Kröpp lægð gengur yfir austanvert landið Kröpp lægð gengur nú yfir austanvert landið og veldur hún suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu austantil á landinu fram eftir morgni. Mun hægari vindur og úrkomuminna er í öðrum landshlutum. 9.3.2022 07:10
Tólf milljarða hagnaður af rekstri OR á síðasta ári Tólf milljarða króna hagnaður varð af rekstri Orkuveiru Reykjavíkur á síðasta ári. Ársreikningur samstæðunnar var samþykktur af stjórn í dag og er lagt til við aðalfund að greiddur verði arður til eigenda – það er Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð – sem nemi fjórum milljörðum króna. 8.3.2022 14:55
Google kaupir netöryggisfyrirtæki fyrir 5,4 milljarða dala Tækni- og netrisinn Google hyggst kaupa netöryggisfyrirtækið Mandiant fyrir um 5,4 milljarða Bandaríkjadala, rúmlega 720 milljarða króna. Með kaupunum stefnir Google að því að tryggja betur gögn viðskiptavina sinna í skýinu. 8.3.2022 14:25
Bjóða fundarlaun í leitinni að hinum belgíska Theo Hayez Þremur árum eftir að tilkynnt var um hvarf hins belgíska Theo Hayez í Ástralíu hafa yfirvöld í Nýju Suður-Wales boðið þeim sem kemur með upplýsingar sem leiðir til að málið upplýsist 500 þúsund ástralskra dala, um 50 milljónir króna. 8.3.2022 11:45
Tveir karlmenn á áttræðisaldri með Covid-19 létust á Landspítala Tveir karlmenn á áttræðisaldri með Covid-19 létust á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. 8.3.2022 11:10
„Fráveitan hefur ekki undan“ Þrjár tilkynningar hafa borist Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um vatnsleka, meðal annars í Hafnarfirði, í morgun. 8.3.2022 10:17
Ráðin til sjóbaða Skúla í Hvammsvík Hilmar Þór Bergmann, Fríða Jónsdóttir, Gróa Jónsdóttir og Guðmundur Guðjónsson hafa öll verið ráðin til starfa til að vinna að uppbyggingu ferðaþjónustu í Hvammsvík í Hvalfirði. 8.3.2022 09:11
Þorkell dregur framboðið til baka í kjölfar „rætinnar gagnrýni“ Þorkell Sigurlaugsson hefur ákveðið að draga framboð sitt til formanns Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis (FEB) til baka. Hann segir að eftir umhugsun og samtöl við stuðningsfólk hafi honum ekki þótt við hæfi að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni og þá hafi hann ekki viljað trufla framboð sitt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar þar sem hann sækist eftir 2. sæti. 8.3.2022 08:00
Tuttugu nú látnir í flóðunum í Ástralíu Tveir til viðbótar hafa nú látið lífið í flóðunum sem herjað hefur á íbúa austurhluta Ástralíu síðustu vikurnar. Alls hafa tuttugu nú látið lífið vegna flóðanna. 8.3.2022 07:37
Lægð nálgast hægt og bítandi úr suðri Lægð nálgast nú hægt og bítandi úr suðri og skil frá henni ganga nú yfir landið með tilheyrandi umhleypingum. 8.3.2022 07:11