Ullarbændur í Öxarfirði selja lopa beint frá býli Ung hjón sem áttu sér þann draum að setjast að í sveit ásamt börnum sínum þremur ákváðu að gerast ullarbændur í Öxarfirði og selja lopaband beint frá býli. Svo vel hefur gengið að þau hafa vart undan við framleiðsluna. 14.3.2022 22:44
Sænskar konur uppgötvuðu Öxarfjörð og fóru svo hvergi Tvær sænskar konur, sem stofnað hafa heimili í Öxarfirði með íslenskum eiginmönnum, eru meðal viðmælenda í þættinum Um land allt á Stöð 2. Báðar eiga sinn þátt í því að börnum hefur farið fjölgandi í sveitinni. 14.3.2022 12:13
Bolvíkingar voru hraustir og ekkert álitlegt að fara í þá „Bolvíkingar fóru inn á Ísafjörð til að berja Ísfirðingana og öfugt. En það er liðin tíð,“ segir Ísfirðingurinn og smábátasjómaðurinn Sigurður Hjartarson. 13.3.2022 07:37
Undirgöng fyrir reiðhjólafólk og gangandi kosta hálfan milljarð Undirgöng sem Vegagerðin og Garðabær áforma að gera á Arnarneshæð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur munu kosta vel yfir hálfan milljarð króna, verði eina tilboðinu sem barst í verkið tekið. Ofan á það bætist undirbúnings-, hönnunar- og eftirlitskostnaður. 11.3.2022 15:45
Norðlenskir verktakar kepptu hart um þjóðveg við Hrafnagil Fjórir norðlenskir verktakar kepptu hart um að fá að leggja nýjan þjóðveg meðfram Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit. Þegar tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni í vikunni reyndust þau öll vera undir kostnaðaráætlun, eitt þó sýnu lægst. 10.3.2022 23:35
Kaffikarlar fyrir vestan segja tafir stofnanafólks óeðlilegar „Það er alveg sama hvað við ætlum að reyna að fá. Við fáum aldrei neitt. Sérðu með laxeldið. Það eru bara einhverjir sportveiðimenn sem ráða því. Við viljum bara fá laxeldið í Djúpið,“ segir Pétur Runólfsson, einn karlanna sem við hittum að skrafi í Olís-búðinni í Bolungarvík. 9.3.2022 23:15
Heimsmarkaðsverð á áli orðið ævintýralega hátt Heimsmarkaðsverð á áli fór í gær í 3.850 dollara tonnið. Þetta er langhæsta álverð sögunnar. Álmarkaðir hafa heldur róast framan af degi og verðið sigið niður, fór niður í 3.740 dollara í morgun og var komið niður undir 3.500 dollara um hádegisbil. 8.3.2022 12:24
Segir Bolungarvíkurgöng hafa bjargað Bjarnabúð Margir spáðu því að Bjarnabúð í Bolungarvík, ein elsta verslun landsins, myndi lognast út af með Bolungarvíkurgöngum þegar auðveldara varð fyrir Bolvíkinga að skreppa í búðir á Ísafirði. Reynsla kaupmannsins varð þveröfug; Ísfirðingar fóru að versla í Bolungarvík. 7.3.2022 21:41
Bolvíkingurinn Jakob Valgeir vill sameiningu við Ísafjörð „Ég skil svo sem ekki af hverju menn sameinast ekki Ísafirði. Styrkja byggðarlögin. Vera bara með eitt sveitarfélag á norðanverðum Vestfjörðum,“ segir útgerðarmaðurinn og Bolvíkingurinn Jakob Valgeir Flosason, framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf., stærsta fyrirtækis Bolungarvíkur. 7.3.2022 12:18
Hjúkrunarfræðingurinn sem elskar að vera sauðfjárbóndi „Ég er sem sagt hjúkrunarfræðingur og vinn hérna á Bergi, hjúkrunarheimilinu. En svo er ég með 130 ær en er í samkrulli með tengdapabba, sem er með 250," segir Svala Björk Einarsdóttir, sem er í hópi fjölmargra sauðfjárbænda í Bolungarvík. 5.3.2022 15:15