Borgin hætti við að láta reyna á blöðruboltamál fyrir Hæstarétti Borgarlögmaður féll frá áfrýjun í skaðabótamáli fyrrverandi leikskólakennara, sem slasaðist í hópefli starfsmanna, daginn áður en málflutningur átti að vera fyrir Hæstarétti. Lögmaður kennarans segir ákvörðun borgarlögmanns hafa komið sér mjög á óvart. 1.11.2023 16:58
Fær tíu miða klippikort hjá Niceair endurgreitt Þrotabúi Niceair hefur verið dæmt að endurgreiða viðskiptavini 240 þúsund krónur vegna klippikorts sem viðskiptavinurinn hafði ekki fullnýtt áður en Niceair lýsti yfir gjaldþroti. Niceair hætti skyndilega rekstri í apríl á þessu ári og lýsti yfir gjaldþroti mánuði síðar. 1.11.2023 13:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lagt er til að fimm milljóna króna þak verði á sanngirnisbótum í frumvarpi sem forsætisráðherra stefnir á að leggja fyrir þingið í næstu viku. Hún segir mikinn fjölda geta leitað til nefndar um sanngirnisbætur. Farið verður yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 29.10.2023 18:02
Hádegisfréttir Bylgjunnar Ísrael gerði loftárásir nærri stærsta sjúkrahúsi Gasastrandarinnar í morgun. Ísraelsmenn segja Hamas-liða hafa hreiðrað um sig í göngum undir sjúkrahúsinu. Forsætisráðherra Ísraels segir von á löngu og ströngu stríði. Farið verður yfir stöðuna á Gasaströndinni í hádegisfréttum á Bylgjunni. 29.10.2023 11:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ísraelski herinn réðst í umfangsmestu loft- og stórskotaliðsárásir á Gasaströndina síðan átök hófust fyrir þremur vikum. Herinn hefur enn á ný hvatt íbúa norðurhluta strandarinnar til að flýja til suðurs. 28.10.2023 18:00
Lögreglumaður handtekinn fyrir að deila myndbandi af nauðgun Lögreglumaður í Lundúnum hefur verið handtekinn grunaður um að hafa deilt myndbandi úr öryggismyndavél, sem talið er hafa verið af nauðgun. Konan sem talið er að hafi verið nauðgað á myndbandinu lést síðar sama kvöld. 27.10.2023 15:16
Niðurstaðan kveði ekki á um endurgreiðslu skrásetningargjalds Háskólaráðherra segir nýjan úrskurð ekki kveða á um endurgreiðslu skrásetningargjalda né að það sé í heild sinni ólögmætt. Stúdentaráð hefur krafið háskólann um endurgreiðslu. 27.10.2023 14:31
Verkirnir verri þegar hún var á túr en daginn eftir aðgerð Tuttugu og fimm ára gömul kona segir að loks hafi verið hlustað á hana eftir að hafa kvartað í þrettán ár undan martraðakenndum tíðarverkjum. Hún fór í kviðarholsaðgerð í gær vegna legslímuflakks og segir verkina eftir aðgerðina mun betri en mánaðarlegu tíðarverkina sem hún glímdi við. 27.10.2023 13:58
Fyrsta sinn í Íslandssögunni sem nýir foreldrar eru alveg einir á báti Sérfræðingur í fjölskyldu- og hjónabandsráðgjöf segir mjög mikilvægt fyrir allar kynslóðir að ömmur og afar hjálpi nýjum foreldrum og passi barnabörnin. Nýir foreldrar eigi ekki rétt á að amma og afi passi en samtal um þátttöku þeirra verði að eiga sér stað. 27.10.2023 09:09
Leit stendur enn yfir að byssumanninum í Maine Mannsins, sem skaut átján til bana og særði þrettán í Lewiston á miðvikudagskvöld, er enn leitað. Lögregla leitaði hús úr húsi í heimabæ mannsins í gærkvöldi. 27.10.2023 08:29