Ármann og Magnús ganga til liðs við Rexby Íslenska sprotafyrirtækið Rexby hefur ráðið Ármann Kristjánsson og Magnús Skúlason til sín. Ármann mun bera ábyrgð á notendaupplifun fyrirtækisins en Magnús við forritun. 24.10.2022 22:04
„Ólíðandi og ámælisvert“ að vera sniðgengin Fulltrúar lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar telja sig hafa verið sniðgengna í umræðu um umsókn bæjarins um að vera útnefnd ein af menningarborgum Evrópu árið 2028. Menningar- og viðskiptaráðuneytið lét engan vita af möguleikanum í tæpa átta mánuði. 24.10.2022 21:43
Falskar spár um heimsendi voru kornið sem fyllti mælinn Örn Svavarsson gekk úr söfnuði Votta Jehóva á þrítugsaldri. Hann segir kornið sem fyllti mælinn hafa verið fölsk spá um heimsendi. Hann segir söfnuðinn byggja einhverjar skoðanir sínar á hlutum sem eru alls ekkert í Biblíunni líkt og haldið er fram. 24.10.2022 20:30
Leslie Jordan er látinn Bandaríski leikarinn Leslie Jordan er látinn, 67 ára að aldri. Jordan lést í dag eftir bílslys í Hollywood. Hann var sjálfur að aka þegar banaslysið átti sér stað en talið er að hann hafi misst meðvitund við aksturinn og ekið á byggingu. 24.10.2022 20:14
Nýr framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins Maríjon Ósk Nóadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins. Maríjon hefur starfað fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem lögfræðingur upp á síðkastið. 24.10.2022 19:01
Henry Cavill snýr aftur sem Superman Breski stórleikarinn Henry Cavill kemur til með að leika Clark Kent og ofurhetjuna Superman, í næstu kvikmynd um illmennið Black Adam. Cavill hefur ekki klætt sig í búninginn síðan árið 2017. 24.10.2022 17:29
Mjóddin má muna sinn fífil fegurri Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar hefur lagt til að ráðist verði í umbætur á strætóskiptistöðinni í Mjóddinni. Stöðin er sú fjölfarnasta á landinu. 22.10.2022 07:01
Reykjavíkurborg hunsi úthverfin þegar kemur að fegrun Tæplega sjötíu prósent af Fegrunarviðurkenningum Reykjavíkurborgar síðustu tíu ár hefur farið til lóða í Miðborginni eða Vesturbænum. Borgarfulltrúi Flokks fólksins gagnrýnir að úthverfin séu oftar en ekki skilin eftir. Þau hafa fengið einungis tæp tíu prósent viðurkenninga. 21.10.2022 13:31
Arion hækkar vexti innlána og annarra útlána en íbúðalána Arion banki hefur hækkað vexti á innlánum og öllum útlánum fyrir utan íbúðalán. Hækkunin á kjörvöxtum tekur í gildi eftir þrjátíu daga en vextir yfirdráttarlána og innlána breytast á morgun. 21.10.2022 11:27
Gríðarleg aukning í ræktun kókaínrunna Ræktun á kókaínrunnum í Kólumbíu hefur aukist um 43 prósent samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Forseti landsins segir stríðið gegn eiturlyfjum vera tapað. 21.10.2022 07:58