Stöðva tímabundið bóluefnarannsóknir á börnum Vísindamenn AstraZeneca og Oxford-háskóla hafa stöðvað tímabundið bólusetningar barna með bóluefni sínu gegn Covid-19. Ákveðið hefur verið að bíða á meðan breska lyfjastofnunin (MHRA) rannsakar tengsl bóluefnsisins við sjaldgæfa blóðtappa. 7.4.2021 07:56
Halldór sagður hafa átt fund með Björgólfi Thor Björgólfssyni Halldór Kristmannsson, fyrrverandi yfirmaður samskiptamála hjá Alvogen og náinn samstarfsmaður Róberts Wessman til margra ára, átti fund með Björgólfi Thor Björgólfssyni, aðaleiganda Novator, í nóvember í fyrra. 7.4.2021 07:10
Bílastæðin opin en viðbragðsaðilar funda um þróun mála kl. 9 Ekki hefur verið tilkynnt um breytingar á opnun á gossvæðinu í og umhverfis Geldingadali þrátt fyrir þróun mála í nótt. Samkvæmt stöðufærslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum frá því í gærkvöldi stóð til að opna kl. 6 í morgun. 7.4.2021 06:38
Slegist á veitingastöðum og kaffihúsi Nokkuð annríki var hjá lögreglu í gærkvöldi og nótt en samkvæmt dagbók sinnti lögregla tveimur útköllum vegna slagsmála á veitingastöðum í miðborginni og einu vegna líkamsárásar á kaffihúsi. 7.4.2021 06:17
Lækkun á nýgengi krabbameina fyrripart árs 2020 vegna Covid-19 Í samanburði við meðaltal áranna 2017 til 2019 varð lækkun á nýgengi krabbameina í mars, apríl og maí 2020. Þetta kemur fram í aðsendri grein í Læknablaðinu en höfundar telja líklegt að þetta megi rekja til faraldurs SARS-CoV-2. 6.4.2021 12:55
Gera ráð fyrir að geta fullbólusett 130 þúsund fyrir júnílok miðað við áætlun Pfizer Bólusetningar gegn Covid-19 ganga vel, að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnlæknis, og verða 15 þúsund manns bólusettir í þessari viku. Vegna aukinnar framleiðslugetu Pfizer gera yfirvöld nú ráð fyrir að fullbólusetja 130 þúsund manns fyrir júnílok. 6.4.2021 12:04
Úrskurðurinn kærður til Landsréttar Úrskurður héraðsdóms frá því í tengslum við sóttvarnarhús verður kærður til Landsréttar. Frá þessu greindi Þórólfur Guðnason á upplýsingafundi rétt í þessu. Fimmtán völdu að yfirgefa sóttvarnahús eftir að úrskurðurinn lá fyrir í gær, af um 250. 6.4.2021 11:15
Geðmat ætti að liggja fyrir á allra næstu dögum Niðurstöður úr geðmati á hundi sem beit konu í andlitið á skemmtistaðnum Röntgen í mars síðastliðnum munu liggja fyrir á allra næstu dögum, samkvæmt hundaeftirlitsmanni Reykjavíkurborgar. 6.4.2021 10:37
Áfram lokað á gossvæðinu Áfram verður lokað á gossvæðinu á Reykjanesskaga vegna mengunarhættu. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum. 6.4.2021 10:14
Segja bresku lyfjastofnunina vera að íhuga að endurskoða notkun bóluefnisins frá AstraZeneca Breska lyfjastofnunin (MHRA) segir enga ákvörðun hafa verið tekna varðandi breytingar á notkun Covid-19 bóluefnisins frá AztraZeneca en Channel 4 News greindi frá því í gær að verið væri að skoða að hætta notkun bóluefnisins í yngri aldurshópum. 6.4.2021 09:16