Reyndist vera ölvaður Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. 64 mál voru skráð frá miðnætti til 05:20, að því er segir í dagbók lögreglu. 4.2.2024 07:29
Yfir þúsund manns til Grindavíkur í dag Þúsund manns munu fara inn til Grindavíkur í dag að vitja eigna sinna og/eða aðstoða við að pakka og/eða flytja búslóð. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum. 4.2.2024 07:19
Ekki kjörið að stærsta safngripageymsla landsins sé á Völlunum Þjóðminjavörður segir að til langs tíma litið þurfi að skoða aðra staðsetningu fyrir stærstu munageymslu þjóðarinnar sem staðsett er á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði. Hún segir starfsmenn nú hafa mestar áhyggjur af gasmengun vegna jarðhræringa frekar en af hraunrennsli. 3.2.2024 14:04
Píparar og rafvirkjar hús úr húsi í Grindavík Píparar og rafvirkjar ganga nú hús úr húsi í Grindavík ásamt viðbragðsaðilum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. 3.2.2024 13:49
Hafi þegar leiðrétt ummæli sín Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir að fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af því að hún hafi farið með ósannindi varðandi stefnu stjórnvalda á Norðurlöndunum í aðstoð þeirra við flóttafólk á Gasa vera rangan. Hún hafi þegar leiðrétt ummæli sem hún hafi látið falla um málið þann 29. desember síðastliðinn. 3.2.2024 11:31
Rak upp í grjótgarðinn í Hafnarfirði Skúta slitnaði laus í Hafnarfjarðarhöfn í nótt og rak upp í grjótgarð hafnarinnar. Björgunarsveitir komu henni aftur á flot í morgun og er hún lítið skemmd, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. 3.2.2024 11:05
Frambjóðandi óskar eftir samskiptaskapara Sigríður Hrund Pétursdóttir, forsetaframbjóðandi og athafnakona, óskar eftir því að ráða samskiptaskapara fyrir framboð sitt, til sigurvegferðar. 3.2.2024 09:49
Bregðast við sögulegu álagi á björgunarsveitir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, segir almannavarnir munu funda með bæjarstjórn Grindavíkur um aðgengi að bænum á þriðjudag. Hann segir almannavarnir nú vilja létta álagi á björgunarsveitir sem hafi sinnt mikilli þjónustu fyrir almannavarnir á Reykjanesi undanfarin ár. 3.2.2024 08:53
Bjartviðri og harðnandi frost í kortunum Það gengur á með stífri vestan- og suðvestanátt og éljagangi í dag en hægara og úrkomulítið norðaustanlands. Snýst í norðaustanátt norðvestantil í kvöld. 3.2.2024 07:58
Lögreglan kom dyravörðum til aðstoðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í nótt beiðni um aðstoð frá dyravörðum á skemmtistað í Reykjavík. Einn dyravörður hafði verið sleginn og var gerandinn handtekinn og vistaður í fangageymslu. 3.2.2024 07:26