Gætu gripið til hertra aðgerða forsætisráðherra Noregs kveðst hafa miklar áhyggjur af útbreiðslu kórónuveirunnar í landinu og að vel mögulegt sé að grípa þurfi til hertari aðgerða til að stemma stigu við útbreiðsluna. Óvissan sé mikil og staðan alvarleg. 10.9.2020 13:41
Styrkir Píeta-samtökin um sex milljónir Heilbrigðisráðherra mun jafnframt tryggja tólf milljóna króna fjármagn fyrir stöðu verkefnastjóra sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis út næsta ár. 10.9.2020 13:30
Frá Bændasamtökunum og til Mjólkursamsölunnar Erna Bjarnadóttir hagfræðingur hefur verið ráðin verkefnastjóri á rekstrarsviði hjá Mjólkursamsölunni. 10.9.2020 12:02
Tekur við starfi framkvæmdastjóra ÍMARK Þóra Hrund Guðbrandsdóttir hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri ÍMARK – samtaka markaðsfólks á Íslandi. 10.9.2020 11:55
Fjórir greindust innanlands Fjögur smit greindust innanlands í gær og þrjú á landamærunum, en beðið er eftir niðurstöðum mótefnamælingar. Tveir þeirra sem greindust innanlands voru í sóttkví, en tveir ekki. 10.9.2020 11:00
Íslandsbanki hlaut Íslensku þekkingarverðlaunin 2020 Fulltrúar bankans tóku við verðlaununum úr hendi Guðna Th. Jóhannessonar forseta á Bessastöðum í morgun. 10.9.2020 10:50
Banna dvöl fólks í almenningsgörðum á Nørrebro Lögregla í Danmörku hyggst um helgina banna dvöl fólks á ákveðnum svæðum í tveimur almenningsgörðum á Nørrebro í Kaupmannahöfn til að koma í veg fyrir fjölmennar samkomur. 10.9.2020 10:36
Ys og þys á fasteignamarkaði í júlí Fasteignaviðskipti virðast enn vera í miklum uppgangi en fjöldi þinglýstra kaupsamninga hefur ekki verið meiri það sem af er ári en í júlí síðastliðnum. 10.9.2020 09:32
Bíll á hliðina eftir árekstur á Flókagötu Bíll fór á hliðina eftir árekstur tveggja bíla við gatnamót Flókagötu og Snorrabrautar í morgun. 10.9.2020 08:43
Bein útsending: Ræða möguleika og samkeppnishæfni Íslands Netráðstefnan Towards Sustainable Growth in a Competitive World hefst núna klukkan 8:30 þar sem ræddir verða möguleikar og samkeppnishæfni Íslands á viðskiptalegum, samfélagslegum og faglegum grunni. 10.9.2020 08:31