Kevin Spacey ákærður fyrir kynferðisbrot gegn táningi Leikarinn er sagður hafa gefið táningsdreng áfengi og síðan þuklað á honum. 25.12.2018 08:41
Mexíkóskt stjórnmálapar fórst í þyrluslysi Nýbakaður ríkisstjóri eins fjölmennsta ríkis Mexíkó og öldungadeildarþingmaður létu lífið þegar þyrla þeirra hrapaði nærri Puebla-borg á aðfangadag. 25.12.2018 08:16
Flug á Gatwick gæti raskast í marga daga vegna drónanna Óþekktir drónar á sveimi yfir flugvellinum hafa stöðvað alla flugumferð í dag. 20.12.2018 16:23
Kúrdar í Sýrlandi telja ákvörðun Trump svik Mikil óvissa ríkir um framhald stríðsins gegn Ríki íslams í Sýrlandi eftir að Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann ætlaði að draga 2.000 manna herlið þaðan. 20.12.2018 15:38
Trump sakar bandamenn um vanþakklæti og lýgur um Sýrland Á sama tíma og Pútín Rússlandsforseti lofaði ákvörðun Trump um að draga herlið frá Sýrlandi fullyrti bandaríski forsetinn að Rússar væru óánægðir með hana. 20.12.2018 13:03
Rússneskur ríkisfjölmiðill braut hlutleysisreglur í umfjöllun um Skrípal Á meðal þátta RT sem breska fjölmiðlanefndin taldi að hefði brotið reglur var umræðuþáttur sem George Galloway, breskur fyrrverandi þingmaður, stýrði. 20.12.2018 12:22
Hringir Satúrnusar komnir á miðjan aldur Risaeðlur reikuðu enn um jörðina þegar hringir Satúrnusar mynduðust ef marka má niðurstöður nýrrar rannsóknar. 20.12.2018 11:32
Danska þingið samþykkir að vista erlenda glæpamenn á eyju Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna er á meðal þeirra sem hafa lýst áhyggjum af hugmynd danskra stjórnvalda. 20.12.2018 10:52
Ráðherraefni Trump sendi ráðuneyti álit á Rússarannsókninni Maðurinn sem Trump vill skipa dómsmálaráðherra sagði rannsókn Roberts Mueller "frámunalega óábyrga“ og að hún gæti haft "hörmulegar afleiðingar“. 20.12.2018 09:55
Rússneskur uppljóstrari talinn hafa látist af náttúrulegum orsökum Grunsemdir höfðu verið uppi um að Alexander Perepilitsjní hefði verið myrtur árið 2012. Dauði hans var rannsakaður aftur eftir taugaeiturstilræði gegn rússneskum fyrrverandi njósnara í vor. 19.12.2018 16:34