Olíumengun frá togara reyndist vera sprungið hvalshræ Það sem talin var olíumengun úr togaranum Beiti TFES, og nýverið var tilkynnt um til Landhelgisgæslunnar, reyndist koma frá strungnum hvalshræi sem sat fast á perustefni skipsins. 16.9.2022 11:06
Rennibraut verði komin upp í Dalslaug í vor Reiknað er með að vatnsrennibraut verði komin upp í Dalslaug í Úlfarsárdal næsta vor. Borgarfulltrúi segir að með þessu sé verið að svara ákalli íbúa en upphaflegar áætlanir gerðu ekki ráð fyrir að rennibraut yrði í lauginni sem opnaði í desember á síðasta ári. 16.9.2022 10:48
María tekur við sem fjármálastjóri HPP Solutions María Jónsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri HPP Solutions ehf. Hún var áður fjármálastjóri Héðins, sem HPP var hluti af fram til síðustu áramóta. 16.9.2022 09:09
Fundu fjöldagröf með fjögur hundruð líkum í Izyum Úkraínumenn hafa fundið merki um fjöldagröf í bænum Izyum í norðausturhluta landsins. Gröfina er að finna á landsvæði sem Úkraínumenn náðu nýverið aftur á sitt vald eftir innrás rússneska hersins. 16.9.2022 07:50
Þykknar upp og smá skúrir á víð og dreif síðdegis Veðurstofan spáir að fremur hæg, vestlæg og suðvestlæg átt muni leika um landið og að smám saman muni þykkna upp og verða smá skúrir á víð og dreif síðdegis. Þó má reikna með bjartviðri á Suðausturlandi. 16.9.2022 07:08
Mikil vonbrigði í Mosó með áframhaldandi urðun í bakgarðinum Ljóst er að ekki verður hægt að loka urðunarstað Sorpu í Álfsnesi fyrir lok árs 2023 líkt og samið var um fyrir tveimur árum. Viðræður Sorpu við sveitarfélög um framtíðarurðunarstað fyrir höfuðborgarsvæðið hefur enn engan árangur borið. 15.9.2022 14:23
Andersson segir „dyrnar standa opnar“ Magdalena Andersson gekk á fund forseta sænska þingsins í morgun þar sem hún baðst formlegrar lausnar úr embætti forsætisráðherra Svíþjóðar eftir um níu mánuði í embætti. Hægriflokkarnir á þingi hafa þegar hafið viðræður um myndun nýrrar stjórnar, en Andersson hefur rétt út hönd til hægriflokksins Moderaterna og opnað á samstarf, fari svo þeim snúist hugur varðandi stjórnarsamstarf með Svíþjóðardemókrötum. 15.9.2022 11:30
Sérsveitin kölluð út vegna „torkennilegs hlutar“ á Selfossi Lögregla á Suðurlandi er með mikinn viðbúnað nærri Fjölbrautaskóla Suðurlands og Vallaskóla á Selfossi eftir að tilkynnt var um „torkennilegan hlut“ á götu við skólann. Að sögn lögreglu er um að ræða ósprungna sprengju sem svipaði til þeirra sem fjallað var um í fréttum Stöðvar 2 í gær. 15.9.2022 11:03
Andrea nýr forstöðumaður hjá Fossum Andrea Björnsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns á skrifstofu forstjóra Fossa fjárfestingarbanka. Hún hefur störf í dag. 15.9.2022 10:03
Kona handtekin eftir að lík barna fundust í ferðatöskum Lögregla í Suður-Kóreu hefur handtekið konu sem sökuð er um að hafa myrt tvö börn sín sem fundust í ferðatösku á Nýja-Sjálandi í síðasta mánuði. 15.9.2022 08:39