Nefnd um þjóðaróperu klofnaði: Vinnan heldur áfram innan ráðuneytisins Ekki var full samstaða innan nefndar um stofnun þjóðaróperu. Meirihlutinn vildi að lagt yrði fram frumvarp til breytinga á lögum um sviðslistir og stofnun þjóðaróperu lögfest en minnihlutinn skilaði séráliti. 21.5.2021 12:32
„Skæruliðadeild“ Samherja sögð hafa lagt á ráðin um pistlaskrif gegn RÚV og fleirum „Ég fékk skilaboð frá einum af skipstjórunum okkar Páli Steingrímssyni. Hann hefur verið mjög „aktífur“ að skrifa bæði í blöð og á samfélagsmiðlum og getur svarað fyrir sig. Hann sem sagt býður fram krafta sína ef við þurfum nafn á einhver skrif.“ 21.5.2021 10:49
Landlæknir telur Landspítala geta sinnt leghálssýnarannsóknum Embætti landlæknis segir Landspítala eiga að geta sinnt rannsóknum á leghálssýnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Rannsóknirnar eru nú framkvæmdar í Danmörku en fagsamtök heilbrigðisstarfsmanna hafa kallað eftir því að þær verði fluttar heim. 21.5.2021 09:06
Þjáðist af kvíða og kvíðaköstum og vildi gera allt til að hætta að finna til Harry Bretaprins þjáðist af kvíða og fékk alvarleg kvíðaköst þegar hann var yngri. Þá drakk hann stundum „vikuskammt“ af áfengi á einu kvöldi til að takast á við dauða móður sinnar og var tilbúinn til að gera allt til að hætta að finna til löngu seinna. 21.5.2021 07:54
Lögregla rannsakar 97 milljóna tap einstaklings á netinu Lögregla hefur til rannsóknar mál einstaklings sem tapaði 97 milljónum króna á netsvikum. Að sögn Daða Gunnarssonar, lögreglufulltrúa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, tapar eldra fólk stærri fjárhæðum. 21.5.2021 07:07
Handtóku meintan rafmagnshlaupahjólaþjóf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem grunaður er um að hafa brotist inn í verslun og stolið tveimur rafmagnshlaupahjólum. Þá voru tveir menn handteknir í póstnúmerinu 111 fyir húsbrot, eignaspjöll og hótanir. 21.5.2021 06:21
Ríkissaksóknari skipar lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að taka upp rannsókn líkamsárásar Ríkissaksóknari hefur fellt niður ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá því í febrúar síðastliðnum um að hætta rannsókn á ofbeldismáli, meðal annars vegna þess að lögregla óskaði ekki eftir myndum af áverkum né ræddi við vitni. 20.5.2021 07:00
Leystu upp 200 manna unglingasamkomu í Guðmundarlundi Rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu unglingasamkomu í Guðmundarlundi, þar sem um 200 einstaklingar voru saman komnir. 20.5.2021 06:18
Fara ekki fram á aflífun: Hundurinn hafði dvalið á skemmtistaðnum í þrjá tíma Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mun ekki fara fram á að hundurinn sem beit konu á skemmtistaðnum Röntgen í mars síðastliðnum verði aflífaður. Ákvörðunin var tekin í kjölfar skapgerðarmats á hundinum. 19.5.2021 13:40
Smitaðir vinnufélagar mættu í vinnuna þrátt fyrir einkenni Einstaklingarnir tveir sem greindust með Covid-19 í gær eru vinnufélagar á höfuðborgarsvæðinu. Báðir höfðu verið með einkenni í tvo til þrjá daga áður en þeir fóru í sýnatöku. 19.5.2021 11:28