Rússar ná Zaporizhzhia á sitt vald Rússneskar hersveitir hafa náð Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu á sitt vald. Um er að ræða stærsta kjarnorkuver Evrópu, sem hefur sætt stöðugum árásum síðustu daga. Eldur kom upp í verinu í nótt en nýjustu fregnir herma að engin hætta sé á ferðum eins og er. 4.3.2022 08:46
Neitaði ítrekað að lækka háttstillta tónlist Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði ítrekuð afskipti af manni í nótt vegna hávaða frá heimili hans. Um var að ræða verulega háttstillta tónlist en maðurinn var í annarlegu ástandi. Var hann ítrekað beðinn um að lækka og að lokum tilkynnt að hann yrði ákærður fyrir brot á lögreglusamþykkt. 4.3.2022 07:38
Rússar standi ekki við loforð um útgönguleiðir Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með og flytja fréttir af þróun mála í Úkraínu. Árásir Rússa á stærsta kjarnorkuver Evrópu vöktu hörð viðbrögð víða um heim, eftir að eldur kviknaði í einni byggingu versins í nótt. 4.3.2022 06:29
Eldur kviknaði í stærsta kjarnorkuveri Evrópu í kjölfar árása Rússa Búið er að slökkva eld sem kviknaði í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu í nótt. Eldurinn er sagður hafa brotist út í kjölfar skotárása Rússa og náð til þriðju, fjórðu og fimmtu hæðar æfingabyggingar. 4.3.2022 05:59
Tesla firrar sig ábyrgð: Situr uppi með milljóna króna tjón eftir að hafa ekið í poll Samkvæmt ábyrgðarskilmálum Tesla ber fyrirtækið ekki ábyrgð á tjónum sem verða þegar Teslu-bifreið er ekið í vatn sem er dýpra en 20 sentímetrar. Þetta segir Hafþór Pálsson, sem varð fyrir því að glæný Tesla tjónaðist þegar hann ók í poll á dögunum. 3.3.2022 11:02
Tuttugu ríki hafa heitið Úkraínumönnum vopnum Alls hafa um 20 ríki heitið Úkraínu stuðningi í formi vopna af einhverju tagi. Flest þessara ríkja tilheyra Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu en ekki öll. 3.3.2022 07:51
Úkraínski herinn segir Maríupól enn ósigraða Úkraínski herinn segir Rússum ekki hafa tekist að ná völdum í Maríupól, hafnarborg í suðausturhluta landsins. Rússneskar hersveitir hafa setið um borgina síðustu daga og hefur hún sætt stöðugum árásum. 3.3.2022 06:58
Vaktin: Telur ýmislegt benda til þess að Rússar séu á eftir áætlun Vísir heldur áfram að fylgjast með þróun mála í Úkraínu, þar sem rússneski herinn hefur markvisst beint sjónum sínum að mikilvægum innviðum síðasta sólahringinn. Margir Úkraínumenn eru nú án vatns, rafmagns og hita og fjöldi heimila hefur verið eyðilagður. 3.3.2022 05:49
Segja ráðamenn í Kína hafa sagt Rússum að bíða með innrásina þar til eftir Ólympíuleikana Ráðamenn í Kína vissu af fyrirætlunum Rússa um að ráðast inn í Úkraínu ef marka má gögn sem yfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu hafa undir höndum. Komu þeir þeim skilaboðum á framfæri við Rússa að láta ekki til skarar skríða fyrr en að Ólympíuleikunum, sem haldnir voru í Pekíng, væri lokið. 3.3.2022 05:00
Rússar hafa náð Kherson á sitt vald Rússar hafa náð borginni Kherson á sitt vald. Þetta hefur New York Times eftir heimildarmönnum í Úkraínu. Borgarstjóri borgarinnar og bandarísk yfirvöld höfðu áður sagt að óvíst væri um stöðu mála þar sem bardagar stæðu enn yfir. 3.3.2022 04:34