Fær rúmlega þrjátíu og tvo milljarða til að eyða í leikmenn Nýir eigendur Chelsea eru tilbúnir að setja rúmlega 200 milljónir punda, eða 32 og hálfan milljarð íslenskra króna, í nýja leikmenn. 26.5.2022 08:00
Leikhús fáránleikans: Sá um leikgreiningu Man United frá Moskvu Það hefur margt undarlegt gengið á hjá enska fótboltafélaginu Manchester United á undanförnum árum. Eftir að Ralf Rangnick tók tímabundið við sem þjálfari áður en hann myndi færa sig um set og verða ráðgjafi fóru hlutirnir einfaldlega úr böndunum. 24.5.2022 07:00
Dagskráin í dag: Stórleikur með stóru S-i í Bestu deild í kvenna Við bjóðum upp á sannkallaðan STÓRLEIK í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag þegar Íslandsmeistarar Vals mæta bikarmeisturum Breiðabliks á Kópavogsvelli. Þá er Martin Hermannsson í beinni frá Spáni og Queens á sínum stað. 24.5.2022 06:00
Mest skorað á Kópavogsvelli og í Víkinni | Minnst í Vesturbænum Breiðablik hefur farið frábærlega af stað í Bestu deild karla og unnið alla sjö heimaleiki sína. Íslands- og bikarmeistarar Víkings hafa ekki farið jafn vel af stað en heimavöllur liðsins hefur hins vegar boðið upp á mikla skemmtun, þó ekki endilega fyrir Víkinga. 23.5.2022 23:31
Segir Man Utd alltaf hafa eytt því fjármagni sem til þarf í nýja leikmenn Avram Glazer, eigandi Manchester United, ræddi stuttlega við Sky Sports. Hann sagði að Glazer-fjölskyldan hefði alltaf eytt þeim peningum sem nauðsynlegt væri í nýja leikmenn. Þá sagði Avram að hann hefði fulla trú á Erik ten Hag, nýráðnum þjálfara félagsins. 23.5.2022 21:32
Kristján Örn meðal þriggja bestu í Frakklandi Íslenski landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson er einn þriggja leikmanna sem tilnefndir eru sem besta örvhenta skytta frönsku úrvalsdeildarinnar. 23.5.2022 20:16
Hörður Björgvin um stríðið í Úkraínu: Leiðinlegt mál sem ég get ekki tjáð mig neitt um Hörður Björgvin hefur verið í röðum CSKA síðan 2018 en er samningslaus í dag. Hann ræddi við Ríkharð Óskar Guðnason í Sportpakka Stöðvar 2. Ræddi hann meðal annars um tíma sinn hjá CSKA og tímann eftir að Rússland réðst inn í Úkraínu. 23.5.2022 19:31
Freyr stýrði Lyngby upp í úrvalsdeild | Aron lagði upp er Horsens fór einnig upp Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Lyngby munu leika í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta á næstu leiktíð. Sætið var tryggt með 1-1 jafntefli gegn Nyköbing á útivelli í kvöld. Þá lagði Aron Sigurðarson upp eitt marka Horsens er liðið vann 4-0 útisigur á Fredericia og tryggði sér einnig sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. 23.5.2022 19:06
Hörður um Jimmy Butler: „Tilbúinn að kvitta undir þann reikning núna og éta þann sokk“ „Jimmy Butler er náttúrulega búinn að vera frábær í þessari úrslitakeppni og sýnt það enn og aftur að Jimmy Butler getur verið, er það ekki alltaf, A-klassa súperstjarna í raun og veru. Frá leik til leiks,“ sagði Sigurður Orri Kristjánsson, þáttastjórnandi Lögmál leiksins. 23.5.2022 18:00
Dýraníðingurinn Kurt Zouma fer fyrir dómara í vikunni Kurt Zouma, dýraníðingur og miðvörður enska fótboltafélagsins West Ham United, þarf að mæta fyrir dómara á morgun, þriðjudag, vegna þess ofbeldis sem hann beitti þáverandi gæludýr sín. 23.5.2022 17:31