Segir tímamót framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og ýmsum fíknisjúkdómum Geðlæknir segir að búast megi við byltingu í geðlækningum á næstu árum með lyfjum sem unnin eru úr svokölluðum ofskynjunarsveppum. Rannsóknir hafi sýnt að þau geti gagnast afar vel við þunglyndi, kvíða, áfallastreitu og fíknisjúkdómum. Hópur sérfræðinga skoði að leita til Lyfjastofnunar og ráðherra til að fá að gera rannsóknir á lyfinu hér á landi. 19.5.2021 14:45
Gísli Marteinn: Hópurinn farið varlega og sérstaklega Gagnamagnið Gísli Marteinn Baldursson, kynnir Íslands í Eurovision, segir að smit hjá meðlimi Gagnamagnsins hafi komið íslenska hópnum í opna skjöldu. Hópurinn hafi farið einstaklega varlega í Rotterdam en allt hafi komið fyrir ekki. 19.5.2021 12:42
„Við verðum að standa með mannréttindum og eigin samvisku“ Einn forsvarsmanna mótmælanna við Hörpu í morgun segir að nú þurfi íslensk stjórnvöld að sýna Palestínumönnum stuðning í verki og setja viðskiptabann á Ísrael. Þá sé stuðningi Bandaríkjanna við hernaðaraðgerðir Ísraelsmanna gegn Palestínu harðlega mótmælt. 18.5.2021 12:08
Mikil fjölgun bráðatilfella á Bugl: Mjög ljót neteineltismál og fleiri átröskunartilfelli Mikil aukning hefur verið á tilfellum bráðavanda hjá börnum og ungmennum á Bugl. Fjölgun milli ára er um 30-40%. Sérfræðilæknir þar segir að fleiri átröskunartilfelli hafi komið upp en áður. Þá séu mjög alvarleg neteineltismál að koma upp. 17.5.2021 13:31
Minnisblað væntanlegt: Mun meiri áhugi á landinu nú en við gerðum ráð fyrir Sóttvarnarlæknir segir að mun fleiri komi nú til landsins en gert hafi verið ráð fyrir. Hann skilar heilbrigðisráðherra minnisblaði um aðgerðir á landamærum á næstunni. Best væri ef hægt væri að taka á móti öllum án þess að slaka á sóttvarnarkröfum. 14.5.2021 12:07
„Eitt ljótasta mál sem ég hef séð á 30 ára ferli“ Sviðsstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir sakamál gegn eiganda starfsmannaleigunnar 2findjob eitt það ljótasta sem hann hefur séð á sínum 30 ára ferli. Mikil íkveikjuhætta var í húsnæðinu og ljóst að þar hefði getað orðið stórslys. Verkamenn bjuggu í litlum svefnkössum sem var staflað upp. 12.5.2021 13:31
Bóluefnin eru kröftug og því eðlilegt að margir finni fyrir aukaverkunum Níundi einstaklingurinn greindist smitaður af kórónuveirunni í Skagafirði í gær. Sóttvarnalæknir segir hópsýkinguna þar dreifðari en menn hafi í fyrstu talið. Hann segir að þó margir kvarti yfir aukaverkunum vegna bólusetninga sé það eðlilegt, bóluefnin séu mjög kröftug. 11.5.2021 13:05
Töldu sig mega koma því Spánn var grænn þegar þau keyptu farmiða Tíu ferðamenn sem komu til landsins frá Spáni í gær var snúið til baka í morgun. Fólkið var ósátt við að mega ekki dvelja hér og sagðist hafa keypt farmiða þegar Spánn var grænt land. Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir það ekki skipta máli heldur hvort land sé skilgreint hættusvæði þegar fólk kemur til landsins. 10.5.2021 13:06
Bylgja Metoo-frásagna skiljanleg en erfitt að meta hvar mörkin liggja Formaður ráðgjafateymis um kynferðisofbeldi segir að hvorki hafi orðið nægar breytingar í dómskerfinu né í viðhorfum frá síðustu Metoo-bylgju og því skiljanlegt að þolendur stígi nú fram. Þolendur lýsi gjarnan geranda án þess að greina frá nafni sem geti haft þau áhrif að stór hópur saklausra sé grunaður um ofbeldið. Erfitt sé að ákveða hvar mörkin liggja í þessum málum. 7.5.2021 13:00
Afkoma þriggja banka 24 milljörðum betri en á sama tíma í fyrra Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn hafa nú allir skilað uppgjöri fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins. Samanlagður hagnaður þeirra er 17,2 milljarðar króna samanborið við sjö milljarða tap á sama tíma í fyrra. Landsbankinn skilar mestum hagnaði eða 7,6 milljörðum, Arion banki 6 milljörðum og Íslandsbanki 3,6 milljörðum króna. 6.5.2021 14:50