Tvö mörk undir lokin tryggði sigur Stjörnunnar Stjarnan vann 3-1 sigur á Fjölni í Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld. Um var að ræða síðasta leik kvöldsins. 25.2.2022 23:00
Gott gengi Southampton heldur áfram Southampton vann Norwich City 2-0 í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. 25.2.2022 22:32
Albert og félagar náðu í stig gegn meisturum Inter Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa sem nældi í stig gegn Ítalíumeisturum Inter Milan í síðari leik kvöldsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Lokatölur 0-0 en Albert fékk gott færi snemma leiks en brenndi af. 25.2.2022 22:10
Nancy tapaði þrátt fyrir stórleik Elvars Elvar Ásgeirsson átti stórleik er Nancy tapaði með fjögurra marka mun fyrir Chambéry í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 32-36. 25.2.2022 21:30
FH og HK skoruðu fjögur í öruggum sigrum Tveimur af þremur leikjum kvöldsins í Lengjubikar karla í fótbolta er nú lokið. FH og HK skoruðu bæði fjögur mörk er liðin unnu örugga sigra. 25.2.2022 21:01
Loks töpuðu Viktor Gísli og félagar í GOG | Öruggt hjá Álaborg Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson og liðsfélagar hans í GOG töpuðu sínum fyrsta deildarleik í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Liðið tapaði þá með þriggja marka mun gegn Ribe-Esbjerg, lokatölur 30-27. 25.2.2022 20:30
Jón Dagur lagði upp og nældi sér í spjald í grátlegu tapi Jón Dagur Þorsteinson lagði upp fyrra mark AGF í grátlegu tapi gegn Vejle í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld, lokatölur 3-2 Vejle í vil. Jón Dagur og Mikael Anderson voru báðir í byrjunarliði AGF í kvöld. 25.2.2022 20:10
Udinese náði í stig á San Siro AC Milan og Udinese gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik kvöldsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Heimamenn í Milan misstigu sig í toppbaráttunni en þeir eru í harðri baráttu við Inter og Napoli um ítalska meistaratitilinn. 25.2.2022 19:45
Fær frí vegna stríðsins í Úkraínu Andriy Yarmolenko, leikmaður enska knattspyrnufélagsins West Ham United, verður ekki með liðinu um helgina en Yarmalenko kemur frá Úkraínu og er kominn í nokkurra daga frí vegna stöðunnar þar í landi. Oleksandr Zinchenko, leikmaður Manchester City, verður hins vegar til taks ef þess þarf. 25.2.2022 19:15
Nýr miðvörður Víkings um veðrið á Íslandi: „Getur bara orðið betra úr þessu“ „Ég varð mjög spenntur þegar ég heyrði um félagið. Er að spila í Evrópu á næstu leiktíð, unnu deild og bikar í fyrra og stefna á að verja þá í ár,“ sagði Oliver Ekroth, nýjasti liðsmaður Íslands- og bikarmeistara Víkings við Vísi og Stöð 2 Sport eftir undirskrift í dag. 25.2.2022 18:35