Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Fjórir menn voru í gær úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innflutningi fíkniefna. Mennirnir eru taldir hafa tekið á móti þónokkrum fíkniefnasendingum síðustu vikur. 1.10.2026 11:57
Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Allar fjórar stærstu sælgætisgerðir landsins skiluðu hagnaði 2025. Aðeins þær stærstu, Nói Síríus og Góa-Linda, greiða hluthöfum arð þetta árið. 1.10.2026 08:01
Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Vegna tilfærslu á ábyrgð heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkis hefur öllum 76 heilbrigðisfulltrúum landsins verið sagt upp. Þeir hafa fengið loforð um endurráðningu en ekki er búið að bjóða neinum nýtt starf hjá stofnununum sem taka við eftirlitinu. 30.9.2026 15:57
Tvöfalda makrílráðgjöf Alþjóðahafrannsóknarráðið (ICES) tvöfaldar veiðiráðgjöf á makríl milli ára. Lagt er til að veiði verði ekki meiri en 353 þúsund tonn og er hrygningarstofninn nú metinn yfir varúðarmörkum. Stofninn er þó enn lítill í sögulegu samhengi. 30.9.2026 11:54
Samherji selur Margréti til Færeyja Uppsjávarskipið Margrét EA-710 hefur verið selt og afhent kaupanda í Færeyjum. Samherji keypti skipið 2023 en það var smíðað 2008. 30.9.2026 10:50
Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti Bilun hefur komið upp í háspennuleiðara við vélaspenni í Fljótsdalsstöð. Talið er að viðgerð taki sex til átta vikur. Aðrar vélar stöðvarinnar verða prófaðar næstu vikur til að tryggja að samskonar bilun komi ekki upp. 30.9.2026 09:39
Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Landsnet hefur ákveðið að fresta opnum haustfundi sem átti að halda á fimmtudag vegna alvarlegs slyss sem átti sér stað í tengivirki í Borgarfirði í gær. 29.9.2026 16:20
Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Karlmaður á fimmtugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um að hafa veist að konu á fertugsaldri í íbúð í Kópavogi. Áverkar konunnar eru sagðir alvarlegir. 29.9.2026 15:37
Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Stýrivextir munu standa í stað næstu mánuði og verða sex prósent undir lok 2028 samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka. Gert er ráð fyrir að kjarasamningar muni halda þrátt fyrir virkt forsenduákvæði. 29.9.2026 14:17
Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Sex hafa verið sendir í leyfi eftir að lúxusíbúð fannst innan veggja fangelsis í Indónesíu. Talið er að fangar hafi búið í íbúðinni. Þar mátti meðal annars finna líkamsrækt og golfhermi. 29.9.2026 13:48