Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Eldflaug fyrirtækisins Blue Origin í eigu Jeff Bezos sprakk í loft upp í tilraunaskoti í Flórída í gærkvöldi. Engum starfsmanni var meint af en gríðarstór eldhnötturinn sást víða. 29.5.2026 07:29
Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Ekki er hægt að fullyrða að innleiðing 4G og aukin notkun snjalltækja valdi því beinlínis að fæðingartíðni hafi farið lækkandi á heimsvísu, að mati sérfræðings í fæðingartíðni. Stjórnmálamenn leiti logandi ljósi að einfaldri lausn og einfaldri orsök á vanda sem sé bæði flókinn og margþættur. 29.5.2026 07:00
Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Hjalti Þór Vignisson oddviti Framsóknar í Hornafirði verður bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026–2030. 28.5.2026 16:38
Enginn meirihluti í Grindavík Enginn meirihluti verður myndaður í bæjarstjórn Grindavíkur. Allir bæjarfulltrúar vilja vinna saman að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í bænum. 28.5.2026 15:59
Bora eftir jarðhita á Tenerife Reykjavík Geothermal, í samstarfi við stjórnvöld og orkufyrirtæki á Tenerife, hefur hafið jarðhitaboranir til raforkuframleiðslu á Kanaríeyjum. Verkefnið er sagt marka stór tímamót í vegferð eyjanna í átt að hreinni, öruggari og staðbundinni orkuframleiðslu. 28.5.2026 15:13
Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Um fjörutíu manns hefur verið sagt upp hjá Rapyd á Íslandi. Ástæðan eru skipulagsbreytingar á alþjóðavísu en gervigreind á að leysa af hólmi fjölda starfsmanna, miðað við bréf forstjóra alþjóðasamsteypunnar til starfsmanna. 28.5.2026 12:58
Mikil sorg á Alþingi Þrösturinn sem legið hefur á eggjum í Alþingisgarðinum er horfinn úr hreiðrinu ásamt eggjunum fjórum. Þingkona segir málið hryggja sig meira en eðlilegt sé, svartur köttur sem heldur til í garðinum liggi undir grun. 28.5.2026 11:52
Gylfi verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar Framsókn og óháðir hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar með Viðreisn. Framsókn og óháðir unnu stórsigur í kosningunum og fengu fjóra menn kjörna og Viðreisn einn. 28.5.2026 11:28
Fækkar lögregluembættum Lögregluembættum verður fækkað en þess í stað verða mynduð stærri og öflugri embætti um allt land. Þetta er meðal þess sem Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kynnti í vikunni. Ráðherra segir breytingarnar fela í sér styrkingu lögreglu á landsvísu, eflingu löggæslu og bætta skilvirkni. 28.5.2026 10:17
Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Ein vinsælasta íþróttafréttasíða landsins, Fótbolti.net, hefur legið niðri í einn og hálfan sólarhring. Eigandi síðunnar segir ástæðuna vera bilun hjá hýsingaraðila í Þýskalandi, búist sé við því að vefurinn verði kominn aftur í loftið fyrir kvöldið þegar spilaðir verða leikir í Lengubikarnum og í Gatorade bikarnum. 27.5.2026 16:41