O´Neal yngri í nýliðavalinu: Æfði með Lakers Shareef O‘Neal, sonur hins goðsagnakennda Shaquille O‘Neal, er meðal þeirra leikmanna sem verða í nýliðavali NBA deildarinnar í körfubolta sem fram fer í nótt. O‘Neal yngri æfði með liðinu sem faðir hans er hvað þekktastur fyrir að spila með. 23.6.2022 15:01
Segir fertugan Zlatan athyglissjúkan Það fer ekkert á milli mála að sænski framherjinn Zlatan Ibrahimović elskar sviðsljósið. Einn af hans fyrrverandi samherjum, Hakan Çalhanoğlu, hefur litla þolinmæði er kemur að skrípalátum Svíans. 23.6.2022 13:30
Geta endanlega kveðið KR-grýluna í kút og sparkað henni út á hafsauga Breiðablik vann loks sigur á KR er liðin mættust í Bestu deild karla í fótbolta þann 25. apríl síðastliðinn. Þau mætast á nýjan leik á Kópavogsvelli í kvöld og getur topplið deildarinnar endanlega kveðið KR-grýlu sína í kútinn. 23.6.2022 13:00
Ísland stendur í stað á heimslista FIFA Nýr heimslisti Alþjóðaknattspyrnusambandsins var birtur í dag. Íslenska karlalandsliðið stendur í stað í 63. sæti listans. 23.6.2022 12:30
KSÍ fékk aukamiða á EM Knattspyrnusamband Íslands hefur tilkynnt að hægt sé að fá miða á Evrópumót kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Englandi. Fékk sambandið nokkuð óvænt fleiri miða upp í hendurnar. 23.6.2022 12:11
Sautján dagar í EM: „Spilaði á þverflautu frá sex ára aldri út fyrsta árið í Verzló“ Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Næst í röðinni er hin lunkna Agla María Albertsdóttir sem leikur með BK Häcken í Svíþjóð. 23.6.2022 11:00
Fráfarandi formaður körfuknattleiksdeildar KR: „Mætti halda að ég væri deyjandi maður“ „Mér líður bara mjög vel. Það mætti halda að ég væri deyjandi maður eins og þú ert að tala við mig núna,“ sagði Böðvar Guðjónsson fráfarandi formaður körfuknattleiks-deildar KR í viðtali við Stöð 2 og Vísi. 23.6.2022 10:00
Maðurinn bakvið kaup Liverpool undanfarin ár gæti farið til Chelsea eða Man Utd Michael Edwards er einn færasti maður Englands og eflaust víðar í sínu fagi. Hann hefur séð um kaup og sölur leikmanna hjá Liverpool undanfarin ár en gæti nú fært sig um set til Manchester eða Lundúna. 23.6.2022 09:31
Stúkan um innkomu Antons Loga í byrjunarlið Blika: „Smellur bara eins og flís við rass“ „Mér fannst hann spila eins og hann væri þrítugur,“ sagði Reynir Leósson, sérfræðingur Stúkunnar um frammistöðu hins 19 ára gamla Antons Loga Lúðvíkssonar í 4-1 sigri Breiðabliks á KA í 10. umferð Bestu deildar karla. 23.6.2022 09:00
Segist ekki vita hvað „íþróttaþvottur“ er og líkar vel við Sádi-Arabíu Anthony Joshua, fyrrum heimsmeistari í þungavigt, stefnir á að endurheimta titil sinn en hann mætir Oleksandr Usyk þann 20. ágúst næstkomandi. Fer bardaginn fram í Sádi-Arabíu og Joshua sér ekkert að því. 23.6.2022 08:30