Sara áfram efst í The Open en Katrín Tanja á hraðri uppleið Sara Sigmundsdóttir er áfram efst meðal íslenskra kvenna í opna hluta undankeppni heimsleikanna í CrossFit en nú er búið að fara yfir árangur keppenda í 24.2 á CrossFit Open. 15.3.2024 06:30
Dagskráin í dag: Stórleikur í Smáranum, Sveindís Jane og dregið í Evrópu Það er stórleikur á Stöð 2 Sport í kvöld í íslenska körfuboltanum þar sem tvö heitustu lið landsins mætast og baráttan um deildarmeistaratitilinn gæti farið langt með að ráðast í þessum risaleik. 15.3.2024 06:01
Fótboltamaður bað unnustans inn á fótboltavelli Ástralski knattspyrnumaðurinn Joshua Cavallo vakti heimsathygli á sínum tíma þegar hann kom út úr skápnum á meðan hann var enn að spila. 14.3.2024 23:30
Gylfi segir það gríðarleg vonbrigði að vera ekki valinn í landsliðið Gylfi Þór Sigurðsson er mjög svekktur með ákvörðun landsliðsþjálfarans Age Hareide um að velja hann ekki í hópinn fyrir umspilsleikinn á móti Ísrael en landsliðshópurinn verður tilkynntur á morgun. 14.3.2024 23:04
Maté: Atvinnumennirnir gáfust upp í áhlaupi Hattar Maté Dalmay, þjálfari Hauka, var afar ósáttur við frammistöðu síns liðs í 93-68 tapi gegn Hetti á Egilsstöðum í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. Haukar höfðu ekki að neinu að keppa, áttu hvorki möguleika á sæti í úrslitakeppni né í hættu að falla, meðan Höttur þurfti að vinna til að komast í úrslitakeppnina. Það sást í leiknum. 14.3.2024 22:41
Náðist loksins þegar hann fór í æfingaferð til Dúbaí Æfingaferð með rússneska félaginu Spartak Moskvu reyndist hollenska fótboltamanninum Quincy Promes dýrkeypt. 14.3.2024 22:30
Leverkusen komst áfram eftir tvö mörk í uppbótartíma Aftur lentu lærisveinar Xabi Alonso í Bayer Leverkusen 2-0 undir á móti Qarabag í Evrópudeildinni en nú náði þýska toppliðið að snúa leiknum við í uppbótartíma og tryggja sér 3-2 sigur. 14.3.2024 22:08
Hákon lagði upp mark þegar Lille fór áfram en Kristian og Ajax eru úr leik Hákon Arnar Haraldsson og félagar í franska liðinu Lille komust í kvöld í átta liða úrslit Sambandsdeildarinnar en Íslendingaliðið Ajax steinlá á sama tíma á móti Aston Villa. 14.3.2024 21:55
Stórskotahríð Liverpool og ellefu mörk í tveimur leikjum Liverpool átti ekki í miklum vandræðum með að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar eftir 6-1 sigur á Slavia Prag í seinni leik liðanna á Anfield í kvöld. 14.3.2024 21:47
Guðrún Elísabet með tvö mörk í sigri á Blikum Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir skoraði tvö mörk þegar Valur vann 3-2 sigur á Breiðabliki i Lengjubikar kvenna í kvöld en með sigrinum tryggðu Valskonur sér sigur í riðlinum. 14.3.2024 21:22