Oliver á láni til ÍA Oliver Stefánsson hefur samið um að leika með uppeldisfélagi sínu ÍA í efstu deild karla í knattspyrnu í sumar. Hann kemur á láni frá sænska félaginu IFK Norrköping. ÍA greindi frá á samfélagsmiðlum sínum. 12.2.2022 11:31
FH vill fá hægri bakvörð Keflavíkur FH vantar hægri bakvörð eftir að Hörður Ingi Gunnarsson var seldur til Sogndal í Noregi. Hafnfirðingar horfa til Keflavíkur í leit að leikmanni til að fylla skarð Harðar Inga. 12.2.2022 10:46
LaVert sökkti sínum gömlu félögum | Stórleikur Jokic dugði ekki til Alls fóru sjö leikir fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Caris LaVert sökkti sínum gömlu félögum í Indiana Pacers og Nikola Jokić átti enn einn stórleikinn en það dugði ekki til. 12.2.2022 10:31
Sturla Snær keppir ekki í nótt Skíðamaðurinn Sturla Snær Snorrason mun ekki keppa í stórsvigi í nótt. Sturla Snær er hluti af íslenska hópnum sem tekur nú þátt á vetrarólympíuleikunum en hann greindist með Covid-19 fyrir viku og hefur ekki enn jafnað sig. 12.2.2022 10:00
Katrín Tanja um parakeppnina á Reykjavíkurleikunum: „Það veit enginn við hverju á að búast“ „Ég er búin að vera á smá hlaupum í dag svo hann mætti með í settið,“ sagði Katrín Tanja Davíðsdóttir er Hjálmar Örn Jóhannsson of upptekinn við að knúsa hundinn í upphafi síðasta þáttar af Þeir Tveir. 12.2.2022 09:31
Offramboð á sóknarþenkjandi mönnum í Víkinni Einhverstaðar stendur „sókn er besta vörnin“ og það virðist sem nokkur lið í efstu deild karla í knattspyrnu stefni á að fara eftir þeirri hugmyndafræði í sumar. Íslandsmeistarar Víkings eru þar á meðal. 12.2.2022 09:00
Hegðun í stúkunni fer versnandi | Neysla kókaíns vandamál Öryggisverðir og lögregla hafa þurft að hafa mun meiri afskipti af stuðningsfólki enskra knattspyrnuliða á þessari leiktíð en á sama tíma fyrir tveimur árum. Það virðist sem fólk kunni einfaldlega ekki að haga sér eftir að hafa ekki mátt mæta á völlinn sökum kórónuveirunnar. Þá mætir nú fjöldi ungra karlmanna á knattspyrnuleiki eftir að hafa fengið sér vel í nös af kókaíni. 12.2.2022 07:00
Dagskráin í dag: Stórleikur á Ítalíu, nóg um að vera í handbolta og fótbolta hér heima ásamt mörgu öðru Það er vægast sagt nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Dagskráin hefst klukkan 08.30 og lýkur ekki fyrr en um miðnætti. Alls eru 13 beinar útsendingar á dagskrá. 12.2.2022 06:00
Ívar býður sig fram í stjórn KSÍ: „Skiptir máli að fjölbreyttar raddir alls staðar af landinu heyrist“ Ívar Ingimarsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu og atvinnumaður til fjölda ára, hefur tilkynnt að hann muni bjóða sig fram til stjórnar Knattspyrnusambands Íslands á ársþingi sambandsins sem fram fer undir lok mánaðarins. 11.2.2022 23:16
Sevilla heldur pressunni á Real Madríd Sevilla vann 2-0 sigur á Elche í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í kvöld. Sigurinn þýðir að Sevilla heldur pressunni á Real Madríd á toppi deildarinnar. 11.2.2022 22:45