Lög ársins 2022 hjá plötusnúðinum Sóleyju Plötusnúðurinn DJ Sóley Bjarna ræddi við Lífið á Vísi um þau lög sem henni fannst standa upp úr á árinu. 16.12.2022 20:01
Best klæddu Íslendingarnir árið 2022 Litagleði eða svart og hvítt? Látlaust eða áberandi? Klæðaburður er fjölbreytt listform sem getur með sanni dreift gleði til hvers og eins og öll eigum við það sameiginlegt að búa yfir persónulegum stíl, þó hann geti verið mis mikið úthugsaður. 16.12.2022 06:00
Fjölbreyttur hópur íslenskra tónlistarkvenna í uppáhaldi Tónlistarárið 2022 var viðburðaríkt og fjölbreytt og eflaust voru ótal margir sem nutu þess til hins ítrasta að geta upplifað tónleika í margmenni á ný. Lífið á Vísi tók púlsinn á nokkrum þekktum einstaklingum sem eiga það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á tónlist og báðum við þá að segja hvað stóð upp úr hjá þeim í tónlistinni í ár. 15.12.2022 20:00
Uppáhalds lög Birgittu Lífar árið 2022 Árið 2022 var með sanni viðburðaríkt í tónlistinni og fjölbreytileikinn skein skært með ólíkum tónlistarstefnum sem náðu vinsældum. Lífið á Vísi tók púlsinn á nokkrum þekktum einstaklingum sem eiga það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á tónlist og báðum við þá að deila með lesendum hvað stóð upp úr hjá þeim í tónlistinni í ár. 14.12.2022 20:00
Snorri Ásmundsson segist tilbúinn í hlutverkið besti málari Evrópu Snorri Ásmundsson er nýkominn heim úr ævintýralegri og vel heppnaðri gestavinnustofudvöl í Vínarborg þar sem hann hélt frægan píanó gjörning og einkasýningu. Blaðamaður tók púlsinn á Snorra sem hefur nú gefið út yfirlýsingu um það sem koma skal. 14.12.2022 11:30
„Eina sem maður kemst ekki hjá er að fæðast og deyja“ „Móðir mín fór til spákonu og spákonan sagði að dóttir hennar yrði listakona. Þannig að mamma sendi mig strax í myndlist, sem er dálítið fyndið,“ segir listakonan, ljósmyndarinn og leikstjórinn Anna Maggý en hún er viðmælandi í þessum nýjasta þætti af Kúnst. 13.12.2022 06:00
Bestu lög ársins að mati Binna Glee Tónlistarárið 2022 var bæði fjölbreytt og viðburðaríkt. Hérlendis sló ýmislegt í gegn, allt frá endurgerð á sígildum dægurlögum yfir í rappið, og var að öllum líkindum eitthvað sem féll í kramið hjá hverjum og einum. Lífið á Vísi heyrði í nokkrum þekktum einstaklingum sem eiga það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á tónlist og báðum við þá að segja hvað stóð upp úr hjá þeim í tónlistinni í ár. 12.12.2022 20:01
P!nk með vinsælasta lagið Tónlistarkonan P!nk situr í fyrsta sæti Íslenska listans á FM957 þessa vikuna með lagið sitt „Never Gonna Not Dance Again“. Lagið hefur verið á stöðugri siglingu upp listann undanfarnar vikur og er þetta í fyrsta skipti í dágóðan tíma sem hún er mætt á toppinn. 10.12.2022 16:01
Íslensk listakona á Art Basel í Miami „Ég er alltaf jafn hissa þegar ég fæ þessi tækifæri, það er algjör heiður að fá að taka þátt á þessari hátíð,“ segir listakonan María Guðjohnsen í samtali við blaðamann en María tók á dögunum þátt í listahátíðinni Art Basel í Miami. Hátíðin er ein stærsta sinnar tegundar í listheiminum en María er búsett í New York þar sem hún sinnir listsköpuninni af fullum krafti. 8.12.2022 20:01
Elskar að henda sér út í djúpu laugina „Allt frá því ég var krakki hef ég haft áhuga á tölvum og listsköpun,“ segir listamaðurinn og tölvunarfræðingurinn Halldór Eldjárn sem opnar sýninguna „flora inorganica“ á morgun þar sem tækni, plöntur og myndlist blandast saman. Sýningin fer fram í STAK að Hverfisgötu 32 og hefur verið opin gestum alla vikuna þar sem hægt er að fylgjast með verkum í vinnslu og uppsetningu sýningarinnar. 7.12.2022 13:02