilegar upplýsingar til Kína Tveir bandarískir sjóliðar voru hafa verið handteknir og ákærðir fyrir að senda viðkvæmar og leynilegar upplýsingar til kínverskra útsendara. Annar þeirra var handtekinn á miðvikudaginn þegar hann mætti í vinnu í flotastöðinni í San Diego en hinn vann í flotastöð í Kaliforníu. 4.8.2023 11:06
Andrew Tate laus úr stofufangelsi Samfélagsmiðlastjarnan umdeilda, Andrew Tate, hefur unnið áfrýjun vegna stofufangelsis sem hann og bróðir hans Tristan höfðu verið dæmdir í en þeir hafa verið ákærðir í Rúmeníu fyrir mansal, nauðgun og skipulagða glæpastarfsemi. 4.8.2023 10:01
Gerðu árás á flotastöð og skemmdu herskip Úkraínumenn réðust á rússneska flotastöð nærri Novorossiysk við á Svartahafi í nótt og virðast hafa valdið skemmdum á herskipi. Litlir fjarstýrðir sjálfsprengibátar voru notaðir til árásarinnar en Rússar segjast hafa grandað þeim öllum. 4.8.2023 07:50
Sound of Freedom: Óvæntur smellur byggir á umdeildum grunni Bandaríska kvikmyndin Sound of Freedom hefur aflað meiri tekna en stórmyndir eins og Mission Impossible – Dead Reckoning Part One og The Flash. Kvikmyndin var frumsýnd þann 4. júlí en síðan þá hefur hún halað inn nærri því 150 milljónum dala. Framleiðsla hennar er sögð hafa kostað einungis tæpar fimmtán milljónir. 3.8.2023 14:03
Dæmdur til dauða fyrir mannskæðustu árás á gyðinga í sögu Bandaríkjanna Maður sem myrti ellefu manns í bænahúsi gyðinga í Pittsburgh í Bandaríkjunum árið 2018 hefur verið dæmdur til dauða. Auk þeirra ellefu sem Robert Bowers myrti særði hann tvo sem voru við bænir og fimm lögregluþjóna. 3.8.2023 10:15