Fyrsti blaðamannafundur Rangnick: Snýst allt um að hafa stjórn og tekur einn leik fyrir í einu Ralf Rangnick mætti á sinn fyrsta blaðamannafund sem þjálfari Manchester United nú í morgunsárið. Hann fór yfir víðan völl eins og ber að skilja. Telur Þjóðverjinn að það sé mikilvægt að félagið finni stöðugleika í því sem það gerir, þá segist hann ekki geta breytt hlutunum á 1-2 dögum. 3.12.2021 10:31
Xavi heldur áfram að taka til hendinni á Nývangi Xavi Hernández, nýráðinn þjálfari Barcelona, virðist allt annað en sáttur með hvernig er haldið um taumana hjá uppeldisfélaginu. 2.12.2021 07:00
Dagskráin í dag: Golf og körfubolti Fimm beinar útsendingar eru á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. 2.12.2021 06:00
Enn að jafna sig af meiðslum eftir að hafa glímt við Fjallið | Vill hefnd gegn Ponzinibbio Bardagakappinn Gunnar Nelson hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarið. Hann ræddi við vefinn MMA Fighting nýverið um hvað á daga hans hefur drifið og af hverju hann hefur ekki verið í sviðsljósinu. Það kom margt áhugavert upp úr spjallinu. 1.12.2021 23:30
Segir lið sitt aldrei hafa spilað jafn vel á Goodison Park Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, var að vonum ánægður með 4-1 stórsigur sinna manna á Everton er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, þá sérstaklega eftir það sem gerðist á sama velli á síðustu leiktíð. 1.12.2021 23:15
Segir sína menn hafa stolið þremur stigum Thomas Tuchel, þjálfari toppliðs ensku úrvalsdeildarinnar, sagði sína menn í Chelsea hafa verið einkar heppna í 2-1 sigri þeirra á Watford í kvöld. Tuchel gekk svo langt að segja að lið hans hafi rænt stigunum þremur í kvöld. 1.12.2021 22:46
Mount allt í öllu hjá Chelsea sem heldur toppsætinu Chelsea vann nauman 2-1 sigur á nágrönnum sínum í Watford í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Gestirnir halda þar með toppsæti deildarinnar. 1.12.2021 22:30
Man City vann nauman sigur á Villa Park Manchester City vann 2-1 útisigur á Aston Villa er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Heimamenn voru nálægt því að jafna metin undir lok leiks. 1.12.2021 22:25
Milan aðeins stigi frá toppnum eftir að Napoli missteig sig | Markalaust hjá PSG Öll þrjú topplið Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar, léku í kvöld. Inter vann sinn leik fyrr í kvöld örugglega, AC Milan gerði slíkt hið sama en topplið Napoli missteig sig gegn Sassuolo eftir að hafa komist 2-0 yfir. 1.12.2021 22:15
Liverpool snýtti Everton í Guttagarði Everton átti í raun aldrei roð í nágranna sína í Liverpool er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 1-4 og ljóst að sæti Rafa Benitez, þjálfara Everton, er orðið virkilega heitt. 1.12.2021 22:05