Wolf í bann á Twitter fyrir að dreifa rangfærslum um bóluefni Samfélagsmiðillinn Twitter setti bandaríska rithöfundinn Naomi Wolf í tímabundið bann fyrir að brjóta notendaskilmála með því dreifa ítrekað rangfærslum um bóluefni. Wolf, sem varð fyrst þekkt fyrir feminísk skrif, hefur deilt framandlegum samsæriskenningum um bóluefni trekk í trekk. 6.6.2021 14:56
Óvíst hvort að sóttvarnaaðgerðum verður aflétt á Englandi Heilbrigðisráðherra Bretlands segir of snemmt að segja til um hvort að ríkisstjórnin standi við áform sín um að aflétta þeim sóttvarnaaðgerðum sem eru enn í gildi vegna kórónuveirufaraldursins 21. júní. 6.6.2021 14:38
Möguleg hræðsla við að lenda á jaðrinum í stærri byggð Ekkert verður af sameiningu Skagabyggðar, Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps og sveitarfélagsins Skagastrandar eftir að íbúar Skagabyggðar höfnuðu henni í atkvæðagreiðslu í gær. Sjötíu voru á kjörskrá og greiddu 29 atkvæði gegn sameiningu en 24 með. 6.6.2021 13:38
„Geri enga kröfu um sæti á framboðslista flokksins“ Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, ætlar að tjá kjörnefnd að hún geri ekki kröfu um sæti á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar. Hún ætlar þó ekki að hætta stjórnmálaþátttöku. 6.6.2021 11:32
Brynjar náði ekki oddvitasæti og kveður stjórnmálin Úrslit prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir Alþingiskosningarnar í gær voru Brynjari Níelssyni vonbrigði. Hann sóttist eftir öðru oddvitasætinu en hafnaði í fimmta sæti. Hann segist kveðja stjórnmálin sáttur. 6.6.2021 11:02
Einn greindist smitaður í sóttkví Aðeins einn greindist smitaður af kórónuveirunni í gær og var hann í sóttkví. Þrír greindust smitaðir á landamærunum af af þeim bíða tveir niðurstaðna mótefnamælingar. 6.6.2021 10:53
Telur úrslitin ákall um nýliðun í bland við reynslu Sjálfstæðismenn völdu sér reynslu í bland við nýliðun í prófkjöri sínu í Reykjavík í gær, að mati Diljár Mistar Einarsdóttur sem hafnaði í þriðja sæti. Hún segir árangurinn hafa fari fram úr sínum björtustu væntingum. 6.6.2021 10:11
Meðferð Dana á hælisleitendum og afglæpavæðing í Sprengisandi Rætt verður um útvistun danskra stjórnvalda á hælisleitendamálum til Afríkulanda, afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna og afstöðu almennings til einkareksturs í heilbrigðiskerfinu í umræðuþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. 6.6.2021 09:39
Allt að 18 stig á Norðausturlandi en skúrir víða um land Víða má búast við skúrum á landinu í dag en útlit er fyrir rigningu með köflum suðaustanlands. Lengst af verður þó bjartviðri og þurrt að kalla um norðaustanvert landið. Áfram verður milt veður og gæti hitinn á Norðausturlandi náð allt að átján stigum. 6.6.2021 09:33
Fleiri en 130 drepnir í árás vígamanna á þorp í Búrkína Fasó Vopnaðir menn drápu fleiri en 130 manns í árás á þorpið Solhan í norðanverðri Búrkína Fasó í nótt. Þeir brenndu heimili fólks og markað þorpsins en ríkisstjórn landsins segir árásina þá verstu um árabil. 6.6.2021 09:00