Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi í haust en verðbólga hefur aukist þvert á spár. Við ræðum við hann í kvöldfréttum en hann segir það vonbrigði hversu mikið flugfargjöld hafa hækkað og segir að grannt sé fylgst með því að lækkun olíuverðs á heimsmarkaði skili sér til neytenda. Þá mætir Halla Gunnarsdóttir formaður VR til okkar til að fara yfir þetta mál. 26.6.2026 18:10
Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Margrét Jónsdóttir Njarðvík hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti af Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Margrét var rektor Háskólans á Bifröst í tæp sex ár en hætti eftir að hún kærði þrjá kennara við skólann til siðanefndar. 26.6.2026 18:01
Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna „Maður er að vona að það séu ekki fleiri en samt er maður að vona að ef það eru fleiri að maður finni þá,“ segir Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir, móðir stúlku sem lenti í alþjóðlega netofbeldishópnum 764. 22.6.2026 07:00
Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Hversu vel fylgist þú með? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í henni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum. 21.6.2026 06:00
Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis. 20.6.2026 06:02
Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST „Ég veit það ekki alveg,“ segir Diana Burkot og hlær, aðspurð hvernig það hafi gengið að koma sér fyrir í íslensku samfélagi eftir flóttann frá Rússlandi Vladimír Pútíns. Hún hafi á unglingsaldri upplifað lífið sem skýrar hæðir og lægðir en með aldrinum hafi tilfinningalífið orðið aðeins blæbrigðaríkara. 17.6.2026 09:03
Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Bláa lónið hefur fest kaup á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er stefnt að samruna fyrirtækjanna. Þá hefur Bláa lónið hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað. 16.6.2026 14:05
ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Evrópuþingið og ráðherraráð Evrópusambandsins (ESB) hafa náð samkomulagi um uppfærðar reglur um réttindi flugfarþega. Tillögurnar fela meðal annars í sér að flugfélögum verði gert skylt að sjá til þess að hver sá sem ferðast með barni undir fjórtán ára aldri fái að sitja í næsta sæti án aukakostnaðar. Það sama á við um ófrískar konur og farþega með fötlun og skerta hreyfigetu. 16.6.2026 13:28
Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Elísa Dögg Moraitis Björnsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip. Sviðinu tilheyra innanlandsflutningar og vörudreifing, vöruhúsa- og frystigeymslustarfsemi ásamt fasteignaumsjón. Elísa tekur formlega við starfinu af Eddu Rut Björnsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra, á næstu vikum. 16.6.2026 10:26
Tveir í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásar Tveir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við alvarlega líkamsárás sem átti sér stað í Reykjanesbæ í fyrrinótt. Þrír voru handteknir við Valhallarbraut eftir stunguárás og einn fluttur á sjúkrahús með stungusár. Sérsveit aðstoðaði lögregluna við aðgerðir. 16.6.2026 10:04