Bláa lónið opnar á ný Bláa lónið mun opna starfsemi sína á ný næstkomandi sunnudag, klukkan ellefu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lónsins, en þar segir að ákvörðun um opnunina hafi verið tekin í samráði við stjórnvöld. 14.12.2023 20:11
Enn langt í milli Fundi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins í kjaradeilu flugumferðastjóra er lokið. Samningsaðilar funda á ný á morgun klukkan tíu, en næsta vinnustöðvun er næstkomandi mánudag. 14.12.2023 18:41
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Flugumferðarstjórar lögðu niður störf í nótt og morgun. Verkfallsaðgerðir höfðu áhrif á þúsundir farþega og Keflavíkurflugvöllur var meira og minna mannlaus í morgun. Nokkrir farþegar hafa þurft að greiða mikinn aukakostnað vegna verkfallsins. 14.12.2023 18:20
Á ekki rétt á bótum eftir Hraunbæjarmálið Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar um að sýkna Vátryggingafélag Íslands, VÍS, af kröfum fyrrverandi sérsveitarmanns sem glímdi við sálfræðilegar afleiðingar þess að taka þátt í aðgerðum sérsveitarinnar sem leiddu til dauða manns í Árbæ í Reykjavík í desember 2013. 13.12.2023 23:38
Maðurinn með níu líf Guðmundur Hinrik Hjaltason húsasmíðameistari er sagður vera með níu líf. Í vikunni fór hann inn í logandi bíl, til að losa hann úr handbremsu. Aðgerðin bjargaði líklega húsi Guðmundar frá eldsvoða. 13.12.2023 21:47
„Þetta snýst bara um skynsemi“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair og stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins, segir verkfall flugumferðarstjóra, sem hefst á ný í nótt, búa til aðstæður sem minni á lélega bíómynd. 13.12.2023 20:45
Steinþóri mögulega ekki gerð sérstök refsing fyrir manndráp Málflutningur sækjanda og verjanda fór fram í Ólafsfjarðarmálinu svokallaða í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Steinþóri Einarssyni er gefið að sök að hafa veitt Tómasi Waagfjörð bana í Ólafsfirði í október í fyrra. Það hafi hann gert með því að veita Tómasi tvo stunguáverka með hníf sem leiddu til dauða hans. 12.12.2023 15:22
Dómari lék eftir lýsingar Steinþórs sem læknir sagði ómögulegar Læknir sem rannsakaði stungusár á Tómasi Waagfjörð og Steinþóri Einarssyni í kjölfar andláts þess fyrrnefnda var spurður út í lýsingar Steinþórs á átökum hans og Tómasar af dómara í málinu. Steinþór er ákærður fyrir að hafa orðið Tómasi að bana í október í fyrra í íbúð á Ólafsfirði. 12.12.2023 13:59
Greindi frá árás Steinþórs á sofandi Tómas nokkrum vikum fyrr Frændi Tómasar Waagfjörð segir Steinþór Einarsson hafa ráðist á frænda sinn sofandi um tveimur mánuðum áður en Tómas lést af völdum stungusára. Steinþór sætir ákæru fyrir manndrápið en málið er til meðferðar hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra. 12.12.2023 11:26
Stungusárin líklega ekki fyrir slysni Læknir sem fór yfir krufningarskýrslu Tómasar Waagfjörð í Ólafsfjarðarmálinu svokallaða segir ólíklegt að tvö stungusár sem eru talin hafa orðið Tómasi að bana hafi orðið fyrir tilstilli slysni. 12.12.2023 11:12