„Við erum að finna smit sem við getum ekki rakið til landamæranna“ „Ég held að þær sóttvarnaaðgerðir sem við höfum verið með virki á öll afbrigði,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir spurður út í nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem fannst í Víetnam. Er það talið meira smitandi en önnur afbrigði veirunnar en Þórólfur hefur ekki teljandi áhyggjur af því. 31.5.2021 14:16
Stefnir í einn af betri dögum það sem af er ári Það stefnir í einmuna veðurblíðu á miðvikudag, sem gæti orðið einn af bestu dögum ársins veðurfarslega séð það sem af er ári. 24.5.2021 15:36
Róleg vika í bólusetningum Það stefnir í rólega viku í bólusetningum hér á landi. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir í samtali við fréttastofu að 7.700 skammtar af Pfizer verði gefnir á miðvikudag á höfuðborgarsvæðinu. 24.5.2021 10:59
Telur hraunið geta náð Suðurstrandarvegi á einni til tveimur vikum Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur telur hraunið geta náð Suðurstrandarvegi á einni til tveimur vikum. Hann segir skynsamlegt að ráðist verði í varnir í Nátthaga til að þrengja för hraunsins í átt að veginum og út í sjó svo sem minnst tjón verði. 23.5.2021 17:17
Daði lofaði afa sínum sigri í Eurovision í afmælisgjöf Daði Freyr Pétursson, Eurovision-fulltrúi Íslendinga þetta árið, var heldur betur búinn að lofa afa sínum Björgvini Kristjáni Þorvarðarsyni, veglegri afmælisgjöf þetta árið. 22.5.2021 11:57
Ráðleggur fólki frá því að vera efst í Nátthaga Umhverfis- og byggingaverkfræðingur ráðleggur fólki frá því að vera efst í Nátthaga þar sem líkur eru á að hraun fari fljótlega að renna niður brekkuna og ofan í Nátthaga. 22.5.2021 10:37
Hnepptu meintan stórsmyglara í varðhald með aðstoð spænsku lögreglunnar Lögreglan á Suðurnesjum telur sig vera með höfuðpaur í umfangsmiklu fíkniefnamáli í gæsluvarðhaldi. Maðurinn var framseldur til Íslands frá Spáni í marsmánuði. Fjórir til viðbótar voru handteknir vegna málsins sem lögregla flokkar sem skipulagða glæpastarfsemi. 21.5.2021 18:11
Telur víst að minnst eitthundrað megi koma saman eftir helgi Heilbrigðisráðherra telur nokkuð öruggt að 100 manns hið minnsta verði leyft að koma saman þegar nýjar samkomutakmarkanir taka gildi eftir helgi. Grímuskyldan er einnig til skoðunar en ráðherra telur að hún verði afnumin í áföngum. 18.5.2021 17:58
Þingmenn þungt hugsi eftir umfjöllun Kompáss: „Vægast sagt sláandi“ Þingmönnum var mörgum hverjum mikið niðri fyrir þegar skipulögð glæpastarfsemi var rædd á þinginu í dag. Upphafsmaður umræðunnar var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins sem telur ástæðu til að óttast að Íslendingar séu að missa tökin á skipulagðri glæpastarfsemi. 18.5.2021 16:15
Bjartsýn á að hægt verði að ráðast í frekari afléttingar Forsætisráðherra er bjartsýn á að hægt verði að ráðast í afléttingar á sóttvarnaaðgerðum innanlands í næstu viku. Enginn greindist með veiruna innanlands í gær og tæp 52 prósent fullorðinna hafa fengið eina sprautu af bóluefni við kórónuveirunni. 18.5.2021 11:46