Reynsluboltarnir úr Pepsi Max deildinni Eftir erfiða byrjun Íslands í undankeppni HM 2022 í fótbolta er ljóst að Ísland er með bakið upp við vegg innanvallar jafnt sem utan vegna þeirra ofbeldis- og kynferðisbrotamála sem hafa litið dagsins ljós á undanförnum dögum og vikum. 1.9.2021 15:01
Rondo aftur til liðs við Los Angeles Lakers Rajon Rondo hefur skrifað undir eins árs samning við Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta. Rondo lék með liðinu er það varð meistari tímabilið 2019-2020. 1.9.2021 14:30
Håland enn í áformum Man United þrátt fyrir komu Ronaldo Endurkoma Cristiano Ronaldo til Manchester United hefur ekki breytt áformum félagsins varðandi kaup á Erling Braut Håland sumarið 2022. 1.9.2021 14:01
Ísak kostaði FCK rúmar 700 milljónir og ÍA græðir á tá og fingri Talið er að FC Kaupmannahöfn hafi greitt rúmlega 730 milljónir íslenskra króna fyrir hinn 18 ára gamla Ísak Bergmann Jóhannesson. Kemur þetta fram á vef Sportbladet í Svíþjóð en FCK keypti Ísak Bergmann frá IFK Norrköping. ÍA gæti fengið vel á annað hundrað milljóna króna í sinn hlut. 1.9.2021 12:00
Arsenal eyddi mest allra liða í ensku úrvalsdeildinni Arsenal, botnlið ensku úrvalsdeildarinnar, eyddi mest allra liða deildarinnar í sumar. Liðið fjárfesti í sex leikmönnum fyrir samtals 156.8 milljónir punda. Þar á eftir koma Manchester-liðin tvö, United og City. 1.9.2021 10:30
Midtjylland gaf loks eftir og seldi Mikael til AGF Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson samdi í gær við danska úrvalsdeildarfélagið AGF í Árósum. 1.9.2021 09:26
Danska landsliðið fordæmir aðstæður í Katar Leikmenn danska landsliðsins sem og knattspyrnusamband Danmerkur, DBU, fordæma aðstæður í Katar þar sem heimsmeistaramótið mun fara fram á næsta ári. Þetta kemur fram í yfirlýsingu liðsins í aðdraganda leikja í undankeppni HM. 1.9.2021 09:01
Chelsea rétt náði að koma Saúl inn fyrir lokun | Allt það helsta á lokadegi gluggans Lokadagur félagaskiptagluggans í Evrópu lokaði á miðnætti í nótt, aðfaranótt miðvikudags. Mikið af félögum náðu rétt svo að koma leikmönnum inn eða út áður en hurðin lokaðist og bíða hefði þurft fram í janúar. 1.9.2021 08:30
Ísak Bergmann spenntur fyrir komunni til Kaupmannahafnar: „Forza FCK“ Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar danska stórliðið FC Kaupmannahöfn tilkynnti að Ísak Bergmann Jóhannesson hefði skrifað undir samning við félagið til ársins 2026. 1.9.2021 08:02
Arna Sigríður fimmtánda í mark Handahjólreiðakonan Arna Sigríður Albertsdóttir endaði í 15. sæti í götuhjólreiðum á Ólympíumótinu sem fer fram í Tókýó þessa dagana. Þetta var síðasta keppni Örnu Sigríðar á leikunum. 1.9.2021 07:31