Fimm sem stálu fyrirsögnunum í fyrstu umferð Nú þegar fyrstu umferð Evrópumótsins í knattspyrnu er lokið er vert að skoða hvaða fimm leikmann hafa komið mest á óvart og í raun stolið fyrirsögnunum á mótinu til þessa. 16.6.2021 07:01
Dagskráin í dag: Úrslitarimman hefst, stórleikur á Hlíðarenda og EM heldur áfram Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Við bjóðum upp á EM veislu, úrslitarimmu Domino´s deildar karla sem og stórleiki í Pepsi Max-deildinni í knattspyrnu. 16.6.2021 06:01
Spánarmeistarar Atlético að styrkja sig Spánarmeistarar Atlético Madríd og ítalska félagið Udinese hafa náð samkomulagi um kaup fyrrnefnda liðsins á Rodrigo de Paul. 15.6.2021 23:30
Harden gæti snúið aftur í nótt Brooklyn Nets og Milwaukee Bucks mætast í nótt. Um er að ræða fimmta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta. Staðan er 2-2 í einvíginu og Bucks gæti því komist í góða stöðu með sigri. 15.6.2021 23:15
Missti meðvitund í sigri Frakka á Þjóðverjum Hægri bakvörðurinn Benjamin Pavard missti meðvitund í 10 til 15 sekúndur í 1-0 sigri Frakklands á Þýskalandi er liðin mættust í lokaleik fyrstu umferðar Evrópumótsins í knattspyrnu í kvöld. 15.6.2021 22:55
Barcelona spænskur meistari Barcelona varð í kvöld spænskur meistari í körfubolta eftir að leggja Real Madrid að velli í öðrum leik úrslitaeinvígisins. Barcelona vann báða leikina örugglega og eru því verðskuldaðir meistarar. 15.6.2021 22:46
Arnór og Hörður Björgvin fá nýjan þjálfara Ivica Olic, þjálfari rússneska knattspyrnuliðsins CSKA Moskvu, hefur sagt starfi sínu lausu. Íslensku landsliðsmennirnir Hörður Björgvin Magnússon og Arnór Sigurðsson leika með liðinu. 15.6.2021 22:30
Heimsmeistarar Frakka byrja á sigri þökk sé sjálfsmarki Hummels Frakkland vann 1-0 sigur á Þýskalandi í síðasta leik fyrstu umferðar Evrópumótsins í knattspyrnu. Mats Hummels var skúrkur kvöldsins en sjálfsmark hans dugði Frökkum til sigurs. 15.6.2021 21:10
Fyrirliði Svía setti Evrópumet Caroline Seger, fyrirliði sænska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, setti í dag Evrópumet er Svíþjóð gerði markalaust jafntefli við Ástralíu í vináttulandsleik. 15.6.2021 20:45
Virtist narta létt í öxlina á Paul Pogba Undir lok fyrri hálfleiks á leik Frakklands og Þýskalands átti sér stað undarlegt atvik. 15.6.2021 20:16