Fall Primera Air kemur niður á afkomu Arion banka Verulega hefur dregið úr hagnaði og arðsemi bankans á fyrstu níu mánuðum þessa árs, borið saman við sama tímabil í fyrra. 31.10.2018 18:49
HB Grandi segir upp fleiri starfsmönnum Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að með uppsögnunum nú sé nánast ekkert eftir af útgerðinni Haraldi Böðvarssyni hf., öðrum forvera HB Granda. 31.10.2018 18:21
Rannsaka hvort konum hafi verið mútað til að bera sakir á sérstaka rannsakandann FBI hefur fengið til rannsóknar ásakanir um að reynt hafi verið að múta konum til að ljúga upp á yfirmann Rússarannsóknarinnar á forsetaframboði Donalds Trump. 30.10.2018 22:57
Tveir fangar sagðir hafa banað Bulger í fangelsinu Morðingjar mafíuforingjans James Bulger eru sjálfir sagðir tengjast mafíustarfsemi. 30.10.2018 21:22
Stúlkan tekur afsökunarbeiðni Björns Braga góða og gilda Í yfirlýsingu segir stúlka sem Björn Bragi viðurkennir að hafa káfað á að í umfjöllun um atvikið hafi verið reynt að gera eitthvað úr því sem hún upplifði ekki. 30.10.2018 20:19
Konan sem lýst var eftir fundin Síðast sást til Ástu Kristínar Aðalsteinsdóttur í Síðumúla upp úr hádegi í dag. 30.10.2018 19:40
Meint fölsuð mynt reyndist ekta Sérfræðingur Seðlabankans staðfesti að fimmtíu og hundrað krónu myntir sem tveir menn vildu skipta í Landsbankanum í gær séu ófalsaðar. 30.10.2018 19:22
Mafíuforinginn „Whitey“ Bulger fannst látinn James Whitey Bulger var handtekinn árið 2011 eftir ábendingu frá íslenskri konu sem bjó við hliðina á honum. Hann hafði verið á flótta undan yfirvöldum í sextán ár. 30.10.2018 17:43
Assange telur Ekvadora reyna að bola sér úr sendiráðinu Utanríkisráðherra Ekvadors segir Assange frjálst að vera eins lengi og hann vill svo lengi sem hann fer eftir reglum. 29.10.2018 23:24
Bandaríkjastjórn segist ætla að flytja þúsundir hermanna að landamærunum Aðgerðin virðist liður í tilraunum Trump forseta til að gera innflytjendamál að meginstefinu í baráttunni fyrir þingkosningar sem fara fram í Bandaríkjunum í næstu viku. 29.10.2018 21:25