Dagskráin í dag: Haukar í Evrópu, stórleikur í Vesturbæ og margt fleira Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. 14.10.2021 06:01
Lokasóknin um ómarkvissa hetju Green Bay: „Þetta er náttúrulega ekki hægt, hvaða grín er þetta?“ Mason Walker Crosby reyndist hetja Green Bay Packers í sigri á Cincinnati Bengals í NFL-deildinni um helgina. Packers unnu með þriggja stiga mun, 25-22, og skoraði Crosby stigin sem skildu liðin að. Hann átti þó ekki sinn besta leik líkt og kollegi sinn í Bengals. 13.10.2021 23:30
Sigrar hjá Kielce og Montpellier Łomża Vive Kielce og Montpellier unnu góða sigra í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. 13.10.2021 22:00
Umfjöllun, mörk og myndir: Real Madrid - Breiðablik 5-0 | Blikar áttu aldrei möguleika í hitanum í Madríd Þrenna dönsku landsliðskonunnar Caroline Møller Hansen í fyrri hálfleik gerði út um leik Real Madríd og Breiðabliks í Meistaradeild Evrópu. Ekki hjálpaði mark strax í upphafi síðari hálfleiks, lokatölur 5-0 heimakonum í vil. 13.10.2021 21:25
Keflavík sótti sigur í Grafarvog Keflavík vann tólf stiga sigur á Fjölni í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 89-77 gestunum í vil. 13.10.2021 20:00
Helena um Evrópuævintýri Hauka: „Höfum engu að tapa og ætlum að stríða þeim eins mikið og við getum“ „Við erum ótrúlega spenntar og það verður skemmtilegt í Ólafssal á morgun,“ sagði Helena Sverrisdóttir, leikmaður Hauka, sem hefur leik í riðlakeppni Evrópubikar kvenna í körfubolta í Ólafssal í Hafnafirði á morgun. 13.10.2021 19:00
Stórsigrar hjá PSG og Wolfsburg Tveimur af leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu er nú lokið. París Saint-Germain og Wolfsburg unnu bæði stórsigra, lokatölur í leikjunum báðum 5-0 heimaliðunum í vil. 13.10.2021 18:46
Aron skoraði tvö í naumum sigri Álaborgar Landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson sneri aftur í lið Álaborgar í eins marks sigri á Meshkov Brest í Meistaradeild Evrópu í kvöld, lokatölur 34-33. 13.10.2021 18:30
Greindist með eitilfrumukrabbamein David Brooks, leikmaður AFC Bournemouth í ensku B-deildinni í knattspyrnu og landsliðsmaður Wales, greindist með eitilfrumukrabbamein á öðru stigi. Greindi hann sjálfur frá veikindunum á samfélagsmiðlum sínum í dag. 13.10.2021 18:00
Davíð Snorri um leikinn gegn Portúgal: „Þrjú stig er það sem við viljum“ „Þetta er lið sem er mjög sigursælt í yngri landsliðum, góð hefð fyrir því hjá þeim. Eru með frábæra einstaklinga og hafa byrjað mótið gríðarlega vel,“ sagði Davíð Snorri Jónasson, þjálfari íslenska U-21 árs landsliðsins í knattspyrnu, fyrir leik dagsins gegn Portúgal. 12.10.2021 07:00