Samkaup lækkar verð á fjögur hundruð vörum um tíu prósent Verslunarkeðjan Samkaup hefur ákveðið að lækka verð á yfir fjögur hundruð vörunúmerum undir vörumerkjum Änglamark og lágvörumerkinu X-tra í öllum verslunum sínum. Um er að ræða tíu prósenta verðlækkun á vörunúmerunum sem þegar hefur tekið gildi og kemur til með að haldast óbreytt fram til áramóta hið minnsta. 1.9.2022 14:32
Gripinn með fimm þúsund sterkar OxyContin-töflur Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag karlmann á þrítugsaldri í gæsluvarðhald til 7. september vegna rannsóknar á innflutningi á um fimm þúsund töflum af OxyContin. 1.9.2022 13:23
Sveinn Friðrik nýr rekstrarstjóri Arctic Trucks International Sveinn Friðrik Sveinsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Arctic Trucks International ehf. 1.9.2022 13:18
Borgin slítur vinaborgarsamstarfi við Moskvu Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í morgun einróma að slíta vinaborgasamstarfi við rússnesku höfuðborgina Moskvu, á grundvelli samstarfssamnings sem í gildi hefur verið milli borganna frá árinu 2007. 1.9.2022 12:48
Munu standa að gerð Áramótaskaupsins í ár Dóra Jóhannsdóttir mun leikstýra Áramótaskaupinu í ár og Saga Garðarsdóttir verður yfirhöfundur þess. 1.9.2022 11:02
Pútín verður ekki viðstaddur útför Gorbatsjov Vladimír Pútín Rússlandsforseti mun ekki sækja útför Míkhaíl Gorbatsjov, síðasta leiðtoga Sovétríkjanna, sem fram fer í Moskvu á laugardag. 1.9.2022 10:34
Auglýsa eftir 150 flugliðum og 55 flugmönnum Flugfélagið Play hefur ákveðið að auglýsa eftir 150 flugliðum fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf, auk 55 flugmanna, bæði með og án reynslu. 1.9.2022 09:53
Ólafur settur forstjóri Skipulagsstofnunar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur sett Ólaf Árnason, forstöðumann nýsköpunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun, í embætti forstjóra stofnunarinnar frá 1. september til 31. desember 2022. 1.9.2022 09:28
Breski sjónvarpsmaðurinn Bill Turnbull er látinn Hinn ástsæli breski sjónvarpsmaður, Bill Turnbull, er látinn, 66 ára að aldri. Turnbull var einna helst þekktur fyrir að stýra morgunþætti BBC í sjónvarpi, BBC Breakfast, um fimmtán ára skeið. 1.9.2022 08:53
Stjórnarformaður olíurisa látinn eftir fall út um sjúkrahúsglugga Ravil Maganov, stjórnarformaður rússneska olíu- og gasrisans Lukoil, er látinn eftir að hafa fallið út um glugga á sjúkrahúsi í rússnesku höfuðborginni Moskvu í morgun. 1.9.2022 08:17