Listrænt ofurpar opnar nýstárlega og skapandi umboðsskrifstofu Listræna parið Sigrún Eva Jónsdóttir og Sonny hefur komið víða að í hinum skapandi heimi. Þau ákváðu snemma árs að sameina krafta sína og er afraksturinn umboðsskrifstofa og skapandi rými undir heitinu Grounded Creative Studios. Skrifstofan opnar í sumar og með verkefninu langar þau að nálgast umboðsheiminn á nýjan hátt. Blaðamaður tók púlsinn á þeim. 20.6.2023 12:30
Sóley lætur drauminn rætast og brýtur niður steríótýpíska veggi „Mér finnst svo frábært að fá þetta tækifæri til að brjóta niður þennan steríótýpíska vegg,“ segir hin sextán ára gamla tónlistarkona og aktívisti Sóley Lóa Smáradóttir, sem stendur fyrir einkatónleikum í Laugarneskirkju á fimmtudagskvöld. Sóley er á leið á námskeið í hljómsveitarstjórn í Bandaríkjunum sem hefur löngum verið draumur hjá henni og eru tónleikarnir hugsaðir sem styrktartónleikar fyrir námskeiðinu. Blaðamaður ræddi við Sóleyju. 19.6.2023 20:00
Festist á Tortóla í faraldrinum Lífskúnstnerinn, ævintýramaðurinn, flugþjóninn, siglingaþjálfarinn og mótorhjóla áhugamaðurinn Þór Örn Flygenring ber bersýnilega marga hatta og hefur verið óhræddur við að ferðast til framandi staða einn síns liðs. 18.6.2023 10:00
Fjallar um eigið tilfinningalíf og krísur Tónlistarkonan Róshildur var að senda frá sér lagið Fólk í blokk (v2,3) en lagið var í dag kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957. 17.6.2023 17:01
„Mér finnst leiðinlegt að vera alveg svartklædd“ Tónlistarkonan Klara Elias leyfir litagleðinni að njóta sín í klæðaburði og er lítið fyrir svartar flíkur. Hún elskar að tengja tónlist og tísku þegar hún kemur fram og er bleikur jakki sem hún klæddist á stóra sviðinu í Herjólfsdal í persónulegu uppáhaldi. Klara Elias er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 17.6.2023 11:30
Hefur nú heimsótt öll fimmtíu ríki Bandaríkjanna: „Ólýsanleg tilfinning“ Lífskúnstnerinn Hanna Guðrún Halldórsdóttir hafði löngum haft það að markmiði að heimsækja öll fimmtíu ríki Bandaríkjanna og hefur því verið dugleg að ferðast síðastliðin ár. Þegar hún flaug til Alaska í síðustu viku lauk hún ætlunarverki sínu en það var einmitt síðasta ríkið sem hún átti eftir að heimsækja. Blaðamaður fékk að heyra nánar frá Bandaríkja ævintýrum Hönnu Guðrúnar. 15.6.2023 07:00
„Talar um hvernig allt er breytt á einu augnabliki“ „Úr varð þetta lag um skilnað og sambandsslit sem endaði svo persónulegt að það eiginlega kom ekki til greina að neinn annar myndi syngja það en ég sjálf,“ segir tónlistarkonan Klara Elias um lagið Nýjan stað, sem hún var að senda frá sér. Blaðamaður tók púlsinn á Klöru. 14.6.2023 10:00
Frumsýnir tónlistarmyndband: „Ég er að syngja um söguna mína“ Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á nýju tónlistarmyndbandi Herberts Guðmundssonar við lagið Ástarbál. Með laginu er Herbert að segja sögu sína en hann segist þakklátur fyrir jákvæð viðbrögð við tónlistinni sinni. 13.6.2023 12:48
„Hamingjan er hugarástand sem er jafngilt hvort sem það eru skin eða skúrir“ „Lagið fjallar um hvernig það er í okkar höndum að hafa gaman af hlutum, sama þó að eitthvað leiðinlegt komi upp á,“ segir hljómsveitin Celebs, sem var að senda frá sér lagið Bongó, blús & næs. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 í dag. 10.6.2023 17:01
„Hræðir mig mest að þurfa að fara aftur í buxur“ „Samfélagið var alltaf að segja okkur að maður gæti ekki dýrkað aðrar konur, það var alltaf verið að stilla okkur upp á móti hvor annarri og maður hefur sjálfur þurft að læra að stíga burtu frá þessari toxic, gömlu og þreyttu samfélagslegri hegðun,“ segir Reykjavíkurdóttirin, hönnuðurinn, framleiðandinn og leikstjórinn Þura Stína. 10.6.2023 11:30